Börn án íslenskrar kennitölu og leikskólaþjónusta
Mál 1504167 Fyrst á dagskrá 28. apríl 2015, síðast 21. maí 2015. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn, Fræðslunefnd.
Í heiti málsins: Skólar og fræðsla
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2015
Fræðslunefnd, fundur 15 liður 4
Tekið var til umræðu bréf þar sem spurt er hvort leikskólar í Fjarðabyggð heimili börnum án íslenskrar kennitölu leikskólaþjónustu og jafnframt óskað eftir þjónustu fyrir barn í fyrrgreindri stöðu. Í reglum um leikskóla segir að sækja megi um vist í leikskóla um leið og kennitala barns hefur verið skráð. Fræðslunefnd lýsir yfir vilja til að bjóða þeim börnum leikskólaþjónustu sem eru án kennitölu eða skráð utangarðs í þjóðskrá og eiga fyrirliggjandi umsókn um kennitölu. Fræðslunefnd beinir því til fræðslustjóra að leggja til við fræðslunefnd nauðsynlegar breytingar á reglum um leikskóla ásamt verklagi. Fræðslunefnd felur fræðslustjóra að fylgja málinu eftir. Trúnaðarmál.
-
Bæjarstjórn, fundur 179 liður 5.4
Fundargerðin „Fræðslunefnd - 15“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.