Bæjarstjórn, fundur 424
5. nóvember 2026, kl. 16:00 til 17:32, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (12)
Fundinn sátu
- Þuríður Lillý Sigurðardóttir, forseti bæjarstjórnar
- Helga Rakel Arnardóttir, varamaður
- Valborg Ösp Árnadóttir Warén, varamaður
- Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, aðalmaður
- Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
- Kristinn Þór Jónasson, aðalmaður
- Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, 1. varaforseti bæjarstjórnar
- Hrafn Bjarnason, 2. varaforseti bæjarstjórnar
- Baldur Marteinn Einarsson, varamaður
Starfsmenn
- Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Haraldur Líndal Haraldsson, embættismaður
Dagskrá
Tölva tengdi dagskrárliði við upptökuna. Tímasetningar geta skeikað.
-
1. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2027 - fyrri umræða
Mál 2603185 Allur ferill málsins Upptaka frá 0:09:48
Bæjarstjóri mælti fyrir fjárhagsáætlun.
Vísað frá bæjarráði til fyrri umræðu í bæjarstjórn starfs- og fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar og stofnana fyrir árið 2027 auk 3ja ára áætlunar fyrir árin 2028-2030.
Til máls tóku Ragnar Sigurðsson, Hrafn Bjarnason, Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir og Þuríður Lillý Sigurðardóttir.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að vísa fjárhagsáætlun ársins 2027 auk þriggja ára áætlunar til síðari umræðu í bæjarstjórn.
-
2. Bæjarráð - 966
Fundargerðin í heild Upptaka frá 0:48:32
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku Ragnar Sigurðsson, Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir, Hrafn Bjarnason, Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, Þuríður Lillý Sigurðardóttir og Jóna Árný Þórðardóttir.
Fundargerð bæjarráðs 26. október staðfest með 9 atkvæðum.
- 2.1 Starfs- og fjárhagsáætlun skipulags- og framkvæmdanefndar 20272606170
- 2.2 Starfs- og fjárhagsáætlun hafnarstjórnar 20272608131
- 2.3 Starfs- og fjárhagsáætlun fjölskyldunefndar 20262509150
- 2.4 Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar menningarstofu 20272603195
- 2.5 Starfs- og fjárhagsáætlun bæjarráðs 20272609001
- 2.6 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 20272603185
- 2.7 Gjaldskrá félagsheimila 20272609186
- 2.8 Gjaldskrá safna 20282610001
- 2.9 Breytingar á loftbrú26101930:49:28
- 2.10 Gamla netagerðin í Neskaupstað26101700:56:28
- 2.11 Umsókn um styrki vegna fornleifarannsókna2610183
- 2.12 Athugasemdir vegna úthlutun lóðarinnar Egilsbrautar 16 í Neskaupstað.26101560:56:56
- 2.13 Umsókn um lóð Egilsbraut 16, 740 Norðfirði2608008
- 2.14 Aðalfundur Heilbrigðiseftirlits Austurlands 20262610182
- 2.15 Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 20262601212
- 2.16 Fjölskyldunefnd - 692610022F
- 2.17 Skipulags- og framkvæmdanefnd - 712610017F
- 2.18 Stjórn menningarstofu - 442610019F
- 2.19 Starfshópur um íþróttahús á Eskifirði - 92610005F
- 2.20 Starfshópur um íþróttahús á Eskifirði - 102610008F
- 2.21 Starfshópur um íþróttahús á Eskifirði - 112610020F
-
3. Bæjarráð - 967
Fundargerðin í heild Upptaka frá 1:06:16
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð bæjarráðs 2. nóvember utan liðar 4 staðfest með 9 atkvæðum.
- 3.1 Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 20272603185
- 3.2 Gjaldskrá fasteignagjalda 20272609185
- 3.3 Samráðsfundur um almenningssamgöngur á Austurlandi2603134
- 3.4 Orkuöflun Njörvadalsár og Geithúsaár26070851:17:56
- 3.5 Umsókn um leigu á Egilsbúð2610217
- 3.6 Tillaga um nýtingu Bakkabakka 15 í Neskaupstað26102221:06:16
- 3.7 Gjaldskrá Fjarðabyggðarhafna 20272609191
- 3.8 Atvinnumál2609283
- 3.9 Stjórnkerfisnefnd 20262608281
- 3.10 Nefndaskipan í Fjarðabyggð 2026 - 2030 öldungaráð2605021
- 3.11 Kjarasamningar sveitarfélaga og viðsemjenda2610251
- 3.12 Fundagerðir Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga 20262606183
- 3.13 Fundargerðir - Samtaka SVF á köldum svæðum 20262609300
- 3.14 Ungmennaráð - 262609026F
-
4. Skipulags- og framkvæmdanefnd - 71
Fundargerðin í heild Upptaka frá 1:18:24
Til máls tók Þuríður Lillý Sigurðardóttir.
Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 19. október staðfest með 9 atkvæðum.
- 4.1 Yfirlýsing til Bæjarráðs Fjarðabyggðar v. mögulegrar úthlutunar á lóð í Kvíabólsfjörunni2610156
- 4.2 Starfs- og fjárhagsáætlun skipulags- og framkvæmdanefndar 20272606170
- 4.3 Breyting á aðalskipulagi Sævarendi 22507014
- 4.4 Snjómokstur í Fjarðabyggð 2026-20272610120
- 4.5 Framkvæmdaleyfi26101601:18:52
- 4.6 Umhverfisviðurkenning 202626093041:19:48
- 4.7 Umsókn um stöðuleyfi2610124
- 4.8 Umsókn um stöðuleyfi2610118
- 4.9 Fundargerðir Heilbrigðisnefndar Austurlands 20262602149
- 4.10 Fundargerðir Heilbrigðisnefndar Austurlands 20262602149
-
5. Fjölskyldunefnd - 69
Fundargerðin í heild Upptaka frá 1:23:04
Enginn tók til máls.
Fundargerð fjölskyldunefndar frá 21. október utan liðar 4 staðfest með 9 atkvæðum.
- 5.1 Ósk um umfjöllun í nefndum og ráðum - Aðgerðaráætlun farsældarráðs 2027-20302610146
- 5.2 Erindi um rekstrarstyrk2610132
- 5.3 Starfs- og fjárhagsáætlun fjölskyldunefndar 20262509150
- 5.4 FIFA Arena verkefni FIFA og KSÍ26081571:23:32
-
6. Stjórn menningarstofu - 44
Fundargerðin í heild Upptaka frá 1:25:52
Til máls tók Valborg Ösp Árnadóttir Warén.
Fundargerð stjórnar menningarstofu frá 21. október staðfest með 9 atkvæðum.
- 6.1 Endurskoðun Menningarstefnu Fjarðabyggðar2211009
- 6.2 Pólsk kvikmyndahátíð í Fjarðabyggð - 2026 (6. skipti)2610167
- 6.3 Víkurvaki - Áhersluverkefni í tónlistaruppbyggingu 2026 með Frystihúsinu á Breiðdalsvík2610151
- 6.4 2. áfangi Eftirlit safnaráðs með viðurkenndum söfnum - Sjóminjasafn Austurlands2606221
- 6.5 Þjóðaróperan 2026 - samstarf2610045
-
7. Ungmennaráð - 26
Fundargerðin í heild Upptaka frá 1:26:48
Til máls tók Ragnar Sigurðsson.
Fundargerð stjórnar ungmennaráðs frá 28. september staðfest með 9 atkvæðum.
-
8. Útsvar 2027
Mál 2611028 Allur ferill málsins Upptaka frá 1:29:08
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir álagningarhlutfalli útsvars árið 2027.
Framlögð tillaga í tengslum við fjárhagsáætlun 2027 um að álagningarhlutfall útsvars árið 2027 verði hámarksútsvar, þ.e. 14,97 % af útsvarsstofni í Fjarðabyggð. Tillaga þessi er í samræmi við 24.gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn staðfestir með 9 atkvæðum tillögu um álagningarhlutfall ársins 2027.
-
9. Gjaldskrá fasteignagjalda 2027
Mál 2609185 Allur ferill málsins Upptaka frá 1:30:04
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir gjaldskrá.
Vísað frá bæjarráði til staðfestingu bæjarstjórnar álagningarhlutfalli fasteignagjalda 2027 og reglum þeim tengdum.
Gjaldskráin og reglurnar taka gildi þann 1. janúar 2027.
Fasteignaskattur A verði 0,390 % af húsmati og lóðarhlutamati
Fasteignaskattur B verði 1,320 % af húsmati og lóðarhlutamati
Fasteignaskattur C verði 1,650 % af húsmati og lóðarhlutamati
Lóðarleiga íbúðarhúsnæðis verði 0,70 % af lóðarhlutamati.
Lóðarleiga atvinnuhúsnæðis verði 3,00 % af lóðarhlutamati.
Vatnsgjald skv. gjaldskrá 5.308 kr. á veitu og 435 kr. pr. fermetra húsnæðis.
Fráveitugjald skv. gjaldskrá 0,3232 % af húsmati.
Sorphreinsunargjald og sorpeyðingargjald samkvæmt gjaldskrá sem afgreidd er milli umræðna. Afsláttur til eldri borgara og örorkulífeyrisþega er framreiknaður frá fyrra ári m.v. breytingar á launavísitölu og meðalbreytingu fasteignamats íbúðarhúsnæðis
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að vísa álagningarstuðlum fasteignagjalda í gjaldskrá fasteignagjalda árið 2027 til frekari vinnu við fjárhagsáætlun milli umræðna.
-
10. Erindisbréf öldungaráðs - fyrri umræða.
Mál 2609088 Allur ferill málsins Upptaka frá 1:31:00
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir uppfærðu erindisbréfi.
Vísað frá bæjarráði til afgreiðslu bæjarstjórnar uppfærðu erindisbréfi öldungaráðs. Breytingar fela í sér að fulltrúum eldri borgara í ráðinu fjölgar úr þremur í fimm til fleiri félög eldri borgara eigi fulltrúa í ráðinu.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að vísa uppfærðu erindisbréfi öldungaráðs til síðari umræðu í bæjarstjórn.
-
11. Nefndaskipan í Fjarðabyggð 2026 - 2030
Mál 2605021 Allur ferill málsins Upptaka frá 1:31:28
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir skipan öldungaráðs.
Vísað frá bæjarráði til staðfestingu bæjarstjórnar skipan fulltrúa Fjarðabyggðar í öldungaráð en tilnefnd eru sem aðalmenn Árni Helgason, Elís Ármannsson og Ólafur Helgi Gunnarsson. Sem varamenn Albert Kemp, Alma Sigurbjörnsdóttir og Hákon Hansson. Benedikt Sigurjónsson er tilnefndur sem áheyrnarfulltrúi og Arndís Bára Pétursdóttir sem varamaður hans.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða skipan fulltrúa Fjarðabyggðar í öldungaráð.