NefndirSkipulags- og framkvæmdanefnd
Skipulags- og framkvæmdanefnd, fundur 61
23. júní 2026, kl. 16:15 til 18:15, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Aron Leví Beck.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)
Fundinn sátu
- Þuríður Lillý Sigurðardóttir, formaður
- Kristinn Þór Jónasson, varaformaður
- Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, aðalmaður
- Hafþór Eiríksson, aðalmaður
- Sóley Katrín Heiðarsdóttir, varamaður
Starfsmenn
- Aron Leví Beck Rúnarsson, embættismaður
- Birgitta Rúnarsdóttir, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 418 liður 3
Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar nr. 61 frá 23. júní tekin til umfjöllunar og afgreiðslu.
Til máls tóku: Þuríður Lillý Sigurðardóttir og Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir.
Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar nr. 61 frá 23. júní er staðfest með 9 atkvæðum
Dagskrá
-
1. Breyting á deiliskipulagi Dalur 1, íþróttasvæði
Mál 2604231 Allur ferill málsins
Breyting á deiliskipulagi Dalur 1, íþróttasvæði. Skipulags- og framkvæmdanefnd frestar málinu þar sem öll gögn lágu ekki fyrir.
-
2. Deiliskipulag Leiru 1 Leirubakki 4 óveruleg breyting
Mál 2605211 Allur ferill málsins
Fyrir liggur beiðni frá Eskju um óverulega breytingu á deiliskipulagi þar sem leyfileg hámarksvegghæð á langhliðum byggingar er hækkuð úr 15 metrum í 16 metra. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir óverulega breytingu á deiliskipulagi og telur hana ekki hafa grenndaráhrif. Málinu er til bæjarstjórnar.
-
3. Grenndarkynning - hjólabraut ofan Mýrahverfið í Neskaupstað
Mál 2605020 Allur ferill málsins
Grenndarkynningu lokið, engar athugasemdir bárust. Skipulags- og framkvæmdanefnd staðfestir fyrir sitt leyti niðurstöðu grenndarkynningar og vísar málinu til bæjarstjórnar.
-
4. Byggingarleyfi Bakkagerði 11, 730 Reyðarfjörður
Mál 2606155 Allur ferill málsins
Umsókn um byggingarleyfi fyrir 8 íbúða fjölbýlishús við Bakkagerði 11, 730 Reyðarfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrirhugaðar framkvæmdir og felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.
-
5. Framkvæmdaleyfi efnistaka Dalsá, 751 Fáskrúðsfirði
Mál 2606151 Allur ferill málsins
Framkvæmdaleyfi efnistaka Dalsá, 751 Fáskrúðsfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd frestar málinu þar til frekari gögnum hefur verið skilað.
-
6. Bygging vatnsaflsvirkjunarinnar Fannardalsvirkjun
Mál 2606092 Allur ferill málsins
Kynning á fyrirhugaðri virkjun í Fannardal, 741 Norðfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar kynninguna og telur eðlilegt að framkvæmdaraðili vinni næst tilkynningu og greinargerð vegna tilkynningarskyldrar framkvæmdar samkvæmt lögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana. Þegar niðurstöður þeirrar vinnu liggja fyrir verður hægt að taka afstöðu til nauðsynlegra breytinga á aðalskipulagi og gerðar deiliskipulags vegna framkvæmdarinnar.
-
7. Greinargerð um framkvæmdir ársins
Mál 2604093 Allur ferill málsins
Farið yfir helstu framkvæmdir ársins 2026. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar ítarlega kynningu.
-
8. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2027
Mál 2603185 Allur ferill málsins
Vísað frá bæjarráði til nefnda og sviða Fjarðabyggðar endurskoðaðri tillögu að skipulagi vinnu við gerð fjárhagsáætlunar 2027 ásamt dagsetningum í ferlinu og felur þeim að hefja vinnu við áætlunargerðina til samræmis við sett tímamörk.
-
9. Starfs- og fjárhagsáætlun skipulags- og framkvæmdanefndar 2027
Mál 2606170 Allur ferill málsins
Starfs- og fjárhagsáætlun skipulags - og framkvæmdanefndar 2027. Til umræðu. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur sviðstjóra að vinna málið áfram.
-
10. Nefndaskipan í Fjarðabyggð 2026 - 2030
Mál 2605021 Allur ferill málsins
Undirnefndir kosnar af höfuðnefndum og bæjarráði. Fjallskilanefnd Skipulags- og framkvæmdanefnd kýs fimm fulltrúar og jafn margir til vara í fjallskilanefnd. Fjallskilanefnd er skipulags- og framkvæmdanefnd til ráðuneytis um fjallskil og afréttarmál. Hún skal fjalla um fjallskil og afréttarmál í umboði skipulags- og framkvæmdanefndar. Fundargerðir fjallskilanefndar skulu lagðar fyrir skipulags- og framkvæmdanefnd áður en þær fá fullnaðarafgreiðslu í bæjarstjórn. Skipulags- og framkvæmdanefnd leggur til eftirfarandi nefndarmenn:
Aðalmenn
Þuríður Lillý Sigurðardóttir
Steinn Björnsson
Guðný Harðardóttir
Sunna Júlía Þórðardóttir
Marsibil Erlendsdóttir
Varamenn
Arnór Ari Sigurðsson
Arnar Ingi Ármannsson
Þórhalla Ágústsdóttir
Gróa Jóhannsdóttir
Óðinn Logi Þórisson
-
11. Framkvæmdaleyfi hjólabraut
Mál 2604161 Allur ferill málsins
Umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir hjólabraut. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrirhugaðar framkvæmdir og felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi.