Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 947

15. júní 2026, kl. 08:30 til 11:40, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Ragnar Sigurðsson, formaður
  • Birgir Jónsson, varamaður
  • Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
  • Hrafn Bjarnason, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 417 liður 2

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð bæjarráðs frá 15. júní staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Styrktarumsókn v afmælistónleika

    Mál 2606058 Allur ferill málsins

    Framlögð ósk Tónlistarskóla Fjarðabyggðar um styrk vegna 70 ára afmælis Tónskólans í Neskaupstað.

    Bæjarráð tekur vel í erindið og felur sviðsstjóra fjölskyldusviðs ásamt bæjarstjóra að finna fjármagn til afmælistónleikanna.

  2. 2. Umsókn um lóð Strandgata 33, 735 Eskifirði

    Mál 2603146 Allur ferill málsins

    Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarráðs umsókn um lóðina Strandgötu 33 á Eskifirði.

    Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni.

  3. 3. Umsókn um lóð Bakkagerði 11, 730 Reyðarfirði

    Mál 2606034 Allur ferill málsins

    Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarráðs umsókn um lóðina Bakkagerði 11 á Reyðarfirði.

    Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni.

  4. 4. Nýja svæði Dreka

    Mál 2603166 Allur ferill málsins

    Framlagður tölvupóstur frá Skotíþróttafélaginu Dreka vegna íþróttasvæðis.

    Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við bréfritara um málefnið.

  5. 5. Grenndarkynning Mógerði 5

    Mál 2605151 Allur ferill málsins

    Tekin umræða um grenndarkynningu vegna Mógerði 5 á Reyðarfirði en skipulags- og framkvæmdanefnd fjallaði um málið á síðasta fundi sínum.

    Bæjarráð felur bæjarstjóra að funda með aðilum sem tengjast grenndarkynningu og leggja fyrir bæjarráð að nýju.

  6. 6. Boð um samstarf við Swieciechowa vegna menningarverkefnis

    Mál 2606104 Allur ferill málsins

    Framlagt erindi frá sveitarfélaginu Swieciechowa í Póllandi þar sem Fjarðabyggð er boðin þátttaka í samstarfsverkefni í meningarmálum sem sveitarfélagið er að undirbúa og verður hleypt af stokkunum af ráðuneyti menningar og þjóðararfs í Póllandi á þriðja ársfjórðungi ársins. Verkefnið er fjármagnað gegnum EEA fjármálaáætlunina og styrki frá Noregi.

    Bæjarráð vísar erindi til frekari skoðunar hjá bæjarritara og forstöðumanni menningarstofu.

  7. 7. Skjálausnir í íþróttamiðstöðvar

    Mál 2605230 Allur ferill málsins

    Framlögð drög að samstarfssamningi um rekstur á skjálausn í íþróttamiðstöðvum Fjarðabyggðar.

    Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra undirritun hans.

  8. 8. Viðaukaframlag vegna samþykkta réttindasafna R og B deilda

    Mál 2606106 Allur ferill málsins

    Framlagt erindi Brúar lífeyrissjóðs vegna skilyrðis úr samþykktum vegna réttindasafns R og B deildar Lífeyrissjóðs Neskaupstaðar en sjóðurinn krefur um viðbótarframlag sem nemur 110 m.kr.

    Bæjarráð samþykkir að viðbótarframlagið sé greitt til lífeyrissjóðsins og vísar fjármögnun hans til gerðar viðauka við fjárhagsáætlun ársins.

  9. 9. Erindi um styrk til afnota af Skrúð

    Mál 2606079 Allur ferill málsins

    Framlögð beiðni frá Krabbameinsfélagi Austfjarða þar sem óskað er eftir styrk til greiðslu afnota af Skrúð 10. september vegna 75 ára afmælis Krabbameinsfélags Íslands.

    Bæjarráð samþykkir að styrkja félagið sem nemur afnot um húsnæðinu fyrir afmælið. Kostnaði mætt af liðnum óráðstafað 21690.

  10. 10. Leikskólinn Dalborg áfangi IV. Endurbætur á eldri byggingu

    Mál 2606077 Allur ferill málsins

    Skipulags- og framkvæmdanefnd leggur til að tilboði lægstbjóðanda VHE ehf. í IV. áfanga endurbóta við Dalborg leikskóla verði tekið.

    Bæjarráð samþykkir að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda og felur bæjarstjóra undirritun samningsins.

  11. 11. Ofanflóðavarnir Nes- og Bakkagil Norðfjörður

    Mál 2009034 Allur ferill málsins

    Farið yfir framkvæmdir við Ofanflóðavarnir í Nes- og Bakkagiljum með fulltrúum Ofanflóðasjóðs og Veðurstofunnar.

  12. 12. Málefni slökkviliðs Fjarðabyggðar

    Mál 2511053 Allur ferill málsins

    Slökkviliðsstjóri fór yfir málefni slökkviliðs.

  13. 13. Fjarðabyggð - Hagræn umsvif

    Mál 2606129 Allur ferill málsins

    Kynning á drögum að mælaborði varðandi hagræn umsvif í Fjarðabyggð á árunum 2020-2024. Deildarstjóri fjármála kynnir stöðu.

  14. 14. Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026

    Mál 2601212 Allur ferill málsins

    Fundagerð 1000. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga lögð fram til kynningar.

  15. 15. Skipulags- og framkvæmdanefnd - 60

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 8. júní lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

    1. 15.1 Óveruleg breyting á deiliskipulagi Bakkagerði 1, Bakkagerði 112606035
    2. 15.2 Óveruleg breyting á Deiliskipulag Hlíðarendi Eskifirði - Strandgata 77b2606050
    3. 15.3 Breyting á deiliskipulagi Bakkar 3 - Sólbakki 1 bílskúrar2601172
    4. 15.4 Umsókn um lóð Gilsholt 2, 750 Fáskrúðsfirði2605146
    5. 15.5 Grenndarkynning Mógerði 52605151
    6. 15.6 Grenndarkynning Skólavegur 50A, 750 Fáskrúðsfjörður2604004
    7. 15.7 Umsókn um lóð Strandgata 33, 735 Eskifirði2603146
    8. 15.8 Umsókn um lóð Bakkagerði 11, 730 Reyðarfirði2606034
    9. 15.9 Strandgata 45 og Kirkjustígur 1a Esk. ósk um stækkun lóða2605016
    10. 15.10 Byggingarleyfi Leirubakki 42605090
    11. 15.11 Byggingarleyfi Garðaholt 5, 750 Fáskrúðsfjörður2605137
    12. 15.12 Byggingarleyfi Skólavegur 50A, viðbygging 750 Fásk2604003
    13. 15.13 Framkvæmdaleyfi fjarskiptamastur Breiðdalsvík2606009
    14. 15.14 Framkvæmdaleyfi fjarskiptamastur Stöðvarfirði2606010
    15. 15.15 Sléttukrókur framkvæmdaleyfi2606057
    16. 15.16 Samgönguvika 20262605175
    17. 15.17 Umsagnarbeiðni - Aðalskipulag Múlaþings 2025-2045, nr. 045320262605221
    18. 15.18 Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi - Skjólhraun2509018
    19. 15.19 Kvenfélagsbekkir, Norðfirði2606047
    20. 15.20 Fundargerðir Heilbrigðisnefndar Austurlands 20262602149
    21. 15.21 Fundargerðir Úrgangsráðs Austurlands2511218
    22. 15.22 Nefndaskipan í Fjarðabyggð 2026 - 20302605021
    23. 15.23 Leikskólinn Dalborg áfangi IV. Endurbætur á eldri byggingu2606077
  16. 16. Fjölskyldunefnd - 60

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð fjölskyldunefndar frá 10. júní lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

    1. 16.1 Kynning á fjölskyldusviði 20262606074
    2. 16.2 Skóladagatöl 2026-20272601102
    3. 16.3 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 20272603185
  17. 17. Stjórn menningarstofu - 37

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð stjórnar menningarstofu frá 10. júní lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

    1. 17.1 Erindisbréf stjórnar menningarstofu2205296
    2. 17.2 Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar menningarstofu 20272603195
    3. 17.3 Nefndaskipan í Fjarðabyggð 2026 - 20302605021
    4. 17.4 Nefndaskipan í Fjarðabyggð 2026 - 20302605021
    5. 17.5 Nefndaskipan í Fjarðabyggð 2026 - 20302605021
  18. 18. Hafnarstjórn - 341

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 8. júní lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

    1. 18.1 Starfsemi Fjarðabyggðarhafna2606065
    2. 18.2 Mjóeyrarhöfn skipulagsgreining2505124
    3. 18.3 Beiðni um styrk vegna sjómannadagsins í Neskaupstað 20262605127
    4. 18.4 Beiðni um styrk vegna sjómannadagsins á Eskifirði 20262605218
    5. 18.5 Fundargerðir Hafnasambands Íslands 20262601118