Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 945

11. maí 2026, kl. 08:30 til 10:30, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Ragnar Sigurðsson, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 415 liður 4

    Fundargerðir bæjarráðs teknar saman til umfjöllunar og afgreiðslum.

    Fundargerð bæjarráðs frá 11. maí staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Fjárhagsáætlun 2026 - viðauki 1

    Mál 2604239 Allur ferill málsins

    Framlagður uppfærður viðauki I við fjárhagsáætlun 2026.

    Bæjarráð samþykkir viðaukann fyrir sitt leyti og vísar viðaukanum til staðfestingar bæjarstjórnar.

  2. 2. Rafræn innkaupakort

    Mál 2605053 Allur ferill málsins

    Framlögð til kynningar breyting á fyrirkomulagi innkaupa hjá Fjarðabyggð þar sem innleidd verður ný gerð innkaupakorta.

  3. 3. Afnám læknaþjónustu Fáskrúðsfirði

    Mál 2605025 Allur ferill málsins

    Framlögð til kynningar bréf vegna afnám læknaþjónustu á Fáskrúðsfirði og þjónustustig samfélagsins þar. Erindi hefur verið svarað en sveitarfélagið mun leita með Heilbrigðisstofnun Austurlands að mæta þörfum.

  4. 4. Erindi frá Íbúasamtökum Fáskrúðsfjarðar

    Mál 2605034 Allur ferill málsins

    Framlagt erindi íbúasamtakanna um ýmiss málefni Fáskrúðsfjarðar. Fjallað um einstök málefni erindisins.

    Bæjarráð þakkar ábendingar og vísar þeim til frekari vinnslu hjá sviðum sveitarfélagsins.

  5. 5. Kynding Fjarðabyggðarhallarinnar

    Mál 2504103 Allur ferill málsins

    Framlagðir til upplýsinga undirritaðir samningar við Alor og Tandraorku vegna kyndingar Fjarðabyggðarhallarinnar.

    Bæjarráð staðfestir samninga.

  6. 6. Stýrihópur um framtíðarskipulag náttúrustofa

    Mál 2605073 Allur ferill málsins

    Framlagður til kynningar upplýsingapóstur frá umhverfis-, orku- og loftlagsráðuneytinu um skipan stýrihóps sem vinnur að framtíðarskipulagi náttúrustofa.

  7. 7. Fundargerðir Austurbrúar og SSA 2026

    Mál 2602238 Allur ferill málsins

    Framlagðar fundargerðir stjórnar Austurbrúar og stjórnar Sambands sveitarfélga á Austurlandi frá 24. apríl.

  8. 8. Ósk um viðburðarleyfi fyrir Hjólamót

    Mál 2605097 Allur ferill málsins

    Framlagt erindi frá Fönn hjólafélagi þar sem óskað er heimildar bæjarráðs til að halda hjólaviðburð 13. júní til tímabundinnar lokunar gatna ef þörf krefur auk aðstoðar við lokanir eða stýringu umferðar og samstarf varðandi öryggismál.

    Bæjarráð samþykkir að veita heimild til lokunar á götum í samstarfi við félagið og felur skipulags- og framkvæmdasviði að vera í samskiptum og aðstoð vegna viðburðarins.

  9. 9. Aðalfundur Breiðdalsseturs 2026

    Mál 2605096 Allur ferill málsins

    Aðalfundur Breiðdalsseturs var haldinn 9. maí sl.

    Bæjarstjóri sótti fundinn fyrir hönd Fjarðabyggðar og situr áfram í stjórn setursins.

  10. 10. Hafnarstjórn - 340

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 4. maí lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

    1. 10.1 Útboð - Vöttur, mönnun og viðhald2605001
    2. 10.2 Mjóeyrarhöfn skipulagsgreining2505124
    3. 10.3 Beiðni um leyfi fyrir slönguhúsi og löndunarbúnaði á Strandarbryggju2603171
    4. 10.4 Fyrirhugaðar framkvæmdir Loðnuvinnslunnar2502033
    5. 10.5 Ástand stálþilsbryggja - Fjarðabyggðarhafnir2511237
    6. 10.6 Eskifjarðarhöfn - stækkun2003091
    7. 10.7 Fundargerðir Hafnasambands Íslands 20262601118
  11. 11. Starfshópur um íþróttahús á Eskifirði - 8

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð starfshóps um íþróttahús á Eskifirði frá 27. apríl lögð fram til umfjöllunar og samþykktar.

  12. 12. Fjölskyldunefnd - 59

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð fjölskyldunefndar frá 8. maí lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

    1. 12.1 Úthlutun til leikskóla 2026-2027
    2. 12.2 Úthlutun til grunnskóla 2026-2027
    3. 12.3 Verkefni með skólasamfélaginu við Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóla
    4. 12.4 Endurskoðun samnings um barnaverndarþjónustu
    5. 12.5 Verklagsreglur um fósturráðstafanir - BFSH
    6. 12.6 Drög að reglugerð um málsmeðferð vegna ákvörðunar um vistun barna með fjölþættar stuðningsþarfir í sérhæfð vistunarúrræði á vegum ríkisins
    7. 12.7 Húsnæðismál - Egilsbúð
    8. 12.8 Ungmennaráð - 24
    9. 12.9 Öldungaráð - 26
    10. 12.10 Upplýsingagjöf til eldra fólks
    11. 12.11 Tillögur til tilnefninga Íslensku menntaverðlaunanna