Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirEigna-, skipulags- og umhverfisnefnd

Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 131

9. nóvember 2015, kl. 16:00 til 00:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Guðmundur Elíasson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, formaður
  • Svanhvít Yngvadóttir, aðalmaður
  • Einar Már Sigurðarson, aðalmaður
  • Esther Ösp Gunnarsdóttir, aðalmaður
  • Dýrunn Pála Skaftadóttir, varamaður
  • Guðmundur Elíasson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 452 liður 15

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar nr. 131, lögð fram til kynningar.

  • Bæjarstjórn, fundur 190 liður 3

    Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson, Einar Már Sigurðarson, Kristín Gestsdóttir, Dýrunn Pála Skaftadóttir.

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 9. nóvember s.l. staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. 735 Ofanflóðvarnir í Hlíðarendaá

    Mál 1406056 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar fundargerð 5. verkfundar sem haldinn var 30. október 2015.

  2. 2. Breyting á áningastað við Kirkjuból

    Mál 1511039 Allur ferill málsins

    Lagður fram tövlupóstur frá Vegagerðinni, dagsettur 30. október 2015, varðandi breytingu á áningastað við Kirkjuból.

    Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir fyrir sitt leyti að áningastaðurinn verði færður eins og óskað er eftir og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að vinna málið áfram í samráði við Vegagerðina.

  3. 3. Ofanflóðavarnir, Nesgil og Bakkagil - Norðfjörður. Beiðni um umsögn

    Mál 1511004 Allur ferill málsins

    Lagt fram bréf frá Skipulagsstofnun, dagsett 29. október 2015, þar sem óskað er umsagnar um tillögu að matsáætlun ofanflóðavarna neðan Nes- og Bakkagils á Norðfirði.

    Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd gerir ekki athugasemdir við matsáætlunina.

  4. 4. Ofanflóðavarnir, Urðarbotn og Sniðgil - Norðfjörður - beiðni um umsögn

    Mál 1511005 Allur ferill málsins

    Lagt fram bréf frá Skipulagsstofnun, dagsett 29. október 2015, þar sem óskað er umsagnar um tillögu að matsáætlun ofanflóðavarna neðan Urðarbotna og Sniðgils á Norðfirði.

    Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd gerir ekki athugasemdir við matsáætlunina.

  5. 5. Skilti og merkingar

    Mál 1508030 Allur ferill málsins

    Farið yfir skilti og merkingar í Fjarðabyggð.

    Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd felur mannvirkjastjóra að ræða við Vegagerðina um upplýsingaskilti og jafnframt sendir erindið til umfjöllunar í menningar- og safnanefnd. Nefndin samþykkir að í framkvæmdaáætlun fyrir árið 2016 verði farið í frekari merkingar.

  6. 6. Skipulags- og öryggismál á Heiðarvegi 7

    Mál 1510042 Allur ferill málsins

    Lagður fram tölvupóstur frá Aðalheiði Vilbergsdóttir, dagsettur 6. október 2015, varðandi skipulags- og öryggismál á Heiðarvegi. Tekið fyrir á 129. fundi ESU.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd fór yfir tillögu mannvirkjastjóra að lausn málsins og samþykkir hana fyrir sitt leyti. Nefndin felur honum að vinna málið áfram.

  7. 7. Steypuveggur við Kvíabólsstíg 4

    Mál 1409192 Allur ferill málsins

    Lagt fram bréf frá Sigga Jenssyni varðandi skemmdir á vegg af völdum snjóruðnings.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur mannvirkjastjóra að svara bréfritara.

  8. 8. Stofnun starfshóps um göngu- og hjólreiðastíga

    Mál 1510014 Allur ferill málsins

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd mun taka að sér hlutverk vinnuhóps um göngu- og hjólreiðastíga og mun leita umsagna sem víðast. Nefndin felur mannvirkjastjóra að hefja vinnu við kortlagningu stíga í Fjarðabyggð.

  9. 9. Umsókn um leyfi til að setja upp minigolfvöll

    Mál 1510199 Allur ferill málsins

    Erindi íbúasamtaka á Reyðarfirði þar sem sótt er um leyfi til að setja upp minigolfvöll og jafnframt að Fjarðabyggð útvegi starfsmann til að aðstoða við uppsetningu.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hafnar erindinu en felur mannvirkjastjóra að ræða við fulltrúa íbúasamtakana um aðrar hugsanlegar staðsetningar.

  10. 10. Þjónustuhús við Sómastaði

    Mál 1506181 Allur ferill málsins

    Lögð fram gögn frá Þjóðminjasafni Íslands, dagsett 5. nóvember 2015, varðandi þjónustuhús og aðstöðuhús fyrir vörð við Sómastaði.

    Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir framlagðar tillögur og felur mannvirkjastjóra að vinna málið áfram.

  11. 11. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2016

    Mál 1506139 Allur ferill málsins

    Lagt fram bréf bæjarstjóra til eigna- skipulags- og umhverfisnefndar er varðar fjárhagsáætlun 2016.

    Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd ræddi tillögurnar, fól mannvirkjastjóra að vinna málið áfram og mun fjalla áfram um það á næsta fundi nefndarinnar.