Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirEigna-, skipulags- og umhverfisnefnd

Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 251

27. janúar 2020, kl. 16:00 til 18:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Valur Sveinsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Einar Már Sigurðarson, formaður
  • Ívar Dan Arnarson, varaformaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
  • Esther Ösp Gunnarsdóttir, aðalmaður
  • Árni Björn Guðmundarson, áheyrnarfulltrúi
  • Arnfríður Eide Hafþórsdóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Valur Sveinsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 649 liður 13

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 27. janúar sl. lögð fram til afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 285 liður 3

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Framkvæmda- og viðhaldsáætlun 2020

    Mál 2001149 Allur ferill málsins

    Framlögð drög framkvæmda- og viðhaldsáætlunar Fjarðabyggðar og stofnana fyrir árið 2020. Farið yfir stöðu framkvæmda og fjármögnun þeirra til samræmis við fjárhagsáætlun 2020.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd felur sviðsstjóra framkvæmdasviðs og fármálastjóra að vinna áfram áætlun um forgangsröðun viðhaldsverkefna og leggja fyrir nefndina að nýju.

  2. 2. Réttarholt 1-3 Þak viðhald

    Mál 2001194 Allur ferill málsins

    Lagt fram minnisblað framkvæmdasviðs vegna viðhalds á þaki Réttarholts 1-3, dagsett 24. janúar 2020.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að verðfyrirspurn verði gerð í samræmi við minnisblað vegna viðhalds á þaki Réttarholts 1-3.

  3. 3. Lausaganga sauðfjár í Stöðvarfirði

    Mál 1908051 Allur ferill málsins

    Lagt fram að nýju bréf landeiganda Óseyrar í Stöðvarfirði varðandi lausagöngu fjár á jörðinni, lausagöngu fjár í Stöðvarfirði og lausagöngu fjár í Fjarðabyggð, dagsett 23. september 2019.Lögð fram uppfærð drög umhverfisstjóra að svörum við spurningum bréfritara í samræmi við bókun 250. fundi nefndarinnar þann 10. janúar síðastliðinn.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir drögin fyrir sitt leyti og vísar þeim til umfjöllunar bæjarráðs.

  4. 4. Dýraeftirlit 2020 - gæludýr

    Mál 2001048 Allur ferill málsins

    Lagt fram minnisblað umhverfisstjóra á fyrirkomulagi dýraeftirlits Fjarðabyggðar árið 2019, dagsett 13. janúar 2020. Á siðasta ári var til reynslu nýtt fyrirkomulag þar sem eftirlitið og umsýsla þess var alfarið hjá umhverfis- og skipulagssviði.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir tillögur í minnisblaði umhverfisstjóra.

  5. 5. 730 Óseyri 2 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi

    Mál 2001078 Allur ferill málsins

    Lögð fram umsókn Olíudreyfingar ehf, dagsett 9. janúar 2020, þar sem óskað er eftir endurnýjun lóðarleigusamnings lóðar fyrirtækisins að Óseyri 2 á Reyðarfirði. Lagt fram minnisblað sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs, dagsett 22. janúar 2020, um skipulagsmál lóðarinnar við Óseyri 2 á Reyðarfiði.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd frestar afgreiðslu.

  6. 6. 750 Stekkholt 12 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

    Mál 2001057 Allur ferill málsins

    Lögð fram byggingarleyfisumsókn Paulius Naucius, dagsett 7. janúar 2020, þar sem sótt er um leyfi til byggja 148 fm og 522 rm íbúðarhús á lóð hans við Stekkholt 12 á Fáskrúðsfirði.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina.

  7. 7. Gjaldtaka vegna stöðuleyfa - Athugasemd

    Mál 2001190 Allur ferill málsins

    Lagt fram til kynningar bréf Samtaka iðnaðarins vegna gjaldtöku stöðuleyfa í Fjarðabyggð, dagsett 23. janúar 2020.

  8. 8. Vottun gervigrass í Fjarðabyggðarhöllinni

    Mál 1909149 Allur ferill málsins

    Lagt fram að nýju minnisblað Bjarka Ármanns Oddssonar íþrótta- og tómstundafulltrúa vegna gervigrass í Fjarðabyggðarhöllinni dagsett 7. janúar 2020 ásamt minnisblaði KSÍ vegna úttektar á Fjarðabyggðarhöllinni, dagsett 5. desember 2019.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd telur mikilvægt að gervigras Fjarðabyggðarhallarinnar verði endurnýjað og felur sviðsstjóra framkvæmdasviðs að gera tillögu að verkliðum sem hægt er að fella út úr fjárfestingar- og viðhaldsáætlun svo hægt sé að gera ráð fyrir endurnýjun gervigras Fjarðabyggðarhallarinnar 2020. Nefndin frestar afgreiðslu til næsta fundar.

  9. 9. Styrkbeiðni til handa Knattspyrnufélagi Fjarðabyggðar

    Mál 1908107 Allur ferill málsins

    Vísað til kynningar frá bæjarráði til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar minnisblaði íþrótta- og tómstundafulltrúa um málefni Knattspyrnufélags Fjarðabyggðar, dagsett 11. desember 2019.

  10. 10. Efnistaka í Hellisfirði í Norðurfjarðarflóa, Fjarðabyggð. Tillaga að matsáætlun - Beiðni um umsögn

    Mál 1907110 Allur ferill málsins

    Lagt fram til kynningar bréf Skipulagsstofnunar, dagsett 14. janúar 2020, varðandi ákvörðun stofnunarinnar um tillögu Hafnarsjóðs Fjarðabyggðar um matsáætlun vegna efnistöku í Hellisfirði í Norðfjarðarflóa. Fallist er á tillöguna með athugasemdum.

  11. 11. Fundagerðir Náttúrustofu Austurlands 2020

    Mál 2001111 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar fundargerð 1. stjórnarfundar Náttúrustofu Austurlands 2020.