Bæjarráð, fundur 248
15. júní 2011, kl. 08:30 til 11:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Dagskrá
-
1. Vinnuskóli og sumarvinna 2011 - fyrirkomulag
Mál 1103084 Allur ferill málsins
Lögð fram tillaga mannvirkjastjóra um viðbótarráðningu sumarstarfsmanna.Bæjarráð samþykkir að ráða aukalega 7 starfsmenn sem sóttu um sumarstörf hjá Fjarðabyggð en fengu ekki vinnu í ráðningarferlinu, en um er að ræða 17 og 18 ára einstaklinga, þ.e. fædd árin 1994 og 1993. Starfsmenn munu fara í sumarstörf sem skipulögð verða á mannvirkja- og umhverfissviði. Ráðningartími hvers starfsmanns skal vera allt að 8 vikur og mun vera leitað leiða til að kostnaður sem verður til rúmist innan fjárheimilda. Áætlaður kostnaður er um 3 milljónir kr.Bæjarráð samþykkir tillöguna.
-
2. Safnahúsið í Neskaupstað
Mál 1105064 Allur ferill málsins
Á fundinn er mættur Pétur Sörensson forstöðumaður safnastofnunar.Rætt um málefni Safnastofnunar.
-
3. Fundagerðir Sambands sveitarfélaga á Austurlandi árið 2011
Mál 1103063 Allur ferill málsins
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
-
4. Nýjir íbúar og borttfluttir í Fjarðabyggð
Mál 1106064 Allur ferill málsins
Lagt fram til kynningar.
-
5. Breytinar á samþykktum Lífeyrissjóðs Neskaupstaðar
Mál 1106065 Allur ferill málsins
Bæjarráð vísar samþykktunum til staðfestingar bæjarstjórnar.
-
6. Björgunarklippur
Mál 1104103 Allur ferill málsins
Fram lagt minnisblað slökkviliðsstjóra um kaup á björgunarklippum. Kostnaður er um 4,4 milljónir kr.Bæjarráð samþykkir tillögum slökkviliðsstjóra um kaup á klippunum og kostnaður rúmist innan fjárhagsáætlunar.
-
7. Starfshópur um skólamál í Fjarðabyggð
Mál 1101233 Allur ferill málsins
Lagt fram minnisblað fræðslustjóra um störf vinnuhóps um skipan fræðslumála í Fjarðabyggð. Lagt er til að starfstími hópsins verði framlengdur til 1. október 2011.Bæjarráð samþykkir framlenginguna sbr. tillöguna.
-
8. Fræðslu- og frístundanefnd - 14
Fundargerðin fram lögð og kynnt.