Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 967

2. nóvember 2026, kl. 08:30 til 12:10, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Ragnar Sigurðsson, formaður
  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, varaformaður
  • Stefán Þór Eysteinsson, aðalmaður
  • Hrafn Bjarnason, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Þórður Vilberg Guðmundsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 424 liður 3

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð bæjarráðs 2. nóvember utan liðar 4 staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2027

    Mál 2603185 Allur ferill málsins

    Lögð fram tillaga að starfs- og fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar og stofnana fyrir árið 2027 auk 3ja ára áætlunar fyrir árin 2028-2030.

    Bæjarráð samþykkir tillögu að fjárhagsáætlun ársins 2027 auk þriggja ára áætlunar og vísar henni til fyrri umræðu bæjarstjórnar.

  2. 2. Gjaldskrá fasteignagjalda 2027

    Mál 2609185 Allur ferill málsins

    Fjallað um álagningarstofna fasteignagjalda árið 2027 og reglur.

    Bæjarráð samþykkir að álagningarhlutfall fasteignagjalda á íbúðarhúsnæði fari úr 0,4 í 0,39 og vísar gjaldskrá fasteignagjalda 2027 og reglum þeim tengdum til staðfestingar bæjarstjórnar.

  3. 3. Samráðsfundur um almenningssamgöngur á Austurlandi

    Mál 2603134 Allur ferill málsins

    Framlögð fundargerð kynningarfundar um útboð almenningssamgangna á Austurlandi að hálfu Vegagerðarinnar en útboð hefur verið birt.

  4. 4. Orkuöflun Njörvadalsár og Geithúsaár

    Mál 2607085 Allur ferill málsins

    Fjallað um áform um orkuöflun úr Njörvadalsá og Geithúsaá. Framlagt sem trúnaðarmál minnisblað Jóns Jónssonar lögmanns vegna samninga um afnot af vatnsréttindum.

    Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna áfram að málinu.

  5. 5. Umsókn um leigu á Egilsbúð

    Mál 2610217 Allur ferill málsins

    Framlögð beiðni frá Verkmenntaskóla Austurlands fyrir styrk til afnota af Egilsbúð þann 13. nóvember vegna dansleiks nema frá skólanum og Menntaskólanum á Egilsstöðum og Framhaldsskóla Austur Skaftafellssýslu.

    Bæjarráð samþykkir að styrkja afnot nemanna af Egilsbúð fyrir dansleik. Tekið af liðnum óráðstafað 21690.

  6. 6. Tillaga um nýtingu Bakkabakka 15 í Neskaupstað

    Mál 2610222 Allur ferill málsins

    Framlögð tillaga frá Hrafni Bjarnasyni um nýtingu húsnæðisins að Bakkabakka 15 í Neskaupstað.

    Bæjarráð hefur unnið að því að tryggja nýtingu Egilsbúðar og efla miðbæ Neskaupstaðar. Ekki eru mörg ár síðan ráðist var í endurbætur á húsinu, meðal annars til að koma þar fyrir félagsaðstöðu eldri borgara. Bæjarráð er meðvitað um að núverandi aðstaða rúmar ekki starfsemi Félags eldri borgara í Neskaupstað þegar þátttaka er sem mest. Mikilvægt er að félagið hafi góða aðstöðu sem mætir þörfum þess og styður við öflugt félagsstarf.

    Bæjarráð leggur því til að stofnaður verði spretthópur í samráði við félagið til að skoða húsnæðismál þess. Hópurinn meti meðal annars möguleika á að koma félagsaðstöðu eldri borgara innan Egilsbúðar betur fyrir og leggi tillögur að úrbótum fyrir bæjarráð.

    Bæjarráð samþykkir jafnframt að fulltrúar bæjarráðs skipi spretthópinn af hálfu sveitarfélagins.

    Félag eldri borgara Norðfirði leggur til að stjórn félagsins ásamt Jóni Gunnari Sigurjónssyni verði fulltrúar félagsins.

  7. 7. Gjaldskrá Fjarðabyggðarhafna 2027

    Mál 2609191 Allur ferill málsins

    Vísað frá hafnarstjórn til bæjarráðs tillögu að gjaldskrá Fjarðabyggðahafna fyrir árið 2027 ásamt minnisblaði.

    Bæjarráð samþykkir framlögð drög að gjaldskrá og mun hún taka gildi 1. janúar 2027.

  8. 8. Atvinnumál

    Mál 2609283 Allur ferill málsins

    Lögð fram sem trúnaðarmál drög að yfirlýsingu vegna atvinnumála.

    Bæjarráð samþykkir yfirlýsingu fyrir sitt leyti og felur bæjarstjóra undirritun hennar.

  9. 9. Stjórnkerfisnefnd 2026

    Mál 2608281 Allur ferill málsins

    Umfjöllun um stjórnkerfi sveitarfélagsins.

  10. 10. Nefndaskipan í Fjarðabyggð 2026 - 2030 öldungaráð

    Mál 2605021 Allur ferill málsins

    Fram lögð tillaga um skipan fulltrúa Fjarðabyggðar í öldungaráð.

    Bæjarráð tilnefnir:

    Árni Helgason. Til vara: Albert Kemp

    Elís Ármannsson, Til vara: Alma Sigurbjörnsdóttir

    Benedikt Sigurjónsson. Til vara: Arndís Bára Pétursdóttir

    Ólafur Helgi Gunnarsson. Til vara: Hákon Hansson

    Skipun fulltrúanna vísað til bæjarstjórnar.

    Jafnframt vísar bæjarráð erindisbréfi nefndarinnar til endurskoðunar bæjarstjórnar þannig að fulltrúum félaga eldri borgara verði fjölgað í fimm þannig að öll félögin eigi fulltrúa í ráðinu.

  11. 11. Kjarasamningar sveitarfélaga og viðsemjenda

    Mál 2610251 Allur ferill málsins

    Farið yfir stöðu viðræðna Sambands íslenskra sveitarfélaga fyrir hönd sveitarfélaga við Kennarasamband Íslands um virðismatsvegferð samningsaðila.

  12. 12. Fundagerðir Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga 2026

    Mál 2606183 Allur ferill málsins

    Framlagðar til kynningar fundargerðir 99. 100. og 101. fundar stjórnar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga.

  13. 13. Fundargerðir - Samtaka SVF á köldum svæðum 2026

    Mál 2609300 Allur ferill málsins

    Framlagðar til kynningar fundargerð 93. fundar stjórnar Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum.

  14. 14. Ungmennaráð - 26

    Fundargerðin í heild

    Framlögð til afgreiðslu fundargerð ungmennaráðs 28. september 2026.