Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2015

Fjölgun veitingastaða í Fjarðabyggð

Mál 1504184 Fyrst á dagskrá 11. maí 2015, síðast 21. maí 2015. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2015

    Bæjarráð, fundur 427 liður 4

    Tillögu vísað frá fundi ungmennaráðs með bæjarstjórn. Ungmennaráð Fjarðabyggðar vill leggja til við bæjarstjórn að hún beiti sér með einhverjum hætti fyrir því að fá hingað í sveitarfélagið fleiri veitingastaði. Ungmennaráð nefndi í þessu sambandi sérstaklega tilteknar keðjur veitingastaða sem eru vinsælar á meðal ungs fólks. Ungmennaráðsmeðlimir gera sér grein fyrir því að það er ekki í verkahring bæjaryfirvalda að opna eða reka slíka staði en ráðið myndi þó gjarna vilja sjá fleiri slíka staði í Fjarðabyggð og vill því að sveitarfélagið geri það sem í valdi þess er, til að liðka fyrir opnun slíkra staða. Bæjarráð fagnar áhuga ungmennaráðs á samfélagsmálum og mun hér eftir, sem hingað til, beita sér fyrir að þjónusta í sveitarfélaginu verði sem fjölbreytilegust.

  2. Bæjarstjórn, fundur 179 liður 1.4

    Fundargerðin „Bæjarráð - 427“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is