Bæjarráð, fundur 792
3. apríl 2023, kl. 08:30 til 10:20, Nesskóla í Neskaupstað. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Stefán Þór Eysteinsson, formaður
- Þuríður Lillý Sigurðardóttir, varaformaður
- Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
- Gunnar Jónsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 351 liður 1
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku: Stefán Þór Eysteinsson, Heimir Snær Gylfason, Þuríður Lillý Sigurðardóttir, Elís Pétur Elísson, Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir, Jóna Árný Þórðardóttir,
Fundargerð bæjarráðs frá 3. apríl staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Ofanflóðahætta og snjóflóðin í Fjarðabyggð - Mars 2023
Mál 2303415 Allur ferill málsins
Farið yfir stöðu mála í kjölfar snjóflóða og ofanflóðahættu í Fjarðabyggð síðustu daga.
Bæjarráð þakkar fyrir þær kveðjur og hlýhug sem borist hafa sveitarfélaginu og íbúum þess á síðustu dögum. Þeir fjölmörgu einstaklingar og björgunarsveitir sem komið hafa að aðgerðum í sveitarfélaginu vegna ofanflóða á síðustu dögum eiga mikið hrós skilið fyrir ómetanlegt framlag við erfiðar aðstæður. Mikilvægi ofanflóðavarna í Neskaupstað kom greinilega í ljós í vikunni sem leið þar sem garðarnir sönnuðu gildi sitt. Nú þegar hönnun síðasta hluta varnargarðsins í Neskaupstað liggur fyrir er mikilvægt að tryggja að ferli útboðs geti hafist sem fyrst. Bæjarráð hefur þegar hafið samtal við stjórnvöld um að flýta framkvæmdum og útboði. Bæjarráð Fjarðabyggðar, sem og íbúar sveitarfélagsins, treysta á að ekki standi á því að hefja útboð og framkvæmdir sem fyrst.
-
2. Stöðuúttekt stjórnsýslunnar 2023
Mál 2303238 Allur ferill málsins
Framlögð tilboð sem borist hafa í stöðuúttekt stjórnsýslu Fjarðabyggðar.
Bæjarráð óskar eftir að fá Deloitte á fund bæjarráðs.
-
3. Beiðni um fjarstyrk vegna Hjólabókinn - 7 Austurland
Mál 2303269 Allur ferill málsins
Styrkbeiðni Ómars Smára Kristinssonar vegna útgáfu og ferð bókarinnar "Hjólabókin 7 - Austurland"
Bæjarráð tekur vel í erindi og vísar því til forstöðumanns stjórnsýslu- og upplýsingamála.