Bæjarráð, fundur 438
10. ágúst 2015, kl. 08:30 til 00:00, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Jens Garðar Helgason, formaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
- Jón Björn Hákonarson, aðalmaður
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 183 liður 10
Fundargerð bæjarráðs, nr. 438 frá 10. ágúst 2015, lögð fram til umræðu og kynningar.
Dagskrá
-
1. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2016
Mál 1506139 Allur ferill málsins
Framlögð tillaga að reglum um gerð fjárhagsáætlunar Fjarðabyggðar fyrir árið 2016 og þriggja ára áætlun áranna 2017 - 2019.
Bæjarstjóri fór yfir breytingar sem gerðar voru á reglunum frá síðasta ári.
Bæjarráð samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og visar þeim til staðfestingar bæjarstjórnar.
-
2. 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna 2015
Mál 1408022 Allur ferill málsins
Farið yfir undirbúning sérstaks bæjarstjórnarfundar í tilefni af 100 ára afmæli kosningarréttar kvenna.
Fundurinn verður haldinn 13. ágúst nk.
Fundinn sitja kvenkyns bæjarfulltrúar. Embættismenn fundarins verða bæjarstjóri og bæjarritari.
Bæjarráð vísar eftirfarandi málum sérstaklega til umræðu á fundi 13. ágúst sl.
1) Staða kvenna í sveitastjórnarmálum á landsvísu.
2) Jafnréttisáætlun Fjarðabyggðar- staða og framtíðarsýn.
3) Almennar umræður.
Jafnframt verða fundargerðir teknar til kynningar.
-
3. Málefni Eskifjarðarvallar
Mál 1409085 Allur ferill málsins
Framlögð gögn vegna Eskifjarðarvallar frá Knattspyrnufélagi Fjarðabyggðar. Óskað var eftir fundi með bæjarráði vegna knattspyrnuvallarins á Eskifirði.
Haldinn var fundur með vallarnefnd KFF sunnudaginn 19. júlí sl. í vallarhúsinu á Eskifjarðarvelli.
Bæjarráð felur bæjarstjóra ásamt framkvæmdasviði að gera gróft kostnaðarmat um uppbyggingu vallar á Eskifirði og leggja fyrir bæjarráð.
-
4. Mat á umhverfisáhrifum. Reglugerð. C-flokkur
Mál 1508002 Allur ferill málsins
Birt hefur verið ný reglugerð um mat á umhverfisáhrifum, nr. 660/2015, sem hefur að geyma ákvæði um framkvæmdir í flokki C, en ákvæði lagabreytingar um flokk C tóku gildi í júní. Í reglugerðinni eru þau nýmæli að sveitarstjórn tekur ákvörðun um hvort framkvæmd, sem háð er framkvæmdaleyfi sveitarstjórnar eða byggingarleyfi byggingarfulltrúa samkvæmt skipulagslögum eða lögum um mannvirki og tilgreind er í flokki C í 1. viðauka, skuli háð mati á umhverfisáhrifum.
Vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar og skipulagsfulltrúa.
-
5. Breyting á viðmiðunarreglum Kirkjugarðaráðs og Sambands íslenskra sveitarfélaga
Mál 1508001 Allur ferill málsins
Framlagðar til kynningar breytingar á viðmiðunarreglum Kirkjugarðaráðs og Sambandsins vegna framkvæmda við kirkjugarða.
Vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar og mannvirkjastjóra til kynningar.
-
6. Þjóðarsáttmáli um læsi barna í grunnskólum
Mál 1507135 Allur ferill málsins
Framlögð gögn um þjóðarsáttmála um læsi barna í grunnskólum.
Vísað til umræðu í fræðslunefnd og erindið tekið aftur fyrir í bæjarráði 24.ágúst, daginn fyrir undirskrift.
-
7. Fundargerðir Samband íslenskra sveitarfélaga 2015
Mál 1502053 Allur ferill málsins
Framlögð 829. fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 2. júli sl.
Bæjarstjóra falið að koma athugasemdum á framfæri við formann Sambands íslenskra sveitarfélaga.