Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 251

6. júlí 2011, kl. 16:00 til 11:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 97 liður 6

    Fundargerðir bæjarráðs teknar saman til umfjöllunar og kynningar.

Dagskrá

  1. 1. Fjárhagsleg endurskipulagning Eignarhaldsfélagsins Fasteignar hf

    Mál 1104081 Allur ferill málsins

    Fjármálastjóri var í símasambandi við fundinn og fór yfir minnisblað sitt frá 6.júlí. Bæjarráð Fjarðabyggðar hefur fengið kynningu á hugmyndum að rammasamkomulagi sem mögulega kann að nást á milli Eignarhaldsfélagsins Fasteignar hf. "Fasteign", lánardrottna félagsins, hluthafa og leigutaka. Bæjarráð samþykkir að haldið verði áfram samningsumleitunum á þeim forsendum  sem lagðar eru til grundvallar, með það að markmiði að ganga frá samningum í samræmi við þær.

  2. 2. Kynning á þjónustu Centra fyrirtækjaráðgjafar fyrir sveitarfélög

    Mál 1106189 Allur ferill málsins

    Bréf frá 28.júní er varðar kynningu Centra fyrirtækjaráðgjafar á þjónustu fyrirtækisins. Vísað til fjármálastjóra.

  3. 3. Franski spítalinn á Fáskrúðsfirði

    Mál 1104080 Allur ferill málsins

    Frá síðasta fundi. Framlögð ýmis gögn er snúa að Franska spítalanum, læknisbústaðnum og safninu Fransmenn á Íslandi. Vísað til atvinnu- og menningarnefndar.

  4. 4. Fyrirspurn um umhverfismál á Reyðarfirði

    Mál 1106170 Allur ferill málsins

    Bréf Ásmundar Ásmundssonar frá 24.júní er varðar slæma ásýnd í umhverfismálum á Reyðarfirði meðfram Ægisgötu að norðanverðu frá hringtorgi að brú yfir Búðará. Vísað til mannvirkjastjóra og umfjöllunar í eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.

  5. 5. Útgjaldamælingarkerfi

    Mál 1107007 Allur ferill málsins

    Unnið er að endurskoðun á gildandi laga- og reglugerðarákvæðum um Jöfnunarsjóð.  Fjarðabyggð hefur verið valið til þátttöku í vinnu við endurskoðunina og óskað er eftir leyfi til að styðjast við aðalbók vegna reksturs Fjarðabyggðar á árinu 2010. Bæjarráð veitir fjármálastjóra heimild til að gefa umbeðnar upplýsingar.

  6. 6. Skýrslan "Austurland - Austfirzk eining"

    Mál 1107005 Allur ferill málsins

    Skýrslan "Austurland - Austfirsk eining" lögð fram til kynningar. Skýrsluhöfundur Ólafur Áki Ragnarsson starfsmaður Þróunarfélags Austurlands leggur til að skýrslan verði tekin til umfjöllunar í sveitarstjórnum á Austurlandi og vísað að því loknu til umræðu og afgreiðslu á aðalfundi SSA. Bæjarráð vísar skýrslunni til fyrsta fundar í bæjarstjórn eftir sumarfrí 1.september nk.

  7. 7. Aðalfundur Fjarðaferðar ehf 2011 v.2010

    Mál 1106131 Allur ferill málsins

    Bæjarstjóri gerði grein fyrir aðalfundi Fjarðaferða sem haldinn var 29.júní. Lagður fram ársreikningur Fjarðaferða ehf. fyrir árið 2010.

  8. 8. Austfirsk eining - Fundargerðir 2011

    Mál 1104025 Allur ferill málsins

    Fundargerð Austfirskrar einingar nr. 7 frá 28.júní lögð fram.

  9. 9. Afmælisveisla ÚÍA - 9.júlí 2011

    Mál 1107010 Allur ferill málsins

    <DIV><P>Afmælisveisla ÚÍA vegna sjötíu ára afmælis sambandsins verður haldin í Tjarnargarðinum Egilsstöðum laugardaginn 9.júlí frá kl. 17:00 - 19:00. Bæjarráð samþykkir að styrkja ÚÍA um 250.000 kr. vegna 14. unglingalandsmóts UMFÍ sem haldið verður á Egilsstöðum 29. - 31.júlí og í tilefni af sjötíu ára afmæli sambandsins. Tekið af liðnum óráðstafað 21-69-.  Fulltrúi frá bænum mun sækja afmælisveisluna. </P></DIV>

  10. 10. Gerð skýrslu um áhrif í Fjarðabyggð vegna tillagna að breytingum á fiskveiðistjórnunarkerfinu.

    Mál 1106101 Allur ferill málsins

    Málið áður á dagskrá bæjarráðs 22.júní.  Lagður fram samningur við KPMG um gerð skýrslu um áhrif í Fjarðabyggð vegna tillagna að breytingum á fiskveiðistjórnunarkerfinu. Bæjarráð samþykkir samninginn.

  11. 11. Fundargerðir félagsmálanefndar 2011

    Mál 1101152 Allur ferill málsins

    Fundargerð félagsmálanefndar nr.15 frá 30.maí og nr.16 frá 14.júní lagðar fram.

  12. 12. Fundargerðir barnaverndarnefndar 2011

    Mál 1101153 Allur ferill málsins

    Fundargerð barnaverndarnefndar nr. 14 frá 27.júní lögð fram.

  13. 13. Hafnarstjórn - 85

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð hafnarstjórnar nr. 85 frá 28.júní lögð fram.