Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirSkipulags- og framkvæmdanefnd

Skipulags- og framkvæmdanefnd, fundur 73

12. nóvember 2026, kl. 12:05 til 13:15, í fjarfundi. Fundargerð ritaði Erla Margrét Gunnarsdóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, formaður
  • Kristinn Þór Jónasson, varaformaður
  • Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, aðalmaður
  • Húnbogi Sólon Gunnþórsson, aðalmaður
  • Hafþór Eiríksson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Svanur Freyr Árnason, embættismaður
  • Erla Margrét Gunnarsdóttir, embættismaður

Dagskrá

  1. 1. Gjaldskrá fyrir meðhöndlun úrgangs 2027

    Mál 2611039

    Framlögð til umfjöllunar nefndar gjaldskrá samhliða fjárhagsáætlunargerð. Tillaga að uppfærslu gjaldskrár vísast að aflokinni umfjöllun nefndar til bæjarráðs ásamt minnisblaði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir framlagða gjaldskrá og vísar erindinu til endanlegrar afgreiðslu í bæjarráði.

  2. 2. Gjaldskrá gatnagerðargjalda 2027

    Mál 2609230 Allur ferill málsins

    Gjaldskrá gatnagerðargjalda 2026. Tillaga að uppfærslu gjaldskrár vísast að aflokinni umfjöllun nefndar til bæjarráðs ásamt minnisblaði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir framlagða gjaldskrá og vísar erindinu til endanlegrar afgreiðslu í bæjarráði.

  3. 3. Ósk um malbikun við Hlíðargötu 3a, 5 og 5a - Neskaupstaður

    Mál 2611030

    Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulagsfulltrúa að ræða við íbúa við Hlíðargötu 3a, 5 og 5a.

  4. 4. Umsókn um lóð Árdalur 15

    Mál 2610198

    Umsókn um lóð, Árdalur 15, 735 Eskifirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir lóðarhúthlutunina á grundvelli gildandi deiliskipulags og vísar henni til bæjarráðs.

  5. 5. Umsókn um lóð Árdalur 17

    Mál 2610197

    Umsókn um lóð, Árdalur 17, 735 Eskifirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir lóðarhúthlutunina á grundvelli gildandi deiliskipulags og vísar henni til bæjarráðs.

  6. 6. Óverulega breyting á deiliskipulagi Dalur 2, Árdalur 17

    Mál 2610135

    Óveruleg breyting á Deiliskipulagi Dalur 2, Eskifirði - Árdalur 17.

    Skipulags- og framkvæmdanefnd felur skipulagsfulltrúa að grenndarkynna fyrir Árdal 19 og leggja fyrir nefnd að nýju.

  7. 7. Erindi íbúa varðandi leikvöll í Neskaupstað

    Mál 2611084

    Skipulags- og framkvæmdanefnd fagnar framtakinu og felur skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram með umsækjanda.

  8. 8. Neskaupstaður - Miðbæjartorg

    Mál 2611083

    Farið yfir teikningar varðandi frágang á gangstétt innan við Safnahúsið. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur sviðstjóra að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.

  9. 9. Fundargerðir Heilbrigðisnefndar Austurlands 2026

    Mál 2602149 Allur ferill málsins

    Meðfylgjandi er 194. fundargerð Heilbrigðisnefndar Austurlands. Kynnt.