Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 234

22. febrúar 2011, kl. 08:30 til 11:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 89 liður 1

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson, Elvar Jónsson, Valdimar O Hermannsson, Jens Garðar Helgason, Páll Björgvin Guðmundsson, Sævar Guðjónsson, Guðmundur Þorgrímsson, Stefán Már Guðmundsson.Staðfest af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Beiðni um fund í Fjarðabyggð - Norðfjarðargöng

    Mál 1012124 Allur ferill málsins

    Fyrirhugaður er fundur með innanríkisráðherra föstudaginn 25.febrúar í Reykjavík.

  2. 2. Námskeið fyrir sveitarstjórnarmenn vorið 2011

    Mál 1102090 Allur ferill málsins

    Námskeið fyrir sveitarstjórnarmenn er fyrirhugað laugardaginn 19.mars. Lagt fram til upplýsinga.

  3. 3. Breiðni um styrk til að halda Góðverkadagana 2011

    Mál 1102075 Allur ferill málsins

    Beiðni um styrk frá Bandalagi íslenskra skáta vegna Góðverkadagana 2011. Um er að ræða nýja útfærslu á aldagamalli hefð og loforði skáta um að gera að minnsta kosti eitt góðverk á dag.  Vísað til fræðslu- og frístundanefndar.

  4. 4. Fundargerðir barnaverndarnefndar 2011

    Mál 1101153 Allur ferill málsins

    Fundargerð barnaverndarnefndar nr. 8 frá 15.febrúar lögð fram

  5. 5. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 14

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar nr. 14 frá 14.febrúar lögð fram.