Björgunarklippur
Mál 1104103 Fyrst á dagskrá 26. apríl 2011, síðast 15. júní 2011. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2011
Bæjarráð, fundur 242 liður 9
Minnisblað slökkviliðsstjóra frá 7.apríl er varðar breytingar á lögum um brunavarnir en með breytingunum er björgun á fastklemmdu fólki úr mannvirkjum og farartækjum, með sérhæfðum björgunarbúnaði, orðið eitt af verkefnum slökkviliða. Þessi breyting kallar á kaup á björgunarklippibúnaði en löggjafinn gerði ekki ráð fyrir að fjármagn fylgdi með breytingum á lögunum, þrátt fyrir athugasemdir og ábendingar Sambands íslenskra sveitarfélaga í umsögn um frumvarp til laganna. Vísað til umræðu við fjárhagsáætlunargerð 2012.
-
Bæjarstjórn, fundur 93 liður 2.9
Fundargerðin „Bæjarráð - 242“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarráð, fundur 248 liður 6
Fram lagt minnisblað slökkviliðsstjóra um kaup á björgunarklippum. Kostnaður er um 4,4 milljónir kr.Bæjarráð samþykkir tillögum slökkviliðsstjóra um kaup á klippunum og kostnaður rúmist innan fjárhagsáætlunar.