Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 439

17. ágúst 2015, kl. 08:30 til 00:00, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
  • Jón Björn Hákonarson, aðalmaður
  • Valdimar O Hermannsson, varamaður
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 184 liður 5

    Fundargerð bæjarráðs, nr. 439 frá 17.ágúst, samþykkt með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Rekstur málaflokka 2015 - TRÚNAÐARMÁL

    Mál 1503049 Allur ferill málsins

    Þennan lið dagskrár sat fjármálastjóri. Framlagt sem trúnaðarmál málaflokkayfirlit um rekstur og framkvæmdir janúar - júní 2015 ásamt yfirliti yfir tekjur og launakostnað fyrir janúar - júlí 2015.

  2. 2. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2016

    Mál 1506139 Allur ferill málsins

    Þennan lið dagskrár sat fjármálastjóri. Ræddar tekju- og gjaldaforsendur fjárhagsáætlunar 2016.

    Vísað til áframhaldandi umræðu bæjarráðs og fjárhagsáætlunargerðar.

  3. 3. Starfsmat - endurskoðun 2014

    Mál 1504018 Allur ferill málsins

    Framlagt minnisblað stjórnsýslu- og þjónustusviðs um niðurstöður á endurskoðun starfsmats. Um er að ræða þverkeyrslu á starfsmati allra sveitarfélaga á Íslandi og samræmingu sem hluti af kjarasamningum frá 1. maí 2014.

    Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti endurskoðun starfsmats og felur fjármálastjóra að gera viðauka vegna niðurstaðna starfsmats og leggja fyrir bæjarráð til staðfestingar.

    Aukinn kostnaður vegna starfsmats nemur í heildina 72,9 milljónum kr. vegna áranna 2014 og 2015.

  4. 4. Björgunarbátur á Fáskrúðsfirði

    Mál 1506176 Allur ferill málsins

    Óskar Þór Guðmundsson fulltrúi björgunarsveitarinnar Geisla sat þennan lið fundarins.

    Kynnt voru fyrirhuguð bátakaup sveitarinnar. Bæjarstjóra falið að skoða málið áfram.

  5. 5. Fjölskyldustefna Fjarðabyggðar

    Mál 1411001 Allur ferill málsins

    Umræður um fjölskyldustefnu Fjarðabyggðar og framgang hennar. Bæjarráð vísar drögum að fjölskyldustefnunni til félagsmálanefndar, barnaverndarnefndar, íþrótta- og tómstundanefndar og fræðslunefndar til umfjöllunar. Drög að fjölskyldustefnu verður tekin upp að nýju í bæjarráði að lokinni umfjöllun nefndanna.

  6. 6. Stefna Fjarðabyggðar í efnahags- og atvinnumálum

    Mál 1410164 Allur ferill málsins

    Þennan lið dagskrár sat verkefnastjóri atvinnumála. Farið yfir stöðu í atvinnumálum í Fjarðabyggð og stefnu sveitarfélagsins. Framsetning atvinnumála á heimasíðu Fjarðabyggðar rædd.

  7. 7. Fréttabréf Veraldarvina tileinkað Fjarðabyggð

    Mál 1508014 Allur ferill málsins

    Fréttabréf Veraldarvina tileinkað Fjarðabyggð lagt fram til kynningar.