Ungmennaráð, fundur 1
13. nóvember 2019, kl. 15:30 til 17:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Bjarki Ármann Oddsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (9)
Fundinn sátu
- Eyrún Arna Ingólfsdóttir, aðalmaður
- Elísabet Mörk Ívarsdóttir, aðalmaður
- Ólafur Jónsson, aðalmaður
- Anton Berg Sævarsson, aðalmaður
- Unnar Karl Stephensen Árnason, aðalmaður
- Dagur Þór Hjartarson, aðalmaður
- Álfheiður Ída Kjartansdóttir, aðalmaður
- Tómas Atli Björgvinsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Bjarki Ármann Oddsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 280 liður 4
Til máls tók Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð ungmennaráðs nr. 1 frá 13.nóvember 2019, samþykkt með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Kynning á One fyrir ungmennaráð
Mál 1911058 Allur ferill málsins
Bæjarstjóri og íþrótta- og tómstundafulltrúi kynntu One fyrir ungmennaráði.
-
2. Málþing um börn og samgöngur
Mál 1911067 Allur ferill málsins
Málþing um börn og samgöngur verður haldið mánudaginn 18. nóvember frá kl. 12:30 til 16:30 á vegum samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins í samvinnu við Samgöngustofu, Vegagerðina og Samband íslenskra sveitarfélaga. Fundinum verður streymt í beinni útsendingu á vef Stjórnarráðsins. Kynnt fyrir ungmennaráði.
-
3. Kosning formanns og varaformanns ungmennaráðs
Mál 1911056 Allur ferill málsins
Formaður ungmennráðs veturinn 2019-2020 var kosinn Anton Berg Sævarsson og varaformaður var kosinn Oddur Óli Helgason.
-
4. Hvatning til sveitarstjórna í tengslum við Skólaþing sveitarfélaga 2019
Mál 1909106 Allur ferill málsins
Fræðslustjóri kom inn á fund nefndarinnar og kynnti Skólaþing sveitarfélaga sem haldið var mánudaginn 4. nóvember síðastliðinn. Fulltrúi ungmennaráðs á Skólaþinginu var Anna Roksana Zajaczkowska.
-
5. Starfsáætlun ungmennaráðs 2019-2020
Mál 1911057 Allur ferill málsins
Frestað til næsta fundar.