Bæjarráð, fundur 944
4. maí 2026, kl. 08:30 til 10:00, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Ragnar Sigurðsson, formaður
- Jón Björn Hákonarson, varaformaður
- Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
- Gunnar Jónsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 415 liður 3
Fundargerðir bæjarráðs teknar saman til umfjöllunar og afgreiðslum.
Fundargerð bæjarráðs frá 4. maí staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Fjárhagsáætlun 2026 - viðauki 1
Mál 2604239 Allur ferill málsins
Framlagður viðauki I við fjárhagsáætlun 2026.
Bæjarráð samþykkir að vísa viðaukanum til næsta fundar bæjarráðs.
-
2. Forkaupsréttur að Ljósafelli SU-90
Mál 2604177 Allur ferill málsins
Framlagt erindi frá Loðnuvinnslunni ehf. þar sem óskað er eftir afstöðu Fjarðabyggðar til að nýta forkaupsrétt að skipinu Ljósafelli SU-90.
Bæjarráð samþykkir að nýta ekki forkaupsrétt að skipinu Ljósafelli SU-90.
-
3. Þakviðgerðir Grunnskóla Breiðdalsvík
Mál 2510022 Allur ferill málsins
Vísað frá skipulags- og framkvæmdanefnd til afgreiðslu bæjarráðs niðurstöðu verðkönnunar vegna endurnýjunar á þaki Grunnskóla Breiðdalsvík.
Bæjarráð samþykkir að gengið verði til samninga við bjóðanda og farið verði í framkvæmdina. Fjármögnun framkvæmdar vísað til gerðar viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2026.
-
4. Beiðni um endurskoðun álagningar sorphirðugjalda
Mál 2604227 Allur ferill málsins
Framlagt erindi vegna endurskoðunar á álagningu sorphirðugjalda.
Erindi vísað til vinnslu hjá fjármálastjóra.
-
5. Lækjarkanntavarnir vegna Kvíabólslækjar og Þiljuvallalækjar
Mál 2511191 Allur ferill málsins
Framlagt bréf frá Sigurði Jenssyni vegna bakkavarna Kvíabólslækjar og Þiljuvallalækjar.
Bæjarráð vísar erindi til skoðunar hjá sviðsstjóra skipulags- og framkvæmdasviðs í samstarfi við Ofanflóðasjóð.
-
6. Reglur fyrir íþrótta- og tómstundastyrk Fjarðabyggðar 2026
Mál 2604157 Allur ferill málsins
Vísað frá fjölskyldunefnd til afgreiðslu bæjarráðs uppfærðum reglum fyrir íþrótta- og tómstundastyrki Fjarðabyggðar 2026.
Bæjarráð samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til staðfestingar bæjarstjórnar.
-
7. Til umsagnar 595. mál frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis
Mál 2604197 Allur ferill málsins
Framlagt til umsagnar frumvarp til loftlagslaga.
Lagt fram til kynningar og til bæjarstjóra til skoðunar.
-
8. Umsóknir í framkvæmdasjóð ferðamanna 2026
Mál 2510021 Allur ferill málsins
Framlögð til kynningar úthlutun úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða en styrkur fékkst til framkvæmda við Bleiksárfoss.
Vísað til kynningar og umræðu í skipulags- og framkvæmdanefnd.
-
9. Ársfundur Náttúruhamfaratryggingar Íslands 21. maí 2025
Mál 2604203 Allur ferill málsins
Framlagt boð á ársfund Náttúruhamfaratrygginga sem haldinn verður 21. maí nk.
-
10. Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026
Mál 2601212 Allur ferill málsins
Fundagerð fundar 997 lögð fram til kynningar
-
11. Hafnarstjórn - 339
Fundargerð hafnarstjórnar frá 22. apríl tekin til umfjöllunar og afgreiðslu.
- 11.1 Útboð á dýpkun Frystihússbryggja Eskifjarðarhöfn2510179
-
12. Fjölskyldunefnd - 58
Fundargerð fjölskyldunefndar frá 27. apríl tekin til umfjöllunar og afgreiðslu.
-
13. Skipulags- og framkvæmdanefnd - 58
Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 29. apríl lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
- 13.1 Óveruleg breyting á deiliskipulagi Holtahverfi, Reyðarfirði - Garðaholt 52604187
- 13.2 Byggingarleyfi Hafnarbraut 6, 740 Norðfirði2602170
- 13.3 Byggingarleyfi Heiðarvegur 37 - niðurrif2604162
- 13.4 Framkvæmdaleyfi hjólabraut2604161
- 13.5 Umsókn um lóð Mógerði 52604084
- 13.6 Framkvæmdaleyfi girðing Blávík2604110
- 13.7 Framkvæmdaleyfi skógrækt Blávík2604111
- 13.8 Grjótá, lóðir og merkjalýsing2502232
- 13.9 Umsókn um beitiland - Eigendur Fálskaskjóls Kirkjubólseyrum 12 740 Nesk2604155
- 13.10 Vor í Fjarðabyggð 20262604186
- 13.11 Starfshópur um íþróttahúsið á Eskifirði2505129
- 13.12 Þakviðgerðir Grunnskóla Breiðdalsvík2510022
- 13.13 Framkvæmdaleyfi efnistaka Norðfjarðará2604191