Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2012

Úthlutun úr styrkvegasjóði fyrir árið 2012

Mál 1207093 Fyrst á dagskrá 8. ágúst 2012, síðast 29. ágúst 2012. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð.

Í heiti málsins: Styrkir

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2012

    Bæjarráð, fundur 302 liður 8

    Fram lagt bréf frá Vegagerð þar sem gerð er grein fyrir 3.000.000 kr framlagi til stofnvega í sveitarfélaginu. Bæjarráð samþykkir að vísa erindi til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar til umfjöllunar og felur nefndinni að leggja fram tillögur um ráðstöfun fjársins.

  2. Bæjarráð, fundur 305 liður 3

    Til kynningar tillaga frá ESU um ráðstöfun styrkvegafjár.

    Framlagt bréf frá Vegagerð þar sem gerð er grein fyrir 3.000.000 kr framlagi til stofnvega í sveitarfélaginu. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd sótti alls um styrk að fjárhæð 7 mkr. og leggur til eftirfarandi forgangsröðun við bæjarráð:Byggingu á brú yfir Seldalsá 1,0 mkr.

    Endurbætur á veg upp á Eskifjarðarheiði 0,5 mkr.

    Slóða í Skógræktarsvæði á Eskifirði 1,0 mkr.

    Ofaníburður í Fannardalsveg 0,5 mkr.Bæjarráð samþykkir tillögur nefndarinnar.