740 Þiljuvellir - Umsókn um byggingarlóð
Mál 1505157 Fyrst á dagskrá 17. ágúst 2015, síðast 3. september 2015. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2015
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 124 liður 1
Lögð fram lóðarumsókn Guðmundar Elíassonar fh. Fjarðabyggðar, dagsett 27. maí 2015, þar sem sótt er um lóðina Þiljuvelli 13 á Norðfirði. Flytja á Gamla Lúðvíkshúsið á lóðina.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir, fyrir sitt leyti, að úthluta lóðinni að Þiljuvöllum 13 og vísar umsókninni til bæjarráðs til endanlegrar afgreiðslu.
-
Bæjarráð, fundur 440 liður 1
Lögð fram lóðarumsókn Guðmundar Elíassonar, f.h. Fjarðabyggðar dagsett 27. maí 2015, þar sem sótt er um lóðina Þiljuvelli 13 á Norðfirði. Flytja á Gamla Lúðvíkshúsið á lóðina. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt, fyrir sitt leyti, að úthluta lóðinni að Þiljuvöllum 13. Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni og fellir niður gatnagerðargjald skv. 6.gr. laga 153/2006 þar sem verið er að flytja húsið milli lóða og byggingarmagn er óbreytt.
-
Bæjarstjórn, fundur 184 liður 6.1
Fundargerðin „Bæjarráð - 440“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarstjórn, fundur 184 liður 8.1
Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 124“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.