Bæjarráð, fundur 243
3. maí 2011, kl. 08:30 til 11:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 93 liður 3
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman. Staðfest af bæjarstjórn með 8 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Sjókvíaeldi í Reyðarfirði
Mál 1103025 Allur ferill málsins
<DIV><DIV>Þennan lið fundarins sátu framkvæmdastjóri hafna og mannvirkjastjóri. Málið var til umfjöllunar á fundum í atvinnu- og menningarnefnd, eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd og hafnarstjórn 2.maí.  Fyrir liggur bréf Skipulagsstofnunar frá 15.apríl 2011 þar sem óskað er umsagnar Fjarðabyggðar, í samræmi við 6.gr. laga nr. 106/2000 m.s.b. og 11.gr. reglugerðar nr. 1123/2005 um mat á umhverfisáhrifum, hvort og á hvaða forsendum 6.000 tonna sjókvíaeldi á laxi í Reyðarfirði skuli háð mati á umhverfisáhrifum.  Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi umsögn til Skipulagsstofnunar. Jafnframt lögð fram drög að yfirlýsingu Laxa ehf. </DIV></DIV>
-
2. Olíubirgðastöð í Reyðarfirði
Mál 2009-02-13-215 Allur ferill málsins
Þennan lið fundarins sat framkvæmdastjóri hafna. Málið var til umfjöllunar á fundum í atvinnu- og menningarnefnd, eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd og hafnarstjórn 2.maí. Fjallað um umsagnir nefnda. Bæjarráð felur bæjarstjóra og framkvæmdastjóra hafna að afla frekari upplýsinga um verkefnið í samráði við Mannvit.
-
3. Snjóflóðavarnir Tröllagili Norðfirði.
Mál 0903071 Allur ferill málsins
Bréf Ara Daníels Árnasonar frá 25.apríl er varðar spurningar og athugasemdir vegna framkvæmda við snjóflóðavarnir í Tröllagili.Stefnt er á að halda kynningarfund um framkvæmdirnar í næstu viku. Bæjarráð felur mannvirkjastjóra að svara erindi.
-
4. 725 Mjóafjörður - Tilboð í hús
Mál 1103168 Allur ferill málsins
Mannvirkjastjóri sat þennan lið fundarins. Rætt um stefnu Fjarðabyggðar vegna sölu húsnæðis í eigu bæjarins Ákvörðun um sölu á húsnæði í Mjóafirði frestað til næsta fundar. Mannvirkjastjóra falið að ræða við tilboðsgjafa.
-
5. Útsending bæjarstjórnarfunda
Mál 1104160 Allur ferill málsins
Minnisblað mannauðsstjóra frá 20.apríl er varðar endurnýjun á tækjabúnaði vegna útsendinga frá bæjarstjórnarfundum. Bæjarráð samþykkir tillögur í minnisblaði og felur mannauðsstjóra afgreiðslu. Kostnaður takist af liðnum 21-01-
-
6. Afmæli Jóns Sigurðssonar
Mál 1104136 Allur ferill málsins
Samband íslenskra sveitarfélaga hvetur sveitarfélög til að minnast þess að 17.júní 2011 eru 200 ár liðin frá fæðingu Jóns Sigurðssonar. Vísað til atvinnu- og menningarnefndar.
-
7. Umsókn til bæjarráðs um kaup á styrktarlínu
Mál 1104145 Allur ferill málsins
Beiðni um styrk vegna gerðar heimildarmyndarinnar "Norð Vestur - seinni hluti" er fjallar um náttúruhamfarir. Bæjarráð hafnar erindi.
-
8. Austfirzk eining - Fundargerðir 2011
Mál 1104025 Allur ferill málsins
Fundargerð nr. 5 frá 26.apríl lögð fram til kynningar. Málefni Austfirskrar einingar rædd.
-
9. Kynnisferð sveitarstjórnarmanna til Brussel 5.-9.júní 2011
Mál 1104170 Allur ferill málsins
Bréf sambands íslenskra sveitarfélaga frá 27.apríl. Bæjarráð mun ekki senda fulltrúa í ferðina.
-
10. Fundargerðir barnaverndarnefndar 2011
Mál 1101153 Allur ferill málsins
Fundargerðir barnaverndarnefndar nr. 10 og 11 frá 29.mars og 19.apríl lagðar fram.
-
11. Fræðslu- og frístundanefnd - 13
Fundargerð fræðslu- og frístundanefndar nr. 13 frá 27.apríl lögð fram.
-
12. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 20
Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar nr. 20 frá 2.maí lögð fram.
-
13. Hafnarstjórn - 83
Fundargerð hafnarstjórnar nr. 83 frá 2.maí lögð fram.
-
14. Atvinnu- og menningarnefnd - 13
Fundargerð atvinnu- og menningarnefndar nr. 13 frá 2.maí lögð fram.