Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirSkipulags- og framkvæmdanefnd

Skipulags- og framkvæmdanefnd, fundur 60

8. júní 2026, kl. 16:15 til 18:30, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Aron Leví Beck.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, formaður
  • Kristinn Þór Jónasson, varaformaður
  • Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, aðalmaður
  • Húnbogi Sólon Gunnþórsson, aðalmaður
  • Guðröður Hákonarson, varamaður

Starfsmenn

  • Svanur Freyr Árnason, embættismaður
  • Aron Leví Beck Rúnarsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 947 liður 15

    Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 8. júní lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 417 liður 3

    Til máls tóku Þuríður Lillý Sigurðardóttir og Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir.

    Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 8. júní staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Óveruleg breyting á deiliskipulagi Bakkagerði 1, Bakkagerði 11

    Mál 2606035 Allur ferill málsins

    Óveruleg breyting á deiliskipulagi Bakkagerði 1, Bakkagerði 11. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir óverulega breytingu á deiliskipulagi Bakkagerði 1 vegna Bakkagerðis 11. Breytingin er ekki talið hafa grenndaráhrif og málinu er vísað til staðfestingar í bæjarstjórn.

  2. 2. Óveruleg breyting á Deiliskipulag Hlíðarendi Eskifirði - Strandgata 77b

    Mál 2606050 Allur ferill málsins

    Óveruleg breyting á Deiliskipulag Hlíðarendi Eskifirði - Strandgata 77b. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulagsfulltrúa að grenndarkynna fyrir Steinholtsvegi 6 og leggja fyrir nefnd að nýju.

  3. 3. Breyting á deiliskipulagi Bakkar 3 - Sólbakki 1 bílskúrar

    Mál 2601172 Allur ferill málsins

    Auglýsingu vegna breytingar á deiliskipulagi Bakkar 3 - Sólbakki 1 bílskúrar lokið. Engar athugasemdir bárust. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir skipulagið og vísar erindinu til samþykktar í bæjarstjórn.

  4. 4. Umsókn um lóð Gilsholt 2, 750 Fáskrúðsfirði

    Mál 2605146 Allur ferill málsins

    Umsókn um lóð Gilsholt 2, 750 Fáskrúðsfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulagsfulltrúa að koma með tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi.

  5. 5. Grenndarkynning Mógerði 5

    Mál 2605151 Allur ferill málsins

    Grenndarkynningu lokið. Athugasemdir vegna óverulegrar breytinga á deiliskipulagi við Mógerði 5, 730 Reyðarfjörður. Skipulags- og framkvæmdanefnd getur ekki fallist á tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi með teknu tilliti til athugasemda sem bárust við grenndarkynningu. Skipulagsfullrúa falið að vinna málið áfram með umsækjanda.

  6. 6. Grenndarkynning Skólavegur 50A, 750 Fáskrúðsfjörður

    Mál 2604004 Allur ferill málsins

    Grenndarkynningu vegna viðbyggingar við Skólaveg 50a, 750 Fáskrúðsfirði lokið. Engar athugasemdir komu á kynningartíma. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir niðurstöðu grenndarkynningar og vísar erindinu til afgreiðslu í bæjarstjórn.

  7. 7. Umsókn um lóð Strandgata 33, 735 Eskifirði

    Mál 2603146 Allur ferill málsins

    Umsókn um lóð Strandgata 33, 735 Eskifirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir framlagðar breytingar og úthlutun á lóðinni Strandgata 33 og vísar erindinu í bæjarráð.

  8. 8. Umsókn um lóð Bakkagerði 11, 730 Reyðarfirði

    Mál 2606034 Allur ferill málsins

    Umsókn um lóð Bakkagerði 11, 730 Reyðarfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir að úthluta lóðinni og vísar erindinu til bæjarráðs.

  9. 9. Strandgata 45 og Kirkjustígur 1a Esk. ósk um stækkun lóða

    Mál 2605016 Allur ferill málsins

    Ósk um stækkun einkalóðar að vegg sem liggur að göngustíg meðfram Lambeyrará. Skipulags- og framkvæmdanefnd frestar málinu meðan beðið er eftir merkjalýsingu.

  10. 10. Byggingarleyfi Leirubakki 4

    Mál 2605090 Allur ferill málsins

    Umsókn um byggingarleyfi Leirubakki 4, 735 Eskifirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir byggingaráformin og felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.

  11. 11. Byggingarleyfi Garðaholt 5, 750 Fáskrúðsfjörður

    Mál 2605137 Allur ferill málsins

    Umsókn um byggingarleyfi fyrir Garðaholt 5, 750 Fáskrúðsfjörður. Skipualgs- og framkvæmdanefnd felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.

  12. 12. Byggingarleyfi Skólavegur 50A, viðbygging 750 Fásk

    Mál 2604003 Allur ferill málsins

    Byggingarleyfi Skólavegur 50A, viðbygging 750 Fáskrúðsfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd frestar málinu þar til aðaluppdráttum hefur verið skilað.

  13. 13. Framkvæmdaleyfi fjarskiptamastur Breiðdalsvík

    Mál 2606009 Allur ferill málsins

    Umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir að reisa fjarskiptamastur á Breiðdalsvík. Skipulags- og framkvæmdanefnd frestar málinu þar til svar hefur borist frá Mílu.

  14. 14. Framkvæmdaleyfi fjarskiptamastur Stöðvarfirði

    Mál 2606010 Allur ferill málsins

    Umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir að reisa fjarskiptamastur á Stöðvarfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd frestar málinu þar til leyfi lóðarhafa liggur fyrir.

  15. 15. Sléttukrókur framkvæmdaleyfi

    Mál 2606057 Allur ferill málsins

    Framlögð beiðni frá Vegagerðinni um framkvæmdaleyfi vegna rannsókna á vegstæði í Sléttukrók sem hluta af vegagerð fyrir botni Reyðarfjarðar. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrirhugaðar framkvæmdir og felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.

  16. 16. Samgönguvika 2026

    Mál 2605175 Allur ferill málsins

    Samgönguvika 2026. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar kynninguna.

  17. 17. Umsagnarbeiðni - Aðalskipulag Múlaþings 2025-2045, nr. 04532026

    Mál 2605221 Allur ferill málsins

    Umsagnarbeiðni - Aðalskipulag Múlaþings 2025-2045, nr. 04532026. Skipulags- og framkvæmdanefnd gerir ekki athugasemd við fyrirhugað aðalskipulag og felur skipulagsfulltrúa að svara erindinu.

  18. 18. Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi - Skjólhraun

    Mál 2509018 Allur ferill málsins

    Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi - Skjólhraun. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur stjórnenda byggingar-, skipulags- og umhverfisdeildar að vinna málið áfram.

  19. 19. Kvenfélagsbekkir, Norðfirði

    Mál 2606047 Allur ferill málsins

    Kvenfélagið Nanna óskar eftir leyfi að setja upp bekki á Norðfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir staðsetningarnar og felur stjórnenda byggingar-, skipulags- og umhverfisdeildar að upplýsa kvenfélagið.

  20. 20. Fundargerðir Heilbrigðisnefndar Austurlands 2026

    Mál 2602149 Allur ferill málsins

    Fundargerðir Heilbrigðisnefndar Austurlands 2026. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar kynninguna.

  21. 21. Fundargerðir Úrgangsráðs Austurlands

    Mál 2511218 Allur ferill málsins

    Fundargerðir úrgangsráðs Austurlands frá 26. janúar og 13. maí lagðar fram. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar kynninguna en kallar eftir ítarlegri fundargerðum.

  22. 22. Nefndaskipan í Fjarðabyggð 2026 - 2030

    Mál 2605021 Allur ferill málsins

    Undirnefndir kosnar af höfuðnefndum og bæjarráði.

    Fjallskilanefnd

    Skipulags- og framkvæmdanefnd kýs fimm fulltrúar og jafn margir til vara í fjallskilanefnd. Fjallskilanefnd er skipulags- og framkvæmdanefnd til ráðuneytis um fjallskil og afréttarmál. Hún skal fjalla um fjallskil og afréttarmál í umboði skipulags- og framkvæmdanefndar. Fundargerðir fjallskilanefndar skulu lagðar fyrir skipulags- og framkvæmdanefnd áður en þær fá fullnaðarafgreiðslu í bæjarstjórn. Skipulags- og framkvæmdanefnd frestar málinu til næsta fundar.

  23. 23. Leikskólinn Dalborg áfangi IV. Endurbætur á eldri byggingu

    Mál 2606077 Allur ferill málsins

    Niðurstöða verðkönnunar á endurbótum innandyra á eldri byggingu Dalborgar á Eskfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir að ganga til samninga við lægstbjóðanda, VHE ehf.