Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2011

Skýrslan "Austurland - Austfirzk eining"

Mál 1107005 Fyrst á dagskrá 6. júlí 2011, síðast 1. september 2011. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2011

    Bæjarráð, fundur 251 liður 6

    Skýrslan "Austurland - Austfirsk eining" lögð fram til kynningar. Skýrsluhöfundur Ólafur Áki Ragnarsson starfsmaður Þróunarfélags Austurlands leggur til að skýrslan verði tekin til umfjöllunar í sveitarstjórnum á Austurlandi og vísað að því loknu til umræðu og afgreiðslu á aðalfundi SSA. Bæjarráð vísar skýrslunni til fyrsta fundar í bæjarstjórn eftir sumarfrí 1.september nk.

  2. Bæjarstjórn, fundur 97 liður 1

    Forseti bæjarstjórnar fylgdi skýrslunni úr hlaði og lagði fram sameiginlega bókun bæjarstjórnar. Bæjarstjórn Fjarðabyggðar fagnar framkominni skýrslu frá starfshópi SSA, Austurland-Austfirzk Eining enda dregið margt fram í henni af kostum og göllum við sameiningu Austurlands í eitt sveitarfélag. Bæjarstjórn Fjarðabyggðar telur þó rétt á þessum tímapunkti að frekari vinna við hugmynd um sameinað Austurland  í eitt sveitarfélag verði lögð til hliðar nú  enda virðist áhugi við við slíka sameiningu vera misjafn hjá sveitarfélögum hér austanlands og einnig hjá ríkisvaldinu. Ljóst var strax í upphafi þessarar hugmyndar að ef hún ætti að verða að veruleika þyrfti ríkisvaldið að koma að henni með afgerandi hætti með samgöngubótum og flutningum verkefna. Reynsla hins sameinaða sveitarfélags Fjarðabyggðar af efndum samgöngubóta í kjölfar sameiningar  árin 1998 og 2006 er ekki sú að ástæða sé til að fara í frekari sameiningu nú á jafnstóru landsvæði og Austurland er. Enda er grundvallarforsenda slíkrar sameiningar víðtækar samgöngubætur. Bæjarstjórn Fjarðabyggðar telur þó mikilvægt að  sveitarfélögin á Austurlandi hafi áfram með sér gott samstarf og samvinnu á sem flestum sviðum og er SSA grundvöllur slíks samstarfs áfram. Bæjarstjórn Fjarðabyggðar mun því vísa til álits þessa við afgreiðslu skýrslunar á komandi aðalfundi SSA sem haldinn verður 30.sept -1.október næstkomandi.Til máls tóku:  Elvar Jónsson, Valdimar O Hermannsson, Páll Björgvin Guðmundsson, Jens Garðar Helgason, Jón Björn Hákonarson, Guðmundur Þorgrímsson.