Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 793

5. apríl 2023, kl. 09:00 til 11:30, í Egilsbraut 1, Neskaupstað. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Stefán Þór Eysteinsson, formaður
  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, varaformaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 351 liður 2

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Fundargerð bæjarráðs frá 5. apríl staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Ofanflóðahætta í Fjarðabyggð - Mars 2023

    Mál 2303415 Allur ferill málsins

    Haldinn var stöðufundur með fulltrúum þjónustumiðstöðvar almannavarna á Norðfirði þar sem farið var yfir verkefni sem unnið hefur verið að frá því miðstöðin hóf rekstur. Jafnframt var farið yfir verkefni Náttúruhamfaratrygginga vegna vettvangsins og samskipti við íbúa vegna tjónamats ofl.

  2. 2. Aðalfundur SSA 2023

    Mál 2304010 Allur ferill málsins

    Boðað til 57. aðalfundar Sambands sveitarfélaga á Austurlandi (SSA). Verður fundurinn haldinn í Valaskjálf á Egilsstöðum þann 3. maí nk. og hefst hann kl. 10:00.

  3. 3. Breyting á verðskrá vegna gufubaðsklúbba í sundlaugum Fjarðabyggðar

    Mál 2303407 Allur ferill málsins

    Stefán Þór Eysteinsson vék af fundi við umfjöllun og afgreiðslu dagskrárliðar.

    Vísað frá íþrótta- og tómstundanefnd tillögu að breytingu á gjaldskrá sundlauga vegna gufubaðsklúbba.

    Bæjarráð samþykkir að vísa tillögunni til næstu fjárhagsáætlunargerðar og heildarendurskoðunar gjaldskrána.