Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 239

29. mars 2011, kl. 08:45 til 11:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Dagskrá

  1. 1. Fundur Fjarðabyggðar og Alcoa Fjarðaáls

    Mál 0908034 Allur ferill málsins

    Þennan lið fundarins sátu frá Alcoa Fjarðaáli þeir Guðmundur Bjarnason og Jóhann Helgason auk Ástu Kristínar Sigurjónsdóttur formanns atvinnu- og menningarnefndar. Rætt um málefni álversins, vinnubúðir, fullvinnslu áls, málefni slökkviliðs og starfsmannamál.

  2. 2. Deiliskipulag vegna jarðarinnar Fannardals

    Mál 1103156 Allur ferill málsins

    Jón Björn Hákonarson vék af fundi undir þessum lið. Bréf Guðröðar Hákonarsonar frá 22.mars þar sem hann, sem eigandi jarðarinnar Fannardals, dregur deiliskipulag jarðarinnar til baka. Vísað til bæjarstjóra og mannvirkjastjóra.

  3. 3. Árgjöld sveitarfélaga til Atvinnuþróunarsjóðs Austurlands

    Mál 1009205 Allur ferill málsins

    Bæjarráð hefur yfirfarið málefni Atvinnuþróunarsjóðs Austurlands og ítrekar fyrri afstöðu sína er varðar framlög, þ.e. að greiðslum til sjóðsins verði frestað þar til endurskoðun á skipulagi stoðstofnana sveitarfélaga á Austurlandi er lokið, enda liggi niðurstaða þeirrar vinnu fyrir sem allra fyrst. Stjórnsýslustjóra falið að svara erindi.

  4. 4. Endurfjármögnun lána 2011

    Mál 1103167 Allur ferill málsins

    Fjármálastjóri sat þennan lið fundarins. Svanbjörn Thoroddsen frá KPMG kynnti, í gegnum síma, leiðir til endurfjármögnunar hjá sveitarfélaginu.

  5. 5. 740 Starmýri 17- 19 - Kauptilboð

    Mál 1006279 Allur ferill málsins

    5,5 milljóna kauptilboð, dagsett 21.mars frá Bjarka Sveinssyni, í Starmýri 17 - 19 í Neskaupstað. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti tilboðið á fundi 28.mars og vísaði staðfestingu til bæjarráðs. Bæjarráð samþykkir tilboðið.

  6. 6. Aðalfundur Sparisjóðs Norðfjarðar 7.apríl 2011

    Mál 1103161 Allur ferill málsins

    Aðalfundur Sparisjóðs Norðfjarðar verður haldinn fimmtudaginn 7.apríl kl.18:00 í Nesskóla. Kosið verður til stjórnar. Jón Björn Hákonarson mun fara með umboð Fjarðabyggðar á fundinum.

  7. 7. Ársfundur Loðnuvinnslunar 2011

    Mál 1103142 Allur ferill málsins

    Aðalfundur Loðnuvinnslunnar hf. verður haldinn föstudaginn 8.apríl kl.18:30 í Skrúð Fáskrúðsfirði. Bæjarstjóri mun fara með umboð Fjarðabyggðar á fundinum.

  8. 8. Staðfesting á útsvarsprósentu við álagningu 2011

    Mál 1103149 Allur ferill málsins

    Bæjarráð staðfestir að útsvarsprósenta Fjarðabyggðar á árinu 2010 verði ekki breytt og verði 13,28% við álagningu 2011 á tekjur ársins 2010.

  9. 9. Fundargerðir félagsmálanefndar 2011

    Mál 1101152 Allur ferill málsins

    Fundargerð félagsmálanefndar nr. 11 frá 7.mars lögð fram.