Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirSkipulags- og framkvæmdanefnd

Skipulags- og framkvæmdanefnd, fundur 71

19. október 2026, kl. 15:30 til 17:40, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Erla Margrét Gunnarsdóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, formaður
  • Kristinn Þór Jónasson, varaformaður
  • Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, aðalmaður
  • Húnbogi Sólon Gunnþórsson, aðalmaður
  • Hafþór Eiríksson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Svanur Freyr Árnason, embættismaður
  • Erla Margrét Gunnarsdóttir, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 966 liður 17

    Fundargerð 71. fundar skipulags- og framkvæmdanefndar frá 21. október lögð fram til staðfestingar

  • Bæjarstjórn, fundur 424 liður 4

    Til máls tók Þuríður Lillý Sigurðardóttir.

    Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 19. október staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Yfirlýsing til Bæjarráðs Fjarðabyggðar v. mögulegrar úthlutunar á lóð í Kvíabólsfjörunni

    Mál 2610156 Allur ferill málsins

    Vísað frá bæjarráði til skipulags- og framkvæmdanefndar erindi frá Bærinn okkar vegna uppbyggingar í Kvíabólasfjöru í Neskaupstað, ásamt uppfærðri framkvæmdaáætlun.

    Skipulags- og framkvæmdanefnd tók fyrir erindi um uppbyggingu Baðstofu í Kvíabólsfjöru á 69. fundi sínum þann 22.september. Nefndin bókaði að starfsmanni væri falið að ræða við forsvarsmenn Bærinn okkar og kalla eftir framkvæmdaáætlun til að leggja fyrir á næsta fundi. Ákveðið var á þeim fundi að fresta umsókn Guðröðar Hákonarsonar um lóðina í ljósi fyrri viðræðna við baðstofuhópinn.

    Á 70.fundi nefndarinnar þann 12.október var tekin fyrir framkvæmdaáætlun frá Bærinn okkar, nefndin taldi áætlunina ekki fullnægjandi og var því ákveðið að úthluta lóðinni til Guðröðar Hákonarsonar sem hafði formlega sótt um lóðina þann 31.júlí 2026.

    Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar fyrir innsend gögn en nefndin stendur við fyrri ákvörðun um úthlutun lóðarinnar.

  2. 2. Starfs- og fjárhagsáætlun skipulags- og framkvæmdanefndar 2027

    Mál 2606170 Allur ferill málsins

    Farið yfir rekstaráætlun málaflokka skipulags- og framkvæmdanefndar. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar kynninguna og felur sviðsstjóra áframhaldandi vinnu við rekstraráætlun 2027.

  3. 3. Breyting á aðalskipulagi Sævarendi 2

    Mál 2507014 Allur ferill málsins

    Lögð fram tillaga að breytingu á aðalskipulagi, eftir athugasemdir HMS, vegna stækkun iðnaðarsvæðis við Sævarenda á Stöðvarfirði.

    Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir að auglýsa tillögu að breytingu vegna stækkun iðnaðarsvæðis við Sævarenda á Stöðvarfirði í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og felur skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram.

  4. 4. Snjómokstur í Fjarðabyggð 2026-2027

    Mál 2610120 Allur ferill málsins

    Farið yfir fyrirkomulag snjómoksturs í Fjarðabyggð veturinn 2026-2027.

    Skipulags- og framkvæmdanefnd fór yfir fyrirkomulag snjómoksturs og felur stjórnanda þjónustu- og framkvæmdamiðstöðvar að uppfæra verklagsreglur í samræmi við umræður á fundinum.

  5. 5. Framkvæmdaleyfi

    Mál 2610160 Allur ferill málsins

    Umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir nýtt tjaldsvæði í Neskaupstað. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrirhugaðar framkvæmdir og felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi.

  6. 6. Umhverfisviðurkenning 2026

    Mál 2609304 Allur ferill málsins

    Fjarðabyggð óskaði eftir tilnefningum til umhverfisviðurkenninga ársins 2026 í tveimur flokkum, annars vegar fyrir snyrtilegustu lóð einkaaðila og hins vegar fyrir snyrtilegustu lóð fyrirtækis.

    Alls bárust fimm tilnefningar í flokknum snyrtilegasta lóð einkaaðila og tvær tilnefningar í flokknum snyrtilegasta lóð fyrirtækis.

    Hér er lagt fram minnisblað skipulags- og umhverfisfulltrúa.

    Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar innsendar tilnefningar. Nefndin var einróma um val á umhverfisviðurkenningu í hvorum flokki fyrir sig og felur skipulagsfulltrúa að hafa samband við tilheyrandi aðila.

  7. 7. Umsókn um stöðuleyfi

    Mál 2610124 Allur ferill málsins

    Umsókn um 20 feta gám á gámasvæði Fáskrúðsfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir umsóknina og felur byggingarfulltrúa að gefa út stöðuleyfissamning.

  8. 8. Umsókn um stöðuleyfi

    Mál 2610118 Allur ferill málsins

    Umsókn um stöðuleyfi. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir umsóknina og felur byggingarfulltrúa að gefa út stöðuleyfissamning.

  9. 9. Fundargerðir Heilbrigðisnefndar Austurlands 2026

    Mál 2602149 Allur ferill málsins

    Fundargerð 193. fundar Heilbrigðisnefndar Austurlands lögð fram til kynningar. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar kynninguna.

  10. 10. Fundargerðir Heilbrigðisnefndar Austurlands 2026

    Mál 2602149 Allur ferill málsins

    Meðfylgjandi er 194. fundargerð Heilbrigðisnefndar Austurlands. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar kynninguna.