Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirUngmennaráð

Ungmennaráð, fundur 2

18. desember 2019, kl. 15:30 til 17:45, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Bjarki Ármann Oddsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Elísabet Mörk Ívarsdóttir, aðalmaður
  • Guðni Berg Hauksson, aðalmaður
  • Anton Berg Sævarsson, aðalmaður
  • Unnar Karl Stephensen Árnason, aðalmaður
  • Tómas Atli Björgvinsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Bjarki Ármann Oddsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 645 liður 15

    Fundargerð ungmennaráðs nr. 2 frá 18.desember 2019, lögð fram til umfjöllunar.

  • Bæjarstjórn, fundur 283 liður 2

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð ungmennaráðs frá 19. desember sl. samþykkt með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Námskeið fyrir ungmennaráð

    Mál 1912139 Allur ferill málsins

    Föstudaginn 10. janúar verður námskeið fyrir Ungmennaráð Fjarðabyggðar og Ungmennaráð Fljótsdalshéraðs í Þingmúla, Egilsstöðum, frá kl. 10:00 til 15:00. Námskeiðið snýr að fundarsköpum, ábyrgð, þjónandi forystu, framkomu og fleiru tengt því að sitja í nefnd á vegum sveitarfélaga. Leiðbeinandi verður Stefán Bogi Sveinsson lögfræðingur og forseti bæjarstjórnar Fljótsdalshéraðs. Ungmennaráð Fjarðabyggðar þakkar ungmennaráði Fljótsdalshéraðs fyrir boðið.

  2. 2. Forvarnaráætlun 2020

    Mál 1912018 Allur ferill málsins

    Aðgerðaráætlun forvarnarstefnu Fjarðabyggðar er unnin í janúar á hverju ári og uppfærð jafnt og þétt yfir árið. Þar eru lögð drög að fjórum til fimm stærri verkefnum sem snúa að forvörnum og fræðslu til ungmenna, foreldra, starfsmanna og íbúa Fjarðabyggðar. Drög að aðgerðaráætlun unnin áfram í samráði við ungmennaráð.

  3. 3. Ungt fólk 5.-7. bekkur Fjarðabyggð

    Mál 1910160 Allur ferill málsins

    Skýrsla Rannsóknar og Greiningar um ungt fólk, nemendur í 5. - 7. bekk, í Fjarðabyggð lögð fram til kynningar. Skýrslan byggir á niðurstöðu könnunar sem lögð var fyrir alla nemendur á Íslandi í febrúar 2019. Nemendur voru spurðir um samband við foreldra, fjölskyldu og vini, líðan og stríðni, nám og skóla, íþrótta- og tómstundastarf, frítímann og barnasáttmálann.

  4. 4. Starfsáætlun ungmennaráðs 2019-2020

    Mál 1911057 Allur ferill málsins

    Unnið í starfsáætlun ungmennaráðs fyrir árið 2020.