Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 85

28. júní 2011, kl. 17:00 til 19:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Steinþór Pétursson.

Þessi fundargerð á öðrum fundum

Dagskrá

  1. 1. Aðalfundur Cruise Iceland 27. maí 2011

    Mál 1104022 Allur ferill málsins

    Fundargerð aðalfundar Cruise Iceland frá 27. maí 2011, ásamt ársreikningi 2010, ársskýrslu 2010 og fleiri gögnum. Kynnt.

  2. 2. Fundagerðir Hafnarsambands Íslands árið 2011

    Mál 1102072 Allur ferill málsins

    Fundargerð stjórnar Hafnasambands Íslands nr. 339 frá 9. júní 2011. Til kynningar.

  3. 3. Listaverkakaup við höfnina á Reyðarfirði

    Mál 1009038 Allur ferill málsins

    Erindi frá Ásdísi Jóhannsdóttur dags. 19. maí 2011 þar sem hún bíður hafnarsjóði að kaupa listaverk sem hún hefur hannað og hugsað fyrir höfnina á Reyðarfirði. Hafnarstjórn líst vel á hugmyndina sem slíka en telur ekki tímabært að setja upp listaverk við höfnina á Reyðarfirði fyrr en frágangi við höfnina er lokið.

  4. 4. Seatrade Europe sýning í Hamborg 2011

    Mál 1103187 Allur ferill málsins

    Erindi frá Íslandsstofu 23. júní 2011 varðandi þátttöku á Seatrade Hamborg og hugmynd um að senda sameiginlegan fulltrúa á sýninguna. Hafnarstjórn stendur við fyrri samþykkt sína um að senda sinn fulltrúa á sýninguna.

  5. 5. Seatrade Miami 2012

    Mál 1106155 Allur ferill málsins

    Tölvupóstur dags. 23. júni 2011, þar sem verið er að kanna þátttöku fyrirtækja í sýningunni Seatrade Miami 2012. Lagt er upp með möguleika breytt snið verði á þátttökunni þannig að nokkrir aðilar geta sameinast um einn fulltrúa á sýninguna. Hafnarstjórn samþykkti að senda sinn fulltrúa á sýninguna.

  6. 6. Undirbúningsvinna vegna komu skemmtiferðaskipa

    Mál 1005131 Allur ferill málsins

    Upplýsingar vegna undirbúnings að gerð upplýsingastiklum og námskeiðs fyrir leiðsögumenn og kostnaði við það, en námskeiðið er ætlað til að þjálfa fólk í leiðsögn ferðamanna við væntanlega komur skemmtiferðaskipa.  Hafnarstjórn samþykkir að láta gera stiklur sem nýst geta leiðsögumönnum á leið um Fjarðabyggð og sem námsefni á fyrirhuguðu námskeiði.

  7. 7. Gerð skýrslu um áhrif í Fjarðabyggð vegna tillagna að breytingum á fiskveiðistjórnunarkerfinu.

    Mál 1106101 Allur ferill málsins

    Gerð skýrslu um áhrif á Fjarðabyggð vegna tillagna um breytingu á fiskveiðistjórnunarkerfinu. Málinu vísað frá bæjarráði til kynningar í hafnarstjórn.  Kynnt.