Félagsmálanefnd, fundur 86
6. september 2016, kl. 16:00 til 18:00, í Molanum fundarherbergi 1 og 2. Fundargerð ritaði Þóroddur Helgason.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Hulda Sigrún Guðmundsdóttir, formaður
- Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, aðalmaður
- Ásmundur Páll Hjaltason, aðalmaður
- Valdimar O Hermannsson, varaformaður
Starfsmenn
- Þóroddur Helgason, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 488 liður 34
Fundargerð félagsmálanefndar frá 6. september 2016, lögð fram til kynningar.
Dagskrá
-
1. Áhrif nýrrar húsnæðislöggjafar gagnvart sveitarfélögum
Mál 1608100 Allur ferill málsins
Bæjarráð vísaði til kynningar samantekt Sambandsins vegna áhrifa nýrrar húsnæðislöggjafar gagnvart sveitarfélögum til félagsmálanefndar. Jafnframt var samantektinni vísað til vinnslu hjá fjármálastjóra, félagsmálastjóra og skipulags- og byggingarfulltrúa. Lagt fram til kynningar og verður aftur tekið fyrir í nefndinni þegar búið verður að meta áhrif löggjafarinnar fyrir sveitarfélagið.
-
2. Fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2017 - félagsmálanefnd
Mál 1605160 Allur ferill málsins
Fyrir liggur fjárhagsrammi félagsmála utan barnaverndar sem bæjarráð úthlutaði á fundi 5. september. Fjárhagsramminn gerir ráð fyrir eftirfarandi:
Tekjur 67.986.000 kr.
Laun og launatengd gjöld 223.583.000 kr.
Millifærð húsa- og vélaleiga 82.656.000 kr.
Annar rekstrarkostnaður 143.078.000 kr.
Gert er ráð fyrir verðlagsbreytingum upp á 2%. Bæjarráð gerir ráð fyrir að félagsmálanefnd skili launaáætlun 25. september og endanlegri fjárhagsáætlun fyrir 14. október. Starfsmönnum fjölskyldusviðs er falin vinna við gerð launa- og fjárhagsáætlunar. Skila skal launaáætlun fyrir fund nefndarinnar 20. september og fjárhagsáætlun fyrir fund nefndarinnar 11. október.