Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 245

17. maí 2011, kl. 08:30 til 11:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Dagskrá

  1. 1. Starfsendurhæfing Austurlands - framtíð starfsemi

    Mál 1007144 Allur ferill málsins

    Bæjarstjóri fór yfir stöðu mála. Lögð fram skýrsla um framtíð Starfsendurhæfingar Austurlands (StarfA) auk minnisblaðs félagsmálastjóra frá 16.maí og samantektar framkvæmdastjóra StarfA yfir stöðu mála í Fjarðabyggð.  Í bréfi Sverris Mars Albertssonar  formanns stjórnar StarfA frá 9.maí er óskað eftir fjárframlagi frá Fjarðabyggð til þess að koma að bráðavanda StarfA. Bæjarráð samþykkir að veita fjárframlag  eða lán til StarfA allt að 1 milljón, vísar ákvörðun til afgreiðslu hjá félagsmálastjóra og að málið verði kynnt fyrir félagsmálanefnd. Skilyrði fyrir fjárveitingunni er að aðrir sem að lausn bráðavandands koma samþykki að greiða framlag og StarfA muni þegar í stað finna leiðir til þess að rekstur verði áfram tryggður.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

  2. 2. 730 Fjarðabyggð, Ægisgata 6

    Mál 1103085 Allur ferill málsins

    Bréf Machinery ehf. frá 9.maí vegna Ægisgötu 6 Reyðarfirði. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd lagði til við bæjarráð á fundi 12.maí að mannvirkjastjóra verði falið að fylgja eftir fyrri ákvörðun um að byggingar sem heimilað var að risu árið 2005 verði fjarlægðar og færðar í fyrra horf. Bæjarráð er sammála ákvörðun eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar um að húsin víki, enda samræmast fyriráætlanir, sem raktar eru í bréfi Machinery, ekki aðalskipulagi og þeirri ásýnd sem mörkuð hefur verið með miðbæ Reyðarfjarðar.

  3. 3. Endurfjármögnun lána 2011

    Mál 1103167 Allur ferill málsins

    Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra og fjármálastjóra að ganga til samninga við Íslandsbanka um skuldbreytingu lána sbr. greinargerð fjármálastjóra frá 16.maí.  Um er að ræða tilfærslu erlendra lána að fjárhæð 893 miljónir króna yfir í íslenskar krónur. Skuldbreytingunni er vísað til endurskoðunar fjárhagsáætlunar 2011 og til afgreiðslu bæjarstjórnar.  <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

  4. 4. Snjóflóðavarnir Tröllagili Norðfirði.

    Mál 0903071 Allur ferill málsins

    Lagður fram til kynningar verksamningur við Héraðsverk en tilboð í verkið var samþykkt í bæjarráði 5.apríl og staðfest í bæjarstjórn 14.apríl sl.

  5. 5. Boðun á aðalfund Menningarráðs Austurlands 2011

    Mál 1105101 Allur ferill málsins

    Aðalfundur Menningarráðs Austurlands verður haldinn 14.júní á Djúpavogi. Kosið verður til stjórnar. Máli vísað til atvinnu- og menningarnefndar.

  6. 6. Samgönguáætlun og sóknaráætlanir landshluta

    Mál 1105077 Allur ferill málsins

    Samgönguþing verður haldið fimmtudaginn 19.maí í Reykjavík. Fulltrúa af mannvirkjasviði falið að sækja fundinn.

  7. 7. AST - Fundargerðir framkvæmdaráðs

    Mál 1104003 Allur ferill málsins

    Lagðar fram til kynningar sjö fundargerðir vinnufunda framkvæmdaráðs AST ( Austfirskar stoðstofnanir ) frá 3.2.2011, 15.2.2011, 22.2.2011, 17.3.2011, 7.4.2011, 20.4.2011, 27.4.2011og þrjár fundargerðir vinnuhóps um verkefnið frá 16.11.2010, 26.1.2011 og 5.5.2011.

  8. 8. Fundargerð Atvinnuþróunarsjóðs Austurlands frá 4.apríl 2011

    Mál 1105100 Allur ferill málsins

    Fundargerð frá 4.apríl lögð fram til kynningar. Í fundargerðinni er skorað á aðildarsveitarfélög að greiða framlag til sjóðsins.

  9. 9. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 21

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar nr. 21 frá 12.maí lögð fram.