Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 233

15. febrúar 2011, kl. 08:30 til 11:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 88 liður 2

    Fundargerðir bæjarráðs teknar saman til umræðu og afgreiðslu.Staðfest af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Kjarasamningsumboð

    Mál 1102041 Allur ferill málsins

    Minnisblað mannauðsstjóra frá 11.febrúar vegna kjarasamningsumboðs. Bæjarráð veitir Sambandi íslenskra sveitarfélaga samningsumboð gagnvart Matvís, Stéttarfélagi bókasafns- og upplýsingafræðinga, Kjarafélagi viðskipta- og hagfræðinga, Iðjuþjálfafélagi Íslands og Fræðagarði.

  2. 2. Ráðstefna um stöðu norræna velferðarsamfélags 5-6.maí 2011 á Finnlandi

    Mál 1102069 Allur ferill málsins

    Lagt fram til kynningar.

  3. 3. Endurskoðun á umferðasamþykkt

    Mál 1009017 Allur ferill málsins

    Umferðarsamþykkt vísað til bæjarstjórnar.

  4. 4. Rekstur Egilsbúðar

    Mál 1012090 Allur ferill málsins

    Minnisblað stjórnsýslustjóra frá 11.febrúar vegna umsókna um rekstur Egilsbúðar.  Bæjarráðs felur stjórnsýslustjóra afgreiðslu málsins á forsendum minnisblaðs og óskar eftir frekari upplýsingum um framvindu málsins á næsta fundi.

  5. 5. Jörðin Nes í Neskaupstað

    Mál 1010159 Allur ferill málsins

    Ákvörðun um möguleg kaup á eignarhluta í jörðinni Nes í Neskaupstað. Minnisblað stjórnsýslustjóra frá 14.febrúar lagt fram. Bæjarráð sammála að gera upp leigugreiðslur samkvæmt minnisblaði en frestar afgreiðslu á mögulegum kaupum og óskar eftir frekari upplýsingum frá mannvirkjastjóra.

  6. 6. Innkaup á rekstrarvörum 2011

    Mál 1101296 Allur ferill málsins

    Fjármálastjóri sat þennan lið fundarins. Lögð fram drög að samningi vegna innkaupa á rekstrarvörum.  Bæjarráð felur fjármálastjóra að ganga frá samningi.

  7. 7. Þriggja ára áætlun 2012 - 2014

    Mál 1101235 Allur ferill málsins

    Fjármálastjóri sat þennan lið fundarins. Framlagt frumvarp að þriggja ára áætlun. Fjármálastjóri fór yfir helstu breytingar sem gerðar hafa verið á áætlun á milli umræðna auk þess sem farið var yfir sjóðsflæði, endurfjármögnun og fjárfestingaráætlun.

  8. 8. Lóðaleigusamningur, Hraun 10

    Mál 0909114 Allur ferill málsins

    Minnisblað framkvæmdastjóra hafnanna frá 11.febrúar vegna beiðni VHE um lækkun á byggingaréttargjöldum á lóðinni Hraun 10 við Mjóeyrarhöfn.  Bæjarráð getur ekki fallist á beiðni um lækkun gjalda.

  9. 9. Menningarmiðstöðvar og nýir menningarsamningar 2011

    Mál 1009174 Allur ferill málsins

    Bæjarstjóri gerði grein fyrir stöðu mála gagnvart samningum við mennta- og menningarmálaráðuneytið um menningarsamstarf á Austurlandi. Bæjarráð heimilar bæjarstjóra að vinna áfram að lausn málsins.

  10. 10. Fundargerðir félagsmálanefndar 2011

    Mál 1101152 Allur ferill málsins

    Fundargerð félagsmálanefndar nr. 9 frá 7.febrúar 2011 lögð fram.

  11. 11. Fræðslu- og frístundanefnd - 10

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð fræðslu- og frístundanefndar nr. 10 frá 9.febrúar 2011 lögð fram.

  12. 12. Verkefnastjóri - æskulýðs- og íþróttamál

    Mál 1012146 Allur ferill málsins

    Greinargerð um starf verkefnastjóra æskulýðs- og íþróttamála lögð fram.Bæjarráð samþykkir að hætt verði við ráðningu í starf verkefnastjóra á grundvelli greinargerðarinnar.  Verkefnahópi og starfsmönnum í yfirstjórn verði falin verkefnin.