Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirSkipulags- og framkvæmdanefnd

Skipulags- og framkvæmdanefnd, fundur 72

3. nóvember 2026, kl. 15:00 til 16:50, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Erla Margrét Gunnarsdóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, formaður
  • Kristinn Þór Jónasson, varaformaður
  • Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, aðalmaður
  • Húnbogi Sólon Gunnþórsson, aðalmaður
  • Hafþór Eiríksson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Svanur Freyr Árnason, embættismaður
  • Erla Margrét Gunnarsdóttir, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 968 liður 11

    fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 3. nóvember lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.

Dagskrá

  1. 1. Starfs- og fjárhagsáætlun skipulags- og framkvæmdanefndar 2027

    Mál 2606170 Allur ferill málsins

    Farið yfir rekstrar og fjárfestingaráætlun 2027. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir framlagða rekstar og fjárfestingaráætlun 2027-2030.

  2. 2. Nesskóli - viðgerð á þaki

    Mál 2610228 Allur ferill málsins

    Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir tillögur í framlögðu innra vinnuskjali fyrir sitt leyti og vísar erindinu til bæjarráðs.

  3. 3. Deiliskipulag, Dalur 3 - Eskifirði - íbúðasvæði

    Mál 2303020 Allur ferill málsins

    Lögð fram vinnslutillaga á nýju deiliskipulagi fyrir íbúðarbyggð innan þéttbýlismarka Eskifjarðar ásamt tjaldsvæði, Dalur 3. Skipulags- og framkvæmdanefnd frestar afgreiðslu vinnslutillögu á nýju deiliskipulagi og felur skipulagsfulltrúa að láta uppfæra vinnslutillögu í samræmi við umræður á fundinum og leggja fyrir nefnd að nýju.

  4. 4. Gjaldskrá fyrir urðun úrgangs 2027

    Mál 2609254 Allur ferill málsins

    Framlögð til umfjöllunar nefndar gjaldskrá samhliða fjárhagsáætlunargerð. Tillaga að uppfærslu gjaldskrár vísast að aflokinni umfjöllun nefndar til bæjarráðs ásamt minnisblaði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir framlagða gjaldskrá og vísar erindinu til endanlegrar afgreiðslu í bæjarráði.

  5. 5. Umsóknir í framkvæmdasjóð ferðamanna 2027

    Mál 2610013 Allur ferill málsins

    Sótt var um styrk úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða annars vegar fyrir næsta áfanga verklegrar uppbyggingar við Búðarárfoss og hins vegar fyrir frumhönnun og deiliskipulagi við Beljanda.

    Umsóknirnar eru í samræmi við þá áherslu sveitarfélagsins að hafa á hverjum tíma eitt verkefni í hönnun og annað í verklegri framkvæmd. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar kynninguna.

  6. 6. Móttaka á lífrænum matarúrgangi

    Mál 2608138 Allur ferill málsins

    Lagt fram til kynningar tölvupóstur frá Kristjáni Ólafssyni framkvæmdastjóra Moltu varðandi móttöku matarleifa frá Múlaþingi og Fjarðabyggð ásamt skilmálum og gjaldskrá Moltu fyrir árið 2027. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar kynninguna.

  7. 7. Skipulagsdagurinn 2026

    Mál 2610246 Allur ferill málsins

    Lagt fram til kynningar dagskrá Skipulagsdagsins 2026, sem haldinn verður fimmtudaginn 5. nóvember. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar kynninguna og felur skipulagsfulltrúa að fara á Skipulagsdaginn 2026.

  8. 8. Rannsóknaráðstefna 6. nóvember

    Mál 2610221 Allur ferill málsins

    Rannsóknaráðstefna Vegagerðarinnar 2026 verður haldin föstudaginn 6. nóvember á Hilton Reykjavík Nordica við Suðurlandsbraut, kl. 09.00-16.30. Þar verða kynnt fjölbreytt rannsóknarverkefni á sviði samgangna, mannvirkja, umhverfis og náttúruvár. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar kynninguna.