Bæjarráð, fundur 244
11. maí 2011, kl. 08:30 til 11:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.
Dagskrá
-
1. 725 Mjóafjörður - Tilboð í hús
Mál 1103168 Allur ferill málsins
Minnisblað fjármálastjóra frá 6.maí og áður framlagt minnisblað mannvirkjastjóra frá 4.apríl. Rætt um sölu húsnæðis í Mjóafirði. Bæjarráð hafnar tilboði í Þinghólsveg 3 Mjóafirði, þar sem ekki er fjárheimild á fjárhagsáætlun 2011 til að greiða niður áhvílandi lán. Sölu húsnæðis í Mjóafirði vísað til umræðu í fjárhagsáætlunarvinnu 2012.
-
2. Afnot af aðstöðu í húsnæði eldri borgara á Stöðvarfirði fyrir bankaþjónustu
Mál 1012141 Allur ferill málsins
Bréf Landsbankans frá 27.apríl þar sem óskað er eftir áframhaldandi afnotum af húsnæði félags eldri borgara á Stöðvarfirði fyrir bankaþjónustu. Framlagt minnisblað stjórnsýslustjóra frá 11.maí. Bæjarráð samþykkir beiðni Landsbankans og felur mannvirkjastjóra að ganga frá áframhaldandi leigusamningi um afnot af húsnæði félags eldri borgara á Stöðvarfirði.
-
3. Franskasafnið á Fáskrúðsfirði sumarið 2011
Mál 1104080 Allur ferill málsins
Umræða um framtíð safnsins. Stjórnsýslustjóra falið að vinna frekar að málinu.
-
4. 17.júní 2011
Mál 1101041 Allur ferill málsins
Kostnaðaráætlun Ungmennafélagsins Vals frá 3.maí vegna framkvæmdar hátíðahalda 17.júní 2011. Bæjarráð samþykkir kostnaðaráætlun ungmennafélagsins, felur ferða- og menningarfulltrúa útfærslu í samráði við Ungmennafélagið Val og að minnast sérstaklega þess að 200 ár eru liðin frá fæðingu Jóns Sigurðssonar. Bæjarráð vísar jafnframt framkvæmd 17.júní 2012 til frekari útfærslu í atvinnu- og menningarnefnd.
-
5. Framkvæmdaráð SSA - Fundargerð 8.apríl 2011
Mál 1105017 Allur ferill málsins
Fundargerð frá 8.apríl lögð fram til kynningar. Bæjarráð tekur undir ósk framkvæmdaráðs SSA um að ríkisstjórn Íslands fundi á Austurlandi með austfirskum sveitarstjórnarmönnum.
-
6. Atvinnuleysistölur fyrir Austurland 2011
Mál 1101043 Allur ferill málsins
Samantekt á atvinnuástandi í Fjarðabyggð í febrúar og mars lögð fram til kynningar.
-
7. Beiðni um heimild til ráðningar í afleysingarstarf á félagsþjónustusviði vegna málefna fatlaðs fólks 2011
Mál 1104166 Allur ferill málsins
Minnisblað félagsmálastjóra frá 26.apríl. Bæjarráð heimilar ráðningu á félagsþjónustusvið samkvæmt minnisblaði og felur félagsmálastjóra að auglýsa starfið.
-
8. Reglur um líkamsræktarstöðvar sem reknar eru af Fjarðabyggð
Mál 1101291 Allur ferill málsins
Bæjarstjórnarfundur 5.maí vísaði máli til bæjarráðs. Rætt um fyrirkomulag á afslætti íþróttafélaga o.fl. í líkamsræktarstöðvunum. Bæjarráð vísar reglum um líkamsræktarstöðvar og viðmiðum, til frekari umræðu í fræðslu- og frístundanefnd, á grundvelli athugasemda sem bárust við vinnslu málsins.
-
9. Stjórnarfundir Lífeyrissjóðs Neskaupstaðar 2011
Mál 1104083 Allur ferill málsins
Fundargerð stjórnarfundar 27.apríl lögð fram til kynningar.
-
10. Austfirskar stoðstofnanir
Mál 1104003 Allur ferill málsins
Bæjarstjóri fór yfir stöðu mála er varðar vinnuhóp um Austfirskar stoðstofnarnir.
-
11. Starfsendurhæfing Austurlands - framtíð starfsemi
Mál 1007144 Allur ferill málsins
Bréf formanns stjórnar StarfA frá 9.maí, til bæjarstjóra Fjarðabyggðar og Fljótsdalshéraðs, er varðar tillögu að tímabundinni lausn fyrir starfsemi StarfA.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />Umræða um málið og því frestað. Bæjarstjóra falið að skoða málið áfram og fjalla um á næsta fundi.
-
12. Heimsókn Norðmanna um sjómannadagshelgina 5.-6.júní 2011
Mál 1105079 Allur ferill málsins
Rætt um fyrirkomulag heimsóknar frá Vesteralen í Noregi og móttöku bæjarstjórnar. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
-
13. Fundargerðir barnaverndarnefndar 2011
Mál 1101153 Allur ferill málsins
Fundargerð barnaverndarnefndar nr. 12 frá 3.maí lögð fram.