Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 84

31. maí 2011, kl. 17:00 til 19:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Steinþór Pétursson.

Þessi fundargerð á öðrum fundum

Dagskrá

  1. 1. Fundagerðir Hafnarsambands Íslands árið 2011

    Mál 1102072 Allur ferill málsins

    Fundargerð stjórnar Hafnasambands Íslands nr. 338 dags. 12. maí 2011. Kynnt.

  2. 2. Innleiðing á tilskipun 2005/65/EB hjá Fjarðabyggðarhöfnum

    Mál 1105121 Allur ferill málsins

    Bréf frá Siglingastofnun dags. 16. maí 2011 um tilskipun frá EB um eflingu siglingaverndar hafi verið innleidd í íslensk lög kynnt. Framkvæmdastjóra falið að vinna að málinu.

  3. 3. Strandflutningar

    Mál 1104177 Allur ferill málsins

    Fundargerð frá fundi sem haldinn var á Akureyri um flutningskostnað og strandflutninga. Kynnt.

  4. 4. Franski spítalinn - aðstaða

    Mál 1105174 Allur ferill málsins

    Erindi frá Minjavernd dags. 11. maí 2011 þar sem óskað er eftir aðkomu hafnarstjórnar að gerð bryggju fyrir framan franska spítalann. Hafnarstjórn felur framkvæmdastjóra að fylgjast með og vinna frekar að málinu.

  5. 5. Establishing a port forum in the North-Atlantic

    Mál 1105175 Allur ferill málsins

    Erindi frá Transportutvikling AS dags. 25. maí 2011 þar sem verið er að kanna áhuga hafna við Norður- Atlanshafið, Íslandi, Noregi, Færeyjum og Grænlandi, á að koma á fót samtökum hafna á svæðinu.  Hafnarstjórn lýsir áhuga á verkefninu og felur framkvæmdastjóra að svara erindinu samkvæmt því.

  6. 6. Fiskmarkaður Austurlands

    Mál 1105147 Allur ferill málsins

    Rætt um málefni Fiskmarkaðar Austurlands. Hafnarstjórn felur framkvæmdastjóra að afla frekari upplýsinga um hugsanlega sölu á hlut hafnarsjóðs í markaðnum.

  7. 7. Gamla bæjarbryggjan á Fáskrúðsfirði

    Mál 1105182 Allur ferill málsins

    Umfjöllun um gömlu bæjarbryggjun á Fáskrúðsfirði og flutning á elsta löndunarkrananum frá Stöðvarfirði til Fáskrúðsfjarðar. Hafnarstjórn samþykkir að flytja og setja upp elsta kranann frá Stöðvarfirði á nýju bæjarbryggjuna á Fáskrúðsfirði.  Í framhaldinu verði gamla bryggjan rifin og gengið frá landinu með grjótvörn.

  8. 8. Smábátahöfn Reyðarfirði

    Mál 1001100 Allur ferill málsins

    Drög að hugmyndum um yfirborðsfrágang við smábátahöfnina á Reyðarfirði. Hafnarstjórn skoðaði teikningar og gerði athugasemdir og málið sett áfram í frekari vinnslu.