Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 473

9. maí 2016, kl. 08:30 til 00:00, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
  • Jón Björn Hákonarson, formaður
  • Dýrunn Pála Skaftadóttir, varamaður
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 200 liður 5

    Fundargerðir bæjarráðs nr. 472 og nr. 473, teknar fyrir saman til umfjöllunar.

    Til máls tóku Jón Björn Hákonarson og Valdimar O. Hermannsson,

    Fundargerð bæjarráðs, nr. 473 frá 9. maí 2016, samþykkt með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Rekstur málaflokka 2016 - TRÚNAÐARMÁL

    Mál 1602052 Allur ferill málsins

    Þennan lið fundarins sat fjármálastjóri. Framlagt sem trúnaðarmál málaflokkayfirlit um rekstur málaflokka og framkvæmdir janúar - mars 2016, launakostnað og skatttekjur janúar - apríl 2016.

  2. 2. Fjármál 2016

    Mál 1602076 Allur ferill málsins

    Þennan lið fundarins sat fjármálastjóri. Lögð fram sem trúnaðarmál, samantekt fjármálastjóra um staðgreiðslutekjur 2016 ásamt þróun heildarlauna í Fjarðabyggð síðustu ára.

  3. 3. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2017

    Mál 1605024 Allur ferill málsins

    Þennan lið fundarins sat fjármálastjóri. Lögð fram drög að reglum um gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2017 ásamt minnisblaði fjármálastjóra um áætlunargerðina. Bæjarráð ræddi tillögurnar og tekur þær fyrir á næsta fundi.

  4. 4. Ársreikningur 2015 - Hulduhlíð

    Mál 1604068 Allur ferill málsins

    Fjármálastjóri sat þennan lið fundarins. Ársreikningur Hulduhlíðar fyrir árið 2015, lagður fram til kynningar.

  5. 5. Ársreikningur Uppsala 2015

    Mál 1604116 Allur ferill málsins

    Fjármálastjóri sat þennan lið fundarins. Ársreikningur Uppsala fyrir árið 2015, lagður fram til kynningar.

  6. 6. Rekstur Félagslundar 2016

    Mál 1605020 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar erindi er snúa að rekstri Félagslundar er auglýstur var nýlega. Vísað til stjórnsýslu- og þjónustusviðs til frekari vinnslu. Tekið fyrir í bæjarráði síðar.

  7. 7. Neskóli viðhaldsmál

    Mál 1605022 Allur ferill málsins

    Þennan lið fundarsins sátu fræðslustjóri, markaðs- og upplýsingafulltrúi og sviðsstjóri framkvæmda-, umhverfis- og veitusviðs. Jafnframt voru í símasambandi skólastjórar Nesskóla og Tónskóla Neskaupstaðar.

    Farið yfir húsnæðismál Tónskóla Neskaupstaðar og Nesskóla, en ljóst er að myglusveppur er aftur kominn fram á neðstu hæð eldri byggingar skólans.

    Bæjarráð samþykkir, í samráði við skólastjórnendur, að loka húsnæði Tónskóla Neskaupstaðar og myndmenntastofu Nesskóla, tímabundið á meðan ráðist verður í endurbætur.

    Bæjarráð felur sviðsstjóra framkvæmda- umhverfis- og veitusviðs, undirbúning framkvæmda og til hvaða aðgerða verður gripið. Fræðslustjóra í samráði við skólastjórnendur, falið að kynna málið vel fyrir starfsmönnum skólanna og foreldrum og gera viðeigandi ráðstafanir í starfi skólanna. Máli jafnframt vísað til fræðslunefndar.

    Bæjarráð mun fjalla um málið betur á næsta fundi.

  8. 8. Flugfélag Austurlands

    Mál 1605025 Allur ferill málsins

    Kynning á Flugfélagi Austurlands. Vísað til bæjarstjóra til frekari skoðunar.

  9. 9. Vinna við landáætlun um uppbyggingu innviða - greining á uppbygginarþörf

    Mál 1605015 Allur ferill málsins

    Erindi sambandsins frá 2.maí er varðar vinnu við landsáætlun um uppbyggingu ferðamannastaða og innviða. Vísað til eigna- skipulags- og umhverfisnefndar til afgreiðslu og tilnefningar tengiliðs við verkefnið.

  10. 10. Forvarnar- og öryggismál

    Mál 1602034 Allur ferill málsins

    Fyrstu þrjár fundargerðir forvarnar- og öryggisnefndar lagðar fram til kynningar.

  11. 11. Þátttaka í Eldvarnarbandalaginu

    Mál 1605023 Allur ferill málsins

    Stjórn Eldvarnarbandalagsins fundar 18.maí og á þeim fundi verður tekið fyrir formlegt erindi Slökkviliðsstjóra Fjarðabyggðar um samstarf við bandalagið um auknar eldvarnir í Fjarðabyggð. Bæjarráð samþykkir þátttöku í Eldvarnarbandalaginu.

  12. 12. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 144

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 144 frá 3.maí 2016, lögð fram til kynningar.