Bæjarráð, fundur 649
3. febrúar 2020, kl. 08:30 til 10:00, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Eydís Ásbjörnsdóttir, formaður
- Jón Björn Hákonarson, varaformaður
- Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Karl Óttar Pétursson, bæjarstjóri
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Stefán Aspar Stefánsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 285 liður 1
Til máls tóku: Eydís Ásbjörnsdóttir,Jón Björn Hákonarson, Einar Már Sigurðarson.
Fundargerð bæjarráðs frá 3. febrúar sl. staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Endurskoðun Aðalskipulags Fjarðabyggðar 2007-2027
Mál 1810136 Allur ferill málsins
Tekið upp að nýju erindi frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd til bæjarráðs um viðfangsefni sem ástæða væri til að skoða við gerð lýsingar aðalskipulagsins. Sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs gerði grein fyrir vinnu við skipulagið.
-
2. Skrifstofa Fjarðabyggðar - starfsstöðvar og starfsmannaaðstaða
Mál 1504127 Allur ferill málsins
Framlagt minnisblað um framkvæmdir við viðhald og endurbætur skrifstofu Fjarðabyggðar í tengslum við flutning og breytingar á starfsaðstöðum.
Kostnaði mætt af liðnum viðhald fasteigna í eignasjóði.
-
3. Endurnýjun samninga við björgunarsveitir í Fjarðabyggð
Mál 2001059 Allur ferill málsins
Framlögð drög að endurnýjun samnings við björgunarsveitir í Fjarðabyggð. Björgunarsveitirnar hafa samþykkt samninginn fyrir sitt leyti.
Bæjarráð samþykkir samninginn og felur bæjarstjóra undirritun hans.
-
4. Fundur með umhverfis- og samgöngunefnd
Mál 2001223 Allur ferill málsins
Framlagður tölvupóstur Sambands sveitarfélaga Austurlandi um sameiginlegan fund fyrir SSA sem og þau sveitarfélög sem sendu inn sérstakar umsagnir um samgönguáætlun. Fundurinn er milli kl. 15:00 - 16:00 þann 5. febrúar nk.
Bæjarráð samþykkir að fulltrúi Fjarðabyggðar verði Jón Björn Hákonarson forseti bæjarstjórnar.
-
5. Ofanflóðamál - áskorun til stjórnvalda
Mál 2001215 Allur ferill málsins
Lagt fram til kynningar erindi Seyðisfjarðarkaupstaðar vegna ofanflóða og framkvæmda við ofanflóðavarnir.
Bæjarráð ítrekar fyrri ályktanir sínar um mikilvægi ofanflóðavarna og að hraða beri þeim sem kostur er.
-
6. Drög afsals um flugstöðvarbyggingu Norðfjarðarflugvallar
Mál 2001186 Allur ferill málsins
Framlögð drög afsals þar sem Ríkissjóður Íslands afsalar flugstöðvarbyggingu Norðfjarðarflugvallar til Fjarðabyggðar.
Bæjarráð samþykkir að taka yfir flugstöðvarbygginguna og felur bæjarstjóra undirritun afsals.
-
7. Drög samnings um rekstur Norðfjarðarflugvallar
Mál 2001185 Allur ferill málsins
Framlögð drög að samningi milli Isavia ohf. og Fjarðabyggðar um rekstur Norðfjarðarflugvallar.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna málið áfram og leggja fyrir að nýju.
-
8. Húsnæðisstefna Fjarðabyggðar 2020-2023
Mál 2001206 Allur ferill málsins
Lagt fram bréf frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnunnar um gerð húsnæðisáætlunar Fjarðabyggðar eða endurskoðun núverandi áætlunar á árinu 2020.
Vísað til frekari skoðunar og úrvinnslu hjá fjármálastjóra og atvinnu- og þróunarstjóra.
-
9. Samruni Rafveitu Reyðarfjarðar og Orkusölunnar
Mál 2001084 Allur ferill málsins
Framlagt bréf Samkeppniseftirlits vegna sölu Fjarðabyggðar á sölustarfsemi Rafveitu Reyðarfjarðar til Orkusölunnar í samræmi við 1. mgr. 17.gr. samkeppnislaga nr. 44/2005. Samkeppniseftirlitið óskar upplýsinga og sjónarmiða Fjarðabyggðar vegna sölunnar.
Bæjarráð felur bæjarstjóra og fjármálastjóra að svara erindi eftirlitsins.
-
10. Lausaganga sauðfjár í Stöðvarfirði
Mál 1908051 Allur ferill málsins
Vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd til kynningar í bæjarráði drögum að svörum til landeiganda Óseyrar í Stöðvarfirði varðandi lausagöngu fjár á jörðinni, lausagöngu fjár í Stöðvarfirði og lausagöngu fjár í Fjarðabyggð.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara erindi.
-
11. Reglur um úthlutun byggðakvóta út frá jafnræðisreglu stjórnsýslulaga.
Mál 1910191 Allur ferill málsins
Umræða tekin um úthlutun byggðakvóta og reglur þar að lútandi. Fjallað um jafnræðisreglu við úthlutun.
Bæjarstjóra ásamt og atvinnu- og þróunarstjóra falið að fara yfir málið og leggja fyrir að nýju.
-
12. Friðlýsing Gerpissvæðisins - kynningarfundur
Mál 2001205 Allur ferill málsins
Framlagt fundarboð kynningarfundar um friðlýsingu Gerpissvæðisins í Tónlistarmiðstöðinni á Eskifirði þann 6. febrúar kl. 20:00 og þann 11. febrúar í Reykjavík.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að mæta á fundinn fyrir hönd Fjarðabyggðar sem landeiganda. Vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.
-
13. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 251
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 27. janúar sl. lögð fram til afgreiðslu.
- 13.1 Framkvæmda- og viðhaldsáætlun 20202001149
- 13.2 Réttarholt 1-3 Þak viðhald2001194
- 13.3 Lausaganga sauðfjár í Stöðvarfirði1908051
- 13.4 Dýraeftirlit 2020 - gæludýr2001048
- 13.5 730 Óseyri 2 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi2001078
- 13.6 750 Stekkholt 12 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi2001057
- 13.7 Gjaldtaka vegna stöðuleyfa - Athugasemd2001190
- 13.8 Vottun gervigrass í Fjarðabyggðarhöllinni1909149
- 13.9 Styrkbeiðni til handa Knattspyrnufélagi Fjarðabyggðar1908107
- 13.10 Efnistaka í Hellisfirði í Norðurfjarðarflóa, Fjarðabyggð. Tillaga að matsáætlun - Beiðni um umsögn1907110
- 13.11 Fundagerðir Náttúrustofu Austurlands 20202001111
-
14. Fræðslunefnd - 79
Fundargerð fræðslunefndar frá 29. janúar sl. lögð fram til afgreiðslu.
- 14.1 Starfsáætlanir og skólanámskrár skólaárið 2019-20201912168
- 14.2 Reglur um launað námsleyfi í leikskólum2001016
- 14.3 Snjalltækjavæðing og reglur um snjalltæki í grunnskólum Fjarðabyggðar1806053
- 14.4 Skóladagatöl 2020-20212001195
- 14.5 Endurskoðun Aðalskipulags Fjarðabyggðar 2007-20271810136