Bæjarráð, fundur 427
11. maí 2015, kl. 08:30 til 00:00, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Jens Garðar Helgason, formaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
- Jón Björn Hákonarson, aðalmaður
- Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
- Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 179 liður 1
Fundargerðir bæjarráðs, nr. 427 og nr. 428, teknar til afgreiðslu saman.
Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson, Eydís Ásbjörnsdóttir, Valdimar O Hermannsson, Einar Már Sigurðarson, Elvar Jónsson.
Fundargerð bæjarráðs frá 11. maí samþykkt með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Augnlæknaþjónusta í Fjarðabyggð
Mál 1505060 Allur ferill málsins
Bréf Sigurborgar Einarsdóttur er varðar augnlæknaþjónustu í Fjarðabyggð. Bæjarráð tekur heilshugar undir áhyggjur bréfritara og ítrekar enn og aftur áskorun sína til Heilbrigðiseftirlits Austurlands, að tryggja augnlæknaþjónustu við íbúa Fjarðabyggðar. Núverandi ástand er algjörlega óviðunandi.
-
2. Umsókn um stöðuleyfi - Strandgata 8; 740
Mál 1411156 Allur ferill málsins
Bréf Magna Björns Sveinssonar er varðar stöðuleyfi fyrir bát í Neskaupstað. Bæjarstjóra falið að fara yfir efni bréfsins með bréfritara.
-
3. Styrkumsókn í formi niðurfellrar húsaleigu
Mál 1505050 Allur ferill málsins
Beiðni Slysavarnardeildarinnar Hafdísar um styrk vegna húsaleigu í tengslum við Kvennaþing Landsbjargar sem haldið verður í Skólamiðstöðinni á Fáskrúðsfirði 9. - 11.september 2016. Bæjarráð samþykkir að veita styrk á móti húsleigu sem tekin verði af fjárheimild ársins 2016.
-
4. Fjölgun veitingastaða í Fjarðabyggð
Mál 1504184 Allur ferill málsins
Tillögu vísað frá fundi ungmennaráðs með bæjarstjórn. Ungmennaráð Fjarðabyggðar vill leggja til við bæjarstjórn að hún beiti sér með einhverjum hætti fyrir því að fá hingað í sveitarfélagið fleiri veitingastaði. Ungmennaráð nefndi í þessu sambandi sérstaklega tilteknar keðjur veitingastaða sem eru vinsælar á meðal ungs fólks. Ungmennaráðsmeðlimir gera sér grein fyrir því að það er ekki í verkahring bæjaryfirvalda að opna eða reka slíka staði en ráðið myndi þó gjarna vilja sjá fleiri slíka staði í Fjarðabyggð og vill því að sveitarfélagið geri það sem í valdi þess er, til að liðka fyrir opnun slíkra staða. Bæjarráð fagnar áhuga ungmennaráðs á samfélagsmálum og mun hér eftir, sem hingað til, beita sér fyrir að þjónusta í sveitarfélaginu verði sem fjölbreytilegust.
-
5. Fólk fyrir fólk, megi breytingar blómstra
Mál 1505001 Allur ferill málsins
Framlagt erindi frá tíu ungmennum af Austurlandi, sem munu taka þátt í ungmennaskiptum í Póllandi í ágúst. Yfirskrift verkefnisins er Fólk fyrir fólk, megi breytingar blómstra (People4People, Let the Change Grow ) og er samstarfsverkefni ÆSKA - Æskulýðssambands kirkjunnar á Austurlandi, EJR í Þýskalandi og lúthersku kirkjunnar í Póllandi. Alls eru 30 ungmenni þátttakendur og 6 fararstjórar frá þessum þremur löndum. Óskað er eftir styrkveitingu og að gerðar verði athugasemdir við styrki Evrópusambandsins sem breyttust um síðustu áramót. Vísað til íþrótta- og tómstundanefndar til afgreiðslu.
-
6. Grjótvarnir í Fjarðabyggð
Mál 1503195 Allur ferill málsins
Framkvæmdastjóri Fjarðabyggðarhafna og formaður hafnarstjórnar sátu þennan lið fundarins. Farið yfir verkefni hafnarstjórnar og stöðu framkvæmda.
-
7. Leiðbeiningar um uppbyggingu ljósleiðaraneta og ríkisaðstoðarreglur EES
Mál 1411143 Allur ferill málsins
Á fundi stjórnar Sambands sveitarfélaga á Austurlandi 21. apríl sl. var fjallað um kynningu Póst- og fjarskiptastofnunar á leiðbeiningum á uppbyggingu ljósleiðaraneta og ríkisaðstoðarreglur EES. Þá var til umfjöllunar tillaga um að SSA leiði vinnu við að undirbúa fyrirhugaða uppbyggingu ljósleiðaravæðingar á Austurlandi öllu en sveitarfélögin greiði kostnaðinn. Verkefnisstjóra sveitarstjórnarmála var falið að senda tillöguna til umsagnar hjá sveitarfélögunum með hliðsjón af leiðbeiningum Póst- og fjarskiptastofnunar. Óskað er eftir að umsagnir berist fyrir 11. maí nk. Bæjarráð tekur jákvætt í að SSA leiði vinnu við ljósleiðaravæðingu á Austurlandi en lögð verði fram áætlun um hvernig vinnu verði hagað.
-
8. Lög íbúasamtaka Reyðarfjarðar
Mál 1504192 Allur ferill málsins
Framlögð til kynningar lög Íbúasamtaka Reyðarfjarðar.
-
9. Ársskýrsla HAUST 2014
Mál 1505047 Allur ferill málsins
Ársskýrsla Heilbrigðiseftirlits Austurlands fyrir árið 2014, lögð fram til kynningar.
-
10. Ársfundur Austurbrúar ses. 2015 - 19.maí
Mál 1505052 Allur ferill málsins
Ársfundur Austurbrúar verður haldinn þriðjudaginn 19. maí kl. 16:00, í Kirkju- og menningarmiðstöðinni Eskifirði. Bæjarstjóri mun sækja fundinn og fara með umboð bæjarins.
-
11. Ábendingar til sveitarfélaga um fasteignaskatt o.fl. á mannvirki tengd ferðaþjónustu - 1. útgáfa
Mál 1505045 Allur ferill málsins
Minnisblað Sambandsins, frá 28.apríl, er varðar ábendingar til sveitarfélaga um fasteignaskatt á mannvirki tengd ferðaþjónustu, lagt fram til kynningar. Vísað til kynnningar í eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
-
12. 689. mál, til umsagnar tillögu til þingsályktunar um landsskipulagsstefnu 2015-2026,
Mál 1504163 Allur ferill málsins
Lögð fram til kynningar umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga um landsskipulagsstefnu. Vísað til kynnningar í eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
-
13. Umsögn til Alþingis um frumvarp um breytingar á lögum um vexti og verðtgryggingu, 561.mál
Mál 1504170 Allur ferill málsins
Lögð fram til kynningar umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga um frumvarp um breytingar á lögum um vexti og verðtryggingu, 561. mál.
-
14. 629. mál til umsagnar frumvarp til laga um verndarsvæði í byggð, 629. mál.
Mál 1504169 Allur ferill málsins
Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins frá 22. maí 2013 er getið þeirrar fyrirætlunar að setja lög um sérstök verndarsvæði í byggð með það markmið að vernda sögulega byggð. Til að hrinda í framkvæmd þessari stefnu stjórnvalda var á haustdögum 2013 hafin vinna við frumvarp til laga um verndarsvæði í byggð.
Frumvarpið var samið í forsætisráðuneytinu. Bæjarráð lýsir ánægju með frumvarp til laga um verndarsvæði í byggð og vonar að vel takist til.
-
15. 696. mál til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á húsaleigulögum (réttarstaða leigjanda og leigusala),
Mál 1505011 Allur ferill málsins
Lagt fram til kynningar. Vísað til kynningar í eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd og félagsmálanefnd.
-
16. 703. mál til umsagnar frumvarp til laga um þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlendna og afrétta
Mál 1505012 Allur ferill málsins
Lagt fram til kynningar.
-
17. Ársreikningur Fjarðabyggðar og stofnana 2014
Mál 1503202 Allur ferill málsins
Ársreikningar Hitaveitu Fjarðabyggðar, Rafveitu Reyðarfjarðar og Eignarhaldsfélagsins Hrauns, lagðir fram til kynningar.
-
18. Viðtalstímar bæjarfulltrúa 2015
Mál 1503121 Allur ferill málsins
Ákvörðun um staðsetningar og fyrirkomulag viðtalstíma bæjarfulltrúa næstu mánuði. Næsti fundur verður á bókasafninu í Neskaupstað þriðjudaginn 26. maí kl. 17:00. Fimmtudaginn 25. júní verður viðtalstími á bókasafninu á Stöðvarfirði.
-
19. Fundagerðir Náttúrustofu Austurlands 2015
Mál 1501235 Allur ferill málsins
Fundargerðir Náttúrustofu frá 6. og 24. apríl 2015, lagðar fram til kynningar.
-
20. Fjarðabyggð til framtíðar
Mál 1411075 Allur ferill málsins
Þennan lið fundarins sátu fjármálastjóri og fræðslustjóri. Áframhaldandi vinna við tillögur KPMG og Skólastofunnar ehf.
-
21. Fræðslunefnd - 15
Fundargerð fræðslunefndar, nr. 15 frá 28.apríl 2015, lögð fram til kynningar.
-
22. Fundargerðir félagsmálanefndar 2015
Mál 1501132 Allur ferill málsins
Fundargerð félagsmálanefndar, nr. 69 frá 27. apríl 2015, lögð fram til kynningar.