Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirSkipulags- og framkvæmdanefnd

Skipulags- og framkvæmdanefnd, fundur 59

13. maí 2026, kl. 13:30 til 15:30, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Aron Leví Beck.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, formaður
  • Kristinn Þór Jónasson, varaformaður
  • Elís Pétur Elísson, aðalmaður
  • Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, aðalmaður
  • Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Svanur Freyr Árnason, embættismaður
  • Aron Leví Beck Rúnarsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 415 liður 8

    Fundargerðir skipulags- og framkvæmdanefndar teknar saman til umfjöllunar og afgreiðslu.

    Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 13. maí staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Breyting á deiliskipulagi Sævarendi 2

    Mál 2512025 Allur ferill málsins

    Fyrir liggur tillaga að breytingu á deiliskipulagi hafnarsvæðis á Stöðvarfirði þar sem lóðin Sævarendi 2 bætist við skipulagssvæðið. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir framlagða tillögu og vísar henni til bæjarstjórnar til afgreiðslu.

  2. 2. Breyting á aðalskipulagi Sævarendi 2

    Mál 2507014 Allur ferill málsins

    Fyrir liggur tillaga að breytingu á aðalskipulagi fyrir Sævarenda á Stöðvarfirði þar sem tekið hefur verið tillit til athugasemda sem fram komu við kynningu á vinnslutillögu. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir framlagða tillögu og vísar henni til bæjarstjórnar til afgreiðslu.

  3. 3. Umsókn um lóð Mógerði 5

    Mál 2604084 Allur ferill málsins

    Fyrir liggur tillaga að óverulegri breytingu á deiliskipulaginu Bakkagerði 1 sem varðar lóðina Mógerði 5 þar sem byggingarreitur er stækkaður og nýtingarhlutfall lóðarinnar er aukið. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulagsfulltrúa að grenndarkynna tillöguna fyrir Mógerði 1,2 og 4 og leggja fyrir fund að nýju.

  4. 4. Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi

    Mál 2604188 Allur ferill málsins

    Ósk frá Rarik um endurnýjun á lóðarleigusamning og stækkun á lóð, Hjallaleiru 9 RF. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulagsfulltrúa að skoða hvort hægt sé að stækka lóðina m.t.t breytingar á skipulagi.

  5. 5. Umsókn um stækkun á lóð Strandgata 77b, 735 Eskifjörður

    Mál 2604068 Allur ferill málsins

    Umsókn um stækkun á lóð Strandgata 77b, 735 Eskifjörður. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulagsfulltrúa að óska eftir óverulegum breytingum á deiliskipulagi og leggja fyrir fund að nýju.

  6. 6. Framkvæmdaleyfi strenglöng í Hólsgötu og Miðstræti

    Mál 2604221 Allur ferill málsins

    Framkvæmdaleyfi strenglöng í Hólsgötu og Miðstræti. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi þegar öllum gögnum hefur verið skilað.

  7. 7. Byggingarleyfi Efri miðbær 3 geymsluhús

    Mál 2604219 Allur ferill málsins

    Byggingarleyfi Efri miðbær 3 geymsluhús. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað. Ekki er þörf á grenndarkynningu.

  8. 8. Byggingarleyfi Skuggahlíðarháls N1

    Mál 2605029 Allur ferill málsins

    Byggingarleyfi Skuggahlíðarháls N1. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar öllu tilskyldum gögnum hefur verið skilað.

  9. 9. Óveruleg breyting á deiliskipulagi Stekkir 1, Reyðarfirði - Stekkjarbrekka 15

    Mál 2603135 Allur ferill málsins

    Fyrir liggur óveruleg breyting á deiliskipulagi til að færa það til samræmis við breytta lóðastærð sem þegar hefur verið gerð og samþykkt og leiðrétting á byggingarreit í leiðinni. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir óverulega breytingu og vísar erindinu í bæjarstjórn.

  10. 10. Beiðni um leyfi fyrir slönguhúsi og löndunarbúnaði á Strandarbryggju

    Mál 2603171 Allur ferill málsins

    Beiðni Loðnuvinnslunnar um uppsetningu slönguhúss og löndunarbúnaðar lögð fram. Hafnarstjórn samþykkir fyrir sitt leyti uppsetningu á húsi og búnaði og vísar málinu til afgreiðslu skipulags- og framkvæmdanefndar. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar kynninguna og samþykkir uppsetningu á húsi og búnaði. Skipulagsfulltrúa falið að ganga frá útfærslu á fyrirkomulagi lóðar.

  11. 11. Baðstofan í Kvíabólsfjörunni

    Mál 2605049 Allur ferill málsins

    Bréf frá framkvæmdahóp lagt fram, óskað eftir styrk við verkefnið Baðstofan í Kvíabólsfjöru. Skipulags- og framkvæmdanefnd getur ekki orðið við beiðninni.

  12. 12. Yfirborðsvatn. Erindi vegna Egilsbrautar 4

    Mál 2605071 Allur ferill málsins

    Lögð fram ósk um úrbætur á halla afleggjara af Egilsbraut niður á bæjarbryggjuna. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur stjórnanda þjónustu- og framkvæmdamiðstöðvar að skoða málið með bréfritara.

  13. 13. Umsóknir í framkvæmdasjóð ferðamanna 2026

    Mál 2510021 Allur ferill málsins

    Vísað frá bæjarráði til skipulags- og framkvæmdanefndar úthlutun úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða en styrkur fékkst til framkvæmda við Bleiksárfoss. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar kynninguna.

  14. 14. Viðhald tækja og búnaðar í Oddskarði

    Mál 2605080 Allur ferill málsins

    Farið yfir rekstur á tækjum tækjamiðstöðvar í Oddskarði. Fyrirséð er að reksturinn fer fram úr áætlun vegna viðhalds á tækjum og búnaði skíðamiðstöðvarinnar. Skipulags- og framkvæmdanefnd vísar málinu til umfjöllunar í bæjarráði.

  15. 15. Ástandsskoðun brúa við Búðaveg Fáskrúðsfirði

    Mál 2605079 Allur ferill málsins

    Farið yfir ástand brúa á Búðavegi Fáskrúðsfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd leggur til að lokað verði fyrir akandi umferð tímabundið frá Búðavegi 24 að Búðavegi 18 af varúðarráðsstöfunum samkvæmt úttekt og tillögu Eflu verkfræðistofu.

  16. 16. Umhverfismál og umbætur

    Mál 2604182 Allur ferill málsins

    Fulltrúar frá skipulags-og framkvæmdasviði kíktu á fund ungmennaráðs til að ræða ýmis mál í umhverfi Fjarðabyggðar. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur sviðsstjóra að vinna málið áfram.

  17. 17. Beiðni um fund vegna aðstöðu við reiðhöll og samgangna

    Mál 2601028 Allur ferill málsins

    Beiðni um fund vegna aðstöðu við reiðhöll og samgangna. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur starfsmönnum sviðsins að vinna málið áfram.

  18. 18. Umsókn um stöðuleyfi

    Mál 2605100 Allur ferill málsins

    Umsókn um stöðuleyfi við Leikskólann Dalborg Eskifirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulagsfulltrúa að gefa út stöðuleyfi.

  19. 19. Byggingarleyfi Leirubakki 4

    Mál 2605090 Allur ferill málsins

    Byggingarleyfi Leirubakki 4. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulagsfulltrúa að ræða við umsækjanda.

  20. 20. Byggingarleyfi Hæðargerði 39

    Mál 2605061 Allur ferill málsins

    Byggingarleyfi Hæðargerði 39. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulagsfulltrúa að ræða við umsækjanda.

  21. 21. Framkvæmdaleyfi færa farg Leirubakki 4

    Mál 2605098 Allur ferill málsins

    Eskja er að undirbúa byggingu 2. áfanga frystigeymslu á lóðinni Leirubakka 4 á Eskifirði sunnan við núverandi frystigeymslu. Sótt eru um framkvæmdaleyfi fyrir því að færa núverandi farg innar á lóð eins og sýnt er á teikningu -1-1-11-01. Núverandi farg er sunnan við núverandi frystigeymslu félagsins. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir að farg verði sett á lóðina. Skilyrt er að hæðir á lóðarmörkum nágrannalóða og vega verði mældar og skráðar þegar búið verður að malbika vegi og lóðir og svo með reglulegum hætti á meðan farg er á lóðinni.

  22. 22. Grenndarkynning - Garðaholt 5

    Mál 2604237 Allur ferill málsins

    Niðurstöður grenndarkynningar vegna Garðaholts 5, 750 Fáskrúðsfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir grenndarkynninguna og vísar erindinu í til afgreiðslu í bæjarstjórn.