Bæjarráð, fundur 250
28. júní 2011, kl. 16:00 til 18:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 97 liður 5
Fundargerðir bæjarráðs teknar saman til umfjöllunar og kynningar en bæjarráði var falið umboð bæjarstjórnar meðan á sumarleyfi bæjarstjórnar stóð.Til máls tóku: Valdimar O Hermannsson, Páll Björgvin Guðmundsson, Eydís Ásbjörnsdóttir, Elvar Jónsson, Jón Björn Hákonarson.
Dagskrá
-
1. Franski spítalinn á Fáskrúðsfirði
Mál 1104080 Allur ferill málsins
Þröstur Ólafsson stjórnarformaður og Þorsteinn Bergsson framkvæmdastjóri Minjaverndar sátu þennan lið fundarins. Rætt um endurbyggingu Franska spítalans á Fáskrúðsfirði og ýmislegt er snýr að verkefninu. Bæjarstjóra falið að vinna málið áfram og stjórnsýslustjóra falið að leggja fyrir bæjarráð greinargerð um Franska spítalann.
-
2. Nýting frystihússins á Stöðvarfirði undir menningarstarfsemi
Mál 1008038 Allur ferill málsins
Framlagt uppfært minnisblað stjórnsýslustjóra frá 6.júní um skilmála og kvaðir vegna Bankastrætis 1 Stöðvarfirði. Bæjarráð samþykkir tillögu í minnisblaði.
-
3. Aðalfundur Fjarðaferðar ehf 2011 v.2010
Mál 1106131 Allur ferill málsins
Aðalfundur Fjarðaferða verður haldinn miðvikudaginn 29.júní kl.17:00 í Safnahúsinu í Neskaupstað. Formaður atvinnu- og menningarnefndar og bæjarstjóri munu sækja fundinn.
-
4. Beiðni um lán á húsnæði vegna Eistnaflugs
Mál 1106154 Allur ferill málsins
Beiðni Hákonar Guðröðarsonar frá 21.júní um að Fjarðabyggð útvegi sýningarhaldi, í tengslum við Eistnaflug, endurgjaldslaus afnot af gistirými. Bæjarráð tekur vel í erindið og felur ferða- og menningarfulltrúa að vera hópnum innan handar um útvegun á húsnæði.
-
5. Urðun sorps í Þernunesi
Mál 1106098 Allur ferill málsins
Bréf Fljótsdalshéraðs frá 16.júní þar sem óskað er eftir leyfi Fjarðabyggðar til að urða sorp í landi Þernuness til næstu tveggja ára. Bæjarráð samþykkir framlagða tillögu mannvirkjastjóra frá 24.júní og felur bæjarstjóra og mannvirkjastjóra að vinna málið áfram.
-
6. Þjóðahátíð Austfirðinga 2011
Mál 1106085 Allur ferill málsins
Þjóðahátíð verður haldin 24.september í Nesskóla. Bæjarráð samþykkir tillögu stjórnsýslustjóra frá 24.júní um að veittur verði styrkur sem nemur leigu og þrifum í Nesskóla.
-
7. Kjaramál stjórnenda
Mál 1106183 Allur ferill málsins
Stjórnsýslustjóri vék af fundi. Bæjarráð samþykkir samningsbundna breytingu á launatöflu stjórnenda og fyrirkomulag frammistöðumats.