Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirFræðslunefnd

Fræðslunefnd, fundur 15

28. apríl 2015, kl. 16:30 til 00:00, í Molanum fundarherbergi 1 og 2. Fundargerð ritaði Þóroddur Helgason.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Pálína Margeirsdóttir, formaður
  • Lísa Lotta Björnsdóttir, varaformaður
  • Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, aðalmaður
  • Elvar Jónsson, aðalmaður
  • Aðalheiður Vilbergsdóttir, varamaður
  • Þóroddur Helgason, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 427 liður 21

    Fundargerð fræðslunefndar, nr. 15 frá 28.apríl 2015, lögð fram til kynningar.

  • Bæjarstjórn, fundur 179 liður 5

    Til máls tók Pálína Margeirsdóttir.

    Fundargerð fræðsluefndar frá 28. apríl 2015 samþykkt með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Skóladgatöl 2015-2016

    Mál 1504165 Allur ferill málsins

    Fyrir liggja skóladagatöl leik-, grunn- og tónlistarskóla í Fjarðabyggð auk samanburðarblaðs þar sem sést hvernig starfs-, skipulags- og vetrarfrídagar raðast niður á almanaksárið. Reynt er að samræma frídaga nemenda í hverjum byggðarkjarna eftir því sem kostur er. Fræðslunefnd samþykkir skóladagatölin.

  2. 2. Fjarðabyggð til framtíðar

    Mál 1411075 Allur ferill málsins

    Umræða fór fram um skýrslu Skólastofunnar, mat á tillögum um skipan skólamála í Fjarðabyggð og skýrsla KPMG, Fjarðabyggð til framtíðar og íbúafundi sem haldnir voru 22. apríl.

  3. 3. Fjölskyldustefna Fjarðabyggðar

    Mál 1411001 Allur ferill málsins

    Farið yfir vinnu vegna Fjölskyldustefnu Fjarðabyggðar.

  4. 4. Börn án íslenskrar kennitölu og leikskólaþjónusta

    Mál 1504167 Allur ferill málsins

    Tekið var til umræðu bréf þar sem spurt er hvort leikskólar í Fjarðabyggð heimili börnum án íslenskrar kennitölu leikskólaþjónustu og jafnframt óskað eftir þjónustu fyrir barn í fyrrgreindri stöðu. Í reglum um leikskóla segir að sækja megi um vist í leikskóla um leið og kennitala barns hefur verið skráð. Fræðslunefnd lýsir yfir vilja til að bjóða þeim börnum leikskólaþjónustu sem eru án kennitölu eða skráð utangarðs í þjóðskrá og eiga fyrirliggjandi umsókn um kennitölu. Fræðslunefnd beinir því til fræðslustjóra að leggja til við fræðslunefnd nauðsynlegar breytingar á reglum um leikskóla ásamt verklagi. Fræðslunefnd felur fræðslustjóra að fylgja málinu eftir. Trúnaðarmál.

  5. 5. Ósk um launalaust leyfi

    Mál 1504195 Allur ferill málsins

    Borist hefur bréf frá Lilju Guðnýju Jóhannesdóttur, þar sem hún óskar eftir að fá launalaust leyfi frá Nesskóla skólaárið 2015-2016, en hún var í launalausu leyfi frá skólanum 2014-2015. Fræðslunefnd samþykkir beiðnina.