Hafnarstjórn, fundur 340
4. maí 2026, kl. 16:15 til 18:15, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Birgitta Rúnarsdóttir.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)
Fundinn sátu
- Heimir Snær Gylfason, formaður
- Jón Björn Hákonarson, varaformaður
- Bryngeir Ágúst Margeirsson, aðalmaður
- Tinna Hrönn Smáradóttir, aðalmaður
- Birta Sæmundsdóttir, varamaður
Starfsmenn
- Birgitta Rúnarsdóttir, embættismaður
- Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
- Svanur Freyr Árnason, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 945 liður 10
Fundargerð hafnarstjórnar frá 4. maí lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
Bæjarstjórn, fundur 415 liður 6
Fundargerðir hafnarstjórnar teknar saman til umfjöllunar og afgreiðslum.
Fundargerð hafnarstjórnar frá 4. maí staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Útboð - Vöttur, mönnun og viðhald
Mál 2605001 Allur ferill málsins
Hafnarstjórn felur hafnarstjóra að undirbúa útboð á þjónustu um mönnun og viðhald á dráttarbátnum Vetti í samstarfi við EFLU. Miðað er við að nýr samningur taki gildi frá og með áramótum. Hafnarstjórn samþykkir að framlengja núverandi samning til áramóta.
-
2. Mjóeyrarhöfn skipulagsgreining
Mál 2505124 Allur ferill málsins
Lögð fram sem trúnaðarskjal skýrsla skipulagsgreiningar EFLU á Mjóeyrarhöfn. Hafnarstjóra falið að undirbúa kynningarfund með hagaðilum.
-
3. Beiðni um leyfi fyrir slönguhúsi og löndunarbúnaði á Strandarbryggju
Mál 2603171 Allur ferill málsins
Beiðni Loðnuvinnslunnar um uppsetningu slönguhúss og löndunarbúnaðar lögð fram að nýju eftir breytingar á hönnun. Hafnarstjórn samþykkir fyrir sitt leyti uppsetningu á húsi og búnaði og vísar málinu til afgreiðslu skipulags- og framkvæmdanefndar.
-
4. Fyrirhugaðar framkvæmdir Loðnuvinnslunnar
Mál 2502033 Allur ferill málsins
Farið yfir uppfærða tímalínu á framkvæmdum Loðnuvinnslunnar með tilliti til beiðni þeirra um hækkun Innri-Löndunarbryggju. Stjórnanda hafna og sviðsstjóra skipulags- og framkvæmdasviðs falið að undirbúa framkvæmdir og leggja fyrir að nýju.
-
5. Ástand stálþilsbryggja - Fjarðabyggðarhafnir
Mál 2511237 Allur ferill málsins
Lagt fram minnisblað frá Portum verkfræðistofu um þykktarmælingu stálþila í Fjarðabyggðarhöfnum. Hafnarstjórn samþykkir að fara í verðkönnun á þykktarmælingum til framkvæmda í sumar.
-
6. Eskifjarðarhöfn - stækkun
Mál 2003091 Allur ferill málsins
Yfirferð á stöðu mála er varða verkefni við Leirubakka og Frystihússbryggjuna á Eskifirði. Hafnarstjóra falið að vinna áfram að verkefnum á grundvelli umræðna á fundinum.
-
7. Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2026
Mál 2601118 Allur ferill málsins
Lögð fram til kynningar fundargerð 481.fundar Hafnasambands Íslands