Fjölskyldunefnd, fundur 69
21. október 2026, kl. 14:00 til 15:00, í Búðareyri 2 fundarherbergi 2. Fundargerð ritaði Aðalheiður Björk Rúnarsdóttir.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (9)
Fundinn sátu
- Ragnar Sigurðsson, formaður
- Helga Rakel Arnardóttir, varaformaður
- Sigrún Eva Grétarsdóttir, aðalmaður
- Valborg Ösp Árnadóttir Warén, aðalmaður
- Anna Guðný Gunnarsdóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Laufey Þórðardóttir, embættismaður
- Aðalheiður Björk Rúnarsdóttir, embættismaður
- Líneik Anna Sævarsdóttir, embættismaður
- Bergey Stefánsdóttir, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 966 liður 16
Fundargerð fjölskyldunefndar frá 21. október lögð fram til afgreiðslu.
Bæjarstjórn, fundur 424 liður 5
Enginn tók til máls.
Fundargerð fjölskyldunefndar frá 21. október utan liðar 4 staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Ósk um umfjöllun í nefndum og ráðum - Aðgerðaráætlun farsældarráðs 2027-2030
Mál 2610146 Allur ferill málsins
Farsældarráð óskar eftir því að aðgerðaáætlunin verði tekin á dagskrá viðeigandi nefnda og ráða hjá sveitarfélögum ykkar og stofnunum.
Málið tekið fyrir á næsta fundi fjölskyldunefndar.
-
2. Erindi um rekstrarstyrk
Mál 2610132 Allur ferill málsins
Samtök um karlaathvarf leita til Fjarðabyggðar með ósk um stuðning við nýjan hjálparsíma samtakanna.
Fjölskyldunefnd getur því miður ekki orðið við beiðninni að þessu sinni.
-
3. Starfs- og fjárhagsáætlun fjölskyldunefndar 2026
Mál 2509150 Allur ferill málsins
Fjölskyldunefnd samþykkir drög að fjárhagsáætlun fjölskyldusviðs fyrir árið 2027 og vísar til bæjarráðs.
-
4. FIFA Arena verkefni FIFA og KSÍ
Mál 2608157 Allur ferill málsins
Fjölskyldunefnd felur stjórnanda íþrótta- og frístundamála að rita bréf fyrir hönd fjölskyldunefndar og vekja athygli á skorti á sparkvelli á Breiðdalsvík.
Helga Rakel vék af fundi við afgreiðslu á þessum lið.