Bæjarráð, fundur 240
5. apríl 2011, kl. 08:30 til 11:00, í þjónustumiðstöðinni í Neskaupstað. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.
Dagskrá
-
1. Starfsendurhæfing Austurlands
Mál 1007144 Allur ferill málsins
Lagt fram bréf til bæjarstjóra frá formanni stjórnar StarfA vegna málefna StarfA frá 10.mars sl. Bæjarstjóri gerði grein fyrir fundi sem haldinn var á Reyðarfirði 31.mars sl. með formanni stjórnar og framkvæmdastjóra StarfA. Auk þeirra á fundinum voru Björn Ingimarsson bæjarstjóri Fljótsdalshéraðs, Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri Hornafjarðar og Páll Björgvin Guðmundsson bæjarstjóri Fjarðabyggðar. Formaður StarfA mun á næstunni vera í sambandi við velferðarráðaneytið vegna málefna StarfA og er reiknað með að haldinn verður annar fundur með hópnum um miðjan apríl mánuð. Bæjarráð Fjarðabyggðar vill hvetja ráðherra heilbrigðismála til að standa vörð um Starfendurhæfingu Austurlands og tryggja framtíð starfseminnar. Mikil uppbygging hefur átt sér stað í þessari þjónustu á Austurlandi og mikilvægi hennar óumdeilt. Bæjarstjóra falið að koma bókun bæjarráðs á framfæri við ráðherra velferðarmála.
-
2. 725 Mjóafjörður - Tilboð í hús
Mál 1103168 Allur ferill málsins
Mannvirkjastjóri var í símasambandi við fundinn. Kauptilboð, dagsett 25. mars 2011, frá Marvini Ómarssyni í íbúð Fjarðabyggðar í Mjóafirði við Þinghólsveg. Tilboðið er upp á 4,5 milljónir en fasteignamat íbúðarinnar er 5,42 milljónir. Verðmat frá fasteignasala liggur ekki fyrir. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti tilboðið með skilyrðum á fundi 28.mars. Framlagt minnisblað mannvirkjastjóra frá 4.apríl. Bæjarráð hafnar kauptilboði en felur mannvirkjastjóra áframhaldandi vinnslu málsins.
-
3. Snjóflóðavarnir Tröllagili Norðfirði.
Mál 0903071 Allur ferill málsins
Mannvirkjastjóri var í símasambandi við fundinn. Tillaga Framkvæmdasýslu ríkisins frá 1.apríl og mannvirkjastjóra frá 4.apríl um töku tilboðs í snjóflóðavarnir í Tröllagili. Sex tilboð bárust í verkið. Bæjarráð samþykkir að taka tilboði Héraðsverks ehf. í verkið "Snjóflóðavarnir í Neskaupstað, varnargarðar og keilur" sem er í samræmi við ráðgjöf Framkvæmdasýslu ríkisins. Kostnaðarhlutdeild Fjarðabyggðar í verkefninu er 10%
-
4. Ársuppgjör Fjarðabyggðar 2010
Mál 1103124 Allur ferill málsins
Áframhaldandi umræða um ársuppgjör 2010.
-
5. Fundagerðir Sambands íslenskra sveitarfélaga árið 2011
Mál 1103022 Allur ferill málsins
Fundargerð nr. 785 lögð fram til kynningar.
-
6. AST - Fundargerð framkvæmdaráðs 17.3.2011
Mál 1104003 Allur ferill málsins
Fundargerð lögð fram til kynningar.
-
7. Fundagerðir Skólaskrifstofu Austurlands árið 2011
Mál 1104004 Allur ferill málsins
Fundargerð frá 28.mars 2011 lögð fram til kynningar.
-
8. Stuðningur og samstarf við Þekkingarnet Austurlands
Mál 1104010 Allur ferill málsins
Framlagt bréf frá formanni stjórnar Þekkingarnets Austurlands frá 17.mars. Bæjarstjóra falið að funda með formanni og framkvæmdastjóra ÞNA.
-
9. Fundargerðir barnaverndarnefndar 2011
Mál 1101153 Allur ferill málsins
Fundargerð barnaverndarnefndar nr. 9 frá 8.mars lögð fram.
-
10. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 17
Fundargerð eigna,- skipulags- og umhverfisnefndar nr.17 frá 28.mars lögð fram.