Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 946

8. júní 2026, kl. 08:30 til 12:45, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Ragnar Sigurðsson, formaður
  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, varaformaður
  • Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
  • Hrafn Bjarnason, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 417 liður 1

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tóku Ragnar Sigurðsson og Stefán Þór Eysteinsson.

    Fundargerð bæjarráðs frá 8. júní staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Rekstur málaflokka 2026

    Mál 2602253 Allur ferill málsins

    Lagt fram yfirlit fjármálastjóra um rekstur málaflokka fyrir janúar-mars auk yfirlits yfir launakostnað og skattekjur fyrir janúar til apríl 2026.

  2. 2. Ársreikningur Eignarhaldsfélagsins Hrauns ehf. 2025

    Mál 2606032 Allur ferill málsins

    Ársreikningur Eignarhaldsfélagsins Hrauns ehf. fyrir árið 2025 lagður fram til staðfestingar og undirritunar.

    Bæjarráð staðfestir ársreikning með undirritun sinni.

  3. 3. Ársreikningur Hitaveitu Fjarðabyggðar 2025

    Mál 2606033 Allur ferill málsins

    Ársreikningur Hitaveitu Fjarðabyggðar fyrir árið 2025 lagður fram til staðfestingar og undirritunar.

    Bæjarráð staðfestir ársreikning með undirritun sinni

  4. 4. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2027

    Mál 2603185 Allur ferill málsins

    Framlögð endurskoðuð tillaga að skipulagi vinnu við gerð fjárhagsáætlunar 2027 ásamt dagsetningum í ferlinu.

    Bæjarráð samþykkir uppfærða tímaáætlun vegna fjárhagsáætlunarvinnu ársins 2027 og felur sviðsstjórum og nefndum að hefja vinnu við áætlunargerðina til samræmis við sett tímamörk.

  5. 5. Viðhald tækja og búnaðar í Oddskarði

    Mál 2605080 Allur ferill málsins

    Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarráðs hækkun framlaga til viðhalds og reksturs á tækjum tækjamiðstöðvar í Oddskarði. Fyrirséð er að reksturinn fer fram úr áætlun vegna viðhalds á tækjum og búnaði skíðamiðstöðvarinnar.

    Bæjarráð samþykkir að vísa fjármögnun viðhalds tækja og búnaðar miðstöðvarinnar til gerðar viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2026.

  6. 6. Kæra vegna útboðs úrgangsþjónustu 2026 nr. 46 48 65 2025

    Mál 2509226 Allur ferill málsins

    Framlagðir úrskurður kærunefndar útboðsmála frá 4. júní 2026, í máli nr. 46, 48 og 65/2025; UHA Umhverfisþjónusta ehf. gegn Fjarðabyggð og Kubbi ehf vegna útboðs á úrgangsþjónustu vegna áranna 2026 til 2029. Niðurstaða kærunefndarinnar er Fjarðabyggð í vil þar sem að kærunum er hafnað eða vísað frá.

  7. 7. Reglur um kjör kjörinna fulltrúa

    Mál 2212036 Allur ferill málsins

    Farið yfir reglur um kjör kjörinna fulltrúa og búnaðargreiðslu til kjörinna fulltrúa. Samkvæmt venju hefur kjörnum fulltrúum verið lagt til framlag vegna búnaðar sem þeir þurfa vegna starfa sinna.

    Bæjarráð samþykkir að greidd verði búnaðargreiðsla til kjörinna aðalmanna í bæjarstjórn að fjárhæð 250.000 kr. og vísar fjármögnun til gerðar viðauka við fjárhagsáætlunar ársins 2026.

  8. 8. Siðareglur kjörinna fulltrúa

    Mál 1805176 Allur ferill málsins

    Siðareglur kjörinna fulltrúa lagðar fram til endurskoðunar á fyrsta starfsári bæjarstjórnar.

    Bæjarráð samþykkir reglurnar óbreyttar og vísar þeim til staðfestingar bæjarstjórnar.

  9. 9. Ráðning bæjarstjóra 2026 - 2030

    Mál 2605170 Allur ferill málsins

    Vísað frá bæjarstjórn til bæjarráðs undirritun ráðningarsamnings bæjarstjóra.

    Bæjarráð staðfestir ráðningarsamning bæjarstjóra með undirritun sinni.

  10. 10. Nefndaskipan í Fjarðabyggð 2026 - 2030

    Mál 2605021 Allur ferill málsins

    Skipan eins aðalfulltrúa og annars til vara í þriggja manna stjórn Náttúrustofu Austurlands. Þá velur bæjarráð stjórninni formann í samráði við byggðaráð Múlaþings. Náttúrustofan starfar samkvæmt ákvæðum laga og reglugerða um Náttúrufræðistofnun Íslands og náttúrustofur.

    Bæjarráð samþykkir að Húnbogi Sólon Gunnþórsson verði aðalfulltrúi og Gunnar Sveinbjörn Ólafsson varafulltrúi Fjarðabyggðar. Fjarðabyggð og Múlaþing hafa komið sér saman um að sameiginlegur aðalfulltrúi sveitarfélaganna sé Líneik Anna Sævarsdóttir sem verði formaður stjórnar.

  11. 11. Nefndaskipan í Fjarðabyggð 2026 - 2030

    Mál 2605021 Allur ferill málsins

    Bæjarráð kýs fimm fulltrúa í upplýsingaöryggisnefnd. Upplýsingaöryggisnefnd er bæjarráði til ráðuneytis um persónuverndar- og upplýsingaöryggismál. Hún mótar stefnu í upplýsingaöryggi og persónuvernd og er ráðgefandi um þau mál.

    Bæjarráð samþykkir að upplýsingaöryggisnefnd verði skipuð bæjarritara, stjórnanda félagsþjónustu og barnaverndar, stjórnanda fræðslumála- og skólaþjónustu, sviðsstjóra mannauðsmála ásamt persónuverndarfulltrúa.

  12. 12. Kosning í fulltrúaráð EBÍ

    Mál 2605220 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf frá Eignarhaldsfélagi Brunabótafélags Íslands vegna kjörs í fulltrúaráð félagsins.

  13. 13. Frumathugun varna Innri Einarsstaðaá

    Mál 2606006 Allur ferill málsins

    Lagðar eru fram til afgreiðslu verkáætlanir Cowi og Verkís vegna vinnu frumathugunar v. krapaflóðavarna í Einarsstaðaám á Stöðvarfirði.

    Bæjarráð samþykkir tillögu Ofanflóðasjóðs að tilboði Verkís upp á 24 MISK án VSK sé tekið á grundvelli lægri kostnaðar.

  14. 14. Skjálausnir í íþróttamiðstöðvar

    Mál 2605230 Allur ferill málsins

    Lagt fram minnisblað vegna tillögu Skjáauglýsinga um samstarf um uppsetningu auglýsingaskjáa í íþróttamannvirkjum sveitarfélagsins.

    Bæjarráð samþykkir að unnið verið að málinu áfram og samningur lagður fyrir bæjarráð til afgreiðslu.

  15. 15. Bráðnauðsynlegar framkvæmdir við Lystigarðinn í Neskaupstað

    Mál 2606017 Allur ferill málsins

    Framlagt bréf Lystigarðsnefndar og stjórnar Kvenfélagsins Nönnu þar sem farið er fram á að þær áætlanir sem liggja fyrir um garðinn verði framkvæmdar og fjármagn tryggt.

    Bæjarráð vísar erindi til sviðsstjóra skipulags- og framkvæmdasviðs til úrvinnslu í samstarfi með forstöðumanni þjónustumiðstöðvar og garðyrkjustjóra.

  16. 16. Fyrirspurn, kaup á fasteign Egilsbraut 9

    Mál 2606048 Allur ferill málsins

    Framlögð fyrirspurn eiganda fasteigninar að Egilsbraut 9 (Adamsborg) í Neskaupstað um hvort sveitarfélagið hafi áhuga á kaupum á eigninni.

    Bæjarráð hefur ekki áhuga fyrir kaupum á eigninni.

  17. 17. Forkaupsréttur að Austfirðing HU-204

    Mál 2606053 Allur ferill málsins

    Framlagt erindi Gullrúnar ehf. þar sem óskað er eftir afstöðu til nýtingar forkaupsréttar vegna sölu á bátnum Austfirðing HU-204. Báturinn selst án allra aflaheimilda og veiðiréttinda.

    Bæjarráð samþykkir að nýta ekki forkaupsrétt að bátnum Austfirðing HU-204.

  18. 18. Viljayfirlýsing

    Mál 2511118 Allur ferill málsins

    Fjallað um málefni Breiðabliks í Neskaupstað.

    Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna áfram að málinu.

  19. 19. Ofanflóðavarnir Nes- og Bakkagil Norðfjörður

    Mál 2009034 Allur ferill málsins

    Farið yfir framkvæmdir við Ofanflóðavarnir í Nes- og Bakkagiljum.

    Bæjarráð óskar eftir fundi með fulltrúa Ofanflóðasjóðs og Veðurstofunnar.

  20. 20. Umsögn vegna endurskoðunar á byggðakvótakerfinu.

    Mál 2605092 Allur ferill málsins

    Framlögð umsagnarbeiðni frá innviðaráðuneytinu vegna endurskoðunar á byggðakvótakerfinu.

    Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að veita umsögn vegna málsins.

  21. 21. Ársskýrsla Náttúrustofu Austurlands 2025

    Mál 2605238 Allur ferill málsins

    Ársskýrsla Náttúrustofu Austurlands lögð fram til kynningar.

  22. 22. Fundargerðir stjórnar Náttúrustofu Austurlands árið 2026

    Mál 2605110 Allur ferill málsins

    Fundargerð Náttúrustofu Austurlands frá 10. apríl lögð fram til kynningar.

  23. 23. Aðalfundarboð 2026 - Olíusamlagið

    Mál 2606007 Allur ferill málsins

    Aðalfundur Olíusamlags útvegsmanna í Neskaupstað var haldinn 3. júní sl. kl. 16:00. Fjármálastjóri sótti fundinn fyrir hönd Fjarðabyggðar.

  24. 24. Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026

    Mál 2601212 Allur ferill málsins

    Fundagerð 998. og 999. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga lagðar fram til kynningar.

  25. 25. Fundargerðir stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga 2026

    Mál 2602129 Allur ferill málsins

    Framlagðar til kynningar fundargerðir stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga nr. 91 og 92.

  26. 26. Ársfundur 2026

    Mál 2604065 Allur ferill málsins

    Framlögð til kynningar fundargerð ársfundar Brákar íbúðafélags frá 28. apríl 2026.