Mat á umhverfisáhrifum. Reglugerð. C-flokkur
Mál 1508002 Fyrst á dagskrá 10. ágúst 2015, síðast 3. september 2015. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
Í heiti málsins: Umhverfi og veitur
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2015
Bæjarráð, fundur 438 liður 4
Birt hefur verið ný reglugerð um mat á umhverfisáhrifum, nr. 660/2015, sem hefur að geyma ákvæði um framkvæmdir í flokki C, en ákvæði lagabreytingar um flokk C tóku gildi í júní. Í reglugerðinni eru þau nýmæli að sveitarstjórn tekur ákvörðun um hvort framkvæmd, sem háð er framkvæmdaleyfi sveitarstjórnar eða byggingarleyfi byggingarfulltrúa samkvæmt skipulagslögum eða lögum um mannvirki og tilgreind er í flokki C í 1. viðauka, skuli háð mati á umhverfisáhrifum.
Vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar og skipulagsfulltrúa.
-
Bæjarstjórn, fundur 183 liður 10.4
Fundargerðin „Bæjarráð - 438“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 124 liður 6
Birt hefur verið ný reglugerð um mat á umhverfisáhrifum, nr. 660/2015, sem hefur að geyma ákvæði um framkvæmdir í flokki C. Í reglugerðinni eru þau nýmæli að sveitarstjórn tekur ákvörðun um hvort framkvæmd, sem háð er framkvæmdaleyfi sveitarstjórnar eða byggingarleyfi byggingarfulltrúa samkvæmt skipulagslögum eða lögum um mannvirki og tilgreind er í flokki C í 1. viðauka, skuli háð mati á umhverfisáhrifum.
Lagt fram til kynningar.
-
Bæjarstjórn, fundur 184 liður 8.6
Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 124“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.