Félagsmálanefnd, fundur 87
20. september 2016, kl. 16:00 til 18:00, í Molanum fundarherbergi 1. Fundargerð ritaði Þóroddur Helgason.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Hulda Sigrún Guðmundsdóttir, formaður
- Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, aðalmaður
- Ásmundur Páll Hjaltason, aðalmaður
- Valdimar O Hermannsson, varaformaður
Starfsmenn
- Inga Rún Beck Sigfúsdóttir, embættismaður
- Þóroddur Helgason, embættismaður
Dagskrá
-
1. Málefni Breiðabliks
Mál 1609125 Allur ferill málsins
Til umræðu voru málefni Breiðabliks. Deildarstjóri búsetuþjónustu gerði grein fyrir þjónustunni sem þar er veitt og einnig þjónustuþörf.
-
2. Rekstur hjúkrunarheimilisins Hulduhlíðar
Mál 1608073 Allur ferill málsins
Fyrir liggur minnisblað fjármálastjóra Fjarðabyggðar þar sem gerð er grein fyrir fjárhagsstöðu hjúkrunarheimilisins Hulduhlíðar. Einnig var gerð grein fyrir samskiptum forstöðumanns hjúkrunarheimilanna í Fjarðabyggð og bæjarstjóra við heilbrigðisráðherra þar sem leitað var lausna við rekstrarvanda hjúkrunarheimilisins Hulduhlíðar, m.a. með því að koma upp tveimur hvíldarinnlagnarýmum á Hulduhlíð. Félagsmálanefnd tekur undir óskir um að veitt verði leyfi til að koma upp þessum tveimur hvíldarinnlagnarrýmum. Nefndin samþykkir einnig heimild til handa forstöðumanni hjúkrunarheimilanna í Fjarðabyggð að taka skammtímalán/yfirdráttarheimild hjá viðskiptabanka Hulduhlíðar upp á 10 milljónir króna til allt að 12 mánaða svo hægt verði að bregðast við þeim bráðavanda sem að steðjar.
-
3. Framkvæmdaráð hjúkrunarheimila í Fjarðabyggð
Mál 1609135 Allur ferill málsins
Félagsmálanefnd, sem starfandi stjórn hjúkrunarheimilanna í Fjarðabyggð, samþykkir að stofna þriggja manna framkvæmdaráð yfir hjúkrunarheimilin í Fjarðabyggð. Nefndin felur Huldu Sigrúnu Guðmundsdóttur, Valdimar O. Hermannssyni og Hjördísi Helgu Seljan Þóroddsdóttur að sitja í framkvæmdaráði.
-
4. Jafnréttisáætlun í Fjarðabyggð 2013 - 2016
Mál 1109095 Allur ferill málsins
Farið var yfir jafnréttisáætlun Fjarðabyggðar 2013-2016. Ákveðið var að endurskoða áætlunina til næstu þriggja ára með áherslu á aukna fræðslu og þátttöku ungs fólks. Ákveðið er að ljúka endurskoðun á árinu 2016.
-
5. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2017
Mál 1605024 Allur ferill málsins
Fræðslustjóri gerð grein fyrir þeirri vinnu sem fram hefur farið við gerð launa- og fjárhagsáætlunar fyrir árið 2017.