Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirEigna-, skipulags- og umhverfisnefnd

Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 124

17. ágúst 2015, kl. 16:30 til 00:00, í Egilsbraut 1, Neskaupstað. Fundargerð ritaði Guðmundur Elíasson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, formaður
  • Ragnar Sigurðsson, varaformaður
  • Svanhvít Yngvadóttir, aðalmaður
  • Einar Már Sigurðarson, aðalmaður
  • Esther Ösp Gunnarsdóttir, aðalmaður
  • Guðmundur Elíasson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 440 liður 12

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 124 frá 17. ágúst 2015, lögð fram til kynningar.

  • Bæjarstjórn, fundur 184 liður 8

    Til máls tóku

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 124 frá 17.ágúst 2015, samþykkt með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. 740 Þiljuvellir - Umsókn um byggingarlóð

    Mál 1505157 Allur ferill málsins

    Lögð fram lóðarumsókn Guðmundar Elíassonar fh. Fjarðabyggðar, dagsett 27. maí 2015, þar sem sótt er um lóðina Þiljuvelli 13 á Norðfirði. Flytja á Gamla Lúðvíkshúsið á lóðina.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir, fyrir sitt leyti, að úthluta lóðinni að Þiljuvöllum 13 og vísar umsókninni til bæjarráðs til endanlegrar afgreiðslu.

  2. 2. 755 - Deiliskipulag Óseyrar, Stöðvarfirði

    Mál 1211164 Allur ferill málsins

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir fyrir sitt leyti deiliskipulag Óseyrar í Stöðvarfirði, skipulagsuppdráttur með greinargerð, dags. 15. maí 2015.

    Málsmeðferð verði í samræmi við 42. gr. skipulagslaga

    Endanlegri afgreiðslu er vísað til bæjarstjórnar

  3. 3. Bílastæði við Grunnskólann á Stöðvarfirði

    Mál 1507095 Allur ferill málsins

    Lagt fram bréf Björns Hafþórs Guðmundssonar, dagsett 17. júlí 2015, þar sem óskað er eftir afstöðu nefndarinnar til þess að gera bílastæði fyrir Grunnskóla Stöðvarfjarðar neðan Heiðmarkar 1.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd þakkar erindið en vekur athygli bréfritara á að gert er ráð fyrir bílastæðum utan við skólann.

  4. 4. Breyting á viðmiðunarreglum Kirkjugarðaráðs og Sambands íslenskra sveitarfélaga

    Mál 1508001 Allur ferill málsins

    Framlagðar til kynningar breytingar á viðmiðunarreglum Kirkjugarðaráðs og Sambands íslenskra sveitarfélaga vegna framkvæmda við kirkjugarða.

  5. 5. Lóðamörk við Strandgötu 95 og Strandgötu 97; 735

    Mál 1507071 Allur ferill málsins

    Lagt fram bréf Egils Helga Árnasonar f.h. eigenda Strandgötu 95 og 97 á Eskifirði, vegna lóðamarka. Óskað er eftir stækkun lóðarinnar Strandgötu 95 til austurs að lóð Strandgötu 97.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur skipulagsfulltrúa að vinna málið frekar milli funda.

  6. 6. Mat á umhverfisáhrifum. Reglugerð. C-flokkur

    Mál 1508002 Allur ferill málsins

    Birt hefur verið ný reglugerð um mat á umhverfisáhrifum, nr. 660/2015, sem hefur að geyma ákvæði um framkvæmdir í flokki C. Í reglugerðinni eru þau nýmæli að sveitarstjórn tekur ákvörðun um hvort framkvæmd, sem háð er framkvæmdaleyfi sveitarstjórnar eða byggingarleyfi byggingarfulltrúa samkvæmt skipulagslögum eða lögum um mannvirki og tilgreind er í flokki C í 1. viðauka, skuli háð mati á umhverfisáhrifum.

    Lagt fram til kynningar.

  7. 7. Ósk um umsögn vegna skoðunarhandbókar frá Mannvirkjastofnun

    Mál 1507070 Allur ferill málsins

    Lagt fram til kynningar.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd gerir ekki athugasemdir fyrir sitt leyti og felur starfsmönnum að skoða málið.

  8. 8. Skógræktarframkvæmdir á Vík í Fáskrúðsfirði

    Mál 1508028 Allur ferill málsins

    Lagt fram bréf Ólafar Sigurbjartsdóttur fh. Héraðs- og Austurlandsskóga, dagsett 12. ágúst 2015, þar sem óskað er eftir svari Fjarðaðabyggðar á því hvort heimilt sé að hefja framkvæmdir við nýtt 159 ha skógræktarsvæði í landi Víkur í Fáskrúðsfirði.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd telur skógrækt á svæðinu samræmast kafla 5.4 í Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027 og að fyrirhuguð skógræktaráform séu ekki tilkynningarskyld skv. lögum um umhverfisáhrif.