Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 83

29. apríl 2011, kl. 16:30 til 19:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Steinþór Pétursson.

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 243 liður 13

    Fundargerð hafnarstjórnar nr. 83 frá 2.maí lögð fram.

  • Bæjarstjórn, fundur 93 liður 9

    Til máls tóku: Guðmundur Þorgrímsson, Jón Björn Hákonarson, Elvar Jónsson, Jens Garðar Helgason, Sævar Guðjónsson.Staðfest af bæjarstjórn með 8 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Olíubirgðastöð í Reyðarfirði

    Mál 2009-02-13-215 Allur ferill málsins

    Bæjarráð hefur vísað til umsagnar hjá hafnarstjórn erindi Mannvits dags. 20. apríl 2011 þar sem óskað er eftir að Fjarðabyggð verði aðili að áformayfirlýsingu um uppbyggingu olíubirgðastöðvar.  Á fundinn mættu fulltrúar frá Mannviti, Haukur Óskarsson og Valgeir Kjartansson.  Kynntu þeir fyrir nefndarfólki vinnu Mannvits við undirbúning og skoðun á að koma á fót 450.000 rúmmetra olíubirgðastöð við Eyri í Reyðarfirði. Hauki og Valgeiri var síðan þökkuð koman.Hafnarstjórn fagnar þeim áhuga sem er til staða á frekari uppbyggingu hafnsækinnar starfsemi og atvinnutækifæra í Fjarðabyggð.  Hafnarstjórn hvetur bæjarstjórn jafnframt til að vinna að málinu með hlutaðeigandi aðilum,  meðal annars með það fyrir augum að sjá hvort af þessu geti orðið og eins með hvaða hætti aðkoma þess yrði að lóðamálum og gerð hafnarmannvirkja.

  2. 2. Sjókvíaeldi í Reyðarfirði

    Mál 1103025 Allur ferill málsins

    Bæjarráð vísaði á fundum sínum nr. 241 þann 12. apríl og 242 þann 26. apríl sl.  til umsagnar hjá hafnarstjórn erindi frá Löxum ehf., dagsett 11. apríl 2011 og bréfi Skipulagsstofnunar dags. 15. apríl 2011. Óskað er eftir umsögn hafnarstjórnar, eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar og atvinnu- og menningarnefndar vegna tilkynningar um eldi á 6000 tonnum af laxi í sjókvíum í Reyðarfirði.  <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" /> Lögð fram tillaga að umsögn Fjarðabyggðar til skipulagsstofnunar ásamt drögum að yfirlýsingu frá Laxar ehf. Umsögnin tekin til umfjöllunar. Nefndin samþykkir umsögn og vísar henni til bæjarráðs til afgreiðslu.

  3. 3. Endurnýjun á umsókn um lóð - Hraun 12

    Mál 1104070 Allur ferill málsins

    Bréf frá Eimskipafélagi Íslands dags. 7. apríl 2011 þar sem félagið endurnýjar umsókn sína um lóð nr. 12 við Mjóeyrarhöfn. Hafnarstjórn samþykkir fyrir sitt leiti að endurúthluta lóð nr 12 við Hraun til Eimskipafélagsins og vísar erindinu til afgreiðslu hjá bæjarráði.

  4. 4. Aðalfundaboð Fiskmarkaðarins 8.apríl 2011 og Ársreikningur 2010

    Mál 1103164 Allur ferill málsins

    Fundargerð aðalfundar Fiskmarkaðar Austurlands frá 8. apríl 2011 ásamt ársreikningi 2010. Kynnt.

  5. 5. Fundagerðir Hafnarsambands Íslands árið 2011

    Mál 1102072 Allur ferill málsins

    Fundargerðir stjórnar Hafnasambands Íslands nr. 336 og 337 frá í mars 2011 kynntar.

  6. 6. Aðalfundur Cruise Iceland 27. maí 2011

    Mál 1104022 Allur ferill málsins

    Boð á aðalfund Cruise Iceland 27. maí 2011. Hafnarstjórn felur framkvæmdastjóra að sækja fundinn ásamt ferða og menningafulltrúa og verkefnisstjóra skemmtiferðaskipaverkefnisins

  7. 7. Þátttaka í Miami 2011

    Mál 1009200 Allur ferill málsins

    Minnisblað dags. 3. apríl 2011 frá ferð ferða- og menningamálafulltrúa og verkefnisstjóra skemmtiferðaskipaverkefnis á sölusýningu skemmtiferðaskipa í Miami í mars síðast liðnum. Kynnt.

  8. 8. Siglingavernd - Mjóeyrarhöfn

    Mál 1003003 Allur ferill málsins

    Fyrir fundinum lá minnisblað vegna siglingaverndar við Mjóeyrarhöfn. Framkvæmdastjóri gerði grein fyrir málinu og hugmynd um úrbætur og kostnað því fylgjandi. Hafnarstjórn samþykkir að breyta hliðunum og felur framkvæmdastjóra að vinna í málinu.

  9. 9. Aðstaða til að láta fjara undan bátum

    Mál 1101288 Allur ferill málsins

    Framhald fyrra erindis frá Gunnari Hjaltasyni varðandi aðstöðu til að láta fjara undan bátum. Óskar hann eftir að fá að útbúa aðstöðuna sjálfur innan við vöruhöfnina á Reyðarfirði.  Í skipulagi fyrir hafnarsvæði hafnanna er ekki gert ráð fyrir aðstöðu sem þessari og bent er á að við smábátahafnir í Fjaraðbyggð er upptökurampar. Hafnarstjórn hafnar erindinu.

  10. 10. Beiðni um styrk vegna gönguvikunar 2011

    Mál 1104079 Allur ferill málsins

    Bréf dags. 13. apríl 2011 frá undirbúningshóp fyrir gönguviku í Fjarðabyggð 2011 þar sem óskað er eftir styrk að upphæð 100 þ.kr. og fá lógó í bækling, á veggspjöld og auglýsingar hátíðarinnar. Hafnarstjórn hafnar erindinu.

  11. 11. Framkvæmdir við bæjarbryggju á Norðfirði

    Mál 0905163 Allur ferill málsins

    Vegna mikilvægis þess að koma bæjarbryggjunni í notkun að nýju ákvað hafnarstjórn að ráðast í bráðabirgðaviðgerð á bryggjunni  fyrir sumarið.  Í samræmi við fyrri bókun er það ákvörðun hafnarstjórnar að fara í endurgerð bryggjunnar í sem næst upprunalegri mynd en haldið verði áfram vinnu deiliskipulags við umhverfi bryggjunasvæðisins.