Bæjarráð, fundur 232
8. febrúar 2011, kl. 08:30 til 11:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 88 liður 1
Fundargerðir bæjarráðs teknar saman til umræðu og afgreiðslu.Til máls tóku: Jón Björn Hákonarson, Jens Garðar Helgason, Elvar Jónsson, Óskar Þór Hallgrímsson, Páll Björgvin Guðmundsson, Eiður Ragnarsson, Stefán Már Guðmundsson, Sævar Guðjónsson, Ásta Kristín Sigurjónsdóttir.Staðfest af bæjarstjórn með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Samningur við björgunarsveitirnar í Fjarðabyggð
Mál 1001024 Allur ferill málsins
Framlagður samningur frá 1.febrúar við björgunarsveitirnar í Fjarðabyggð.
-
2. Rafmagnskostnaður Björgunarsveitarinnar Ársólar
Mál 1010201 Allur ferill málsins
Framlagt samkomulag vegna uppgjörs við Björgunarsveitina Ársól vegna rafmagns og hita í Þórðarbúð. Bæjarráð samþykkir samkomulag og felur bæjarstjóra afgreiðslu.
-
3. Námsstyrkir - tillaga að úthlutun á árinu 2011
Mál 1101222 Allur ferill málsins
Minnisblað mannauðsstjóra frá 20.janúar vegna endurskoðunar á reglum um námsstyrki til stofnana Fjarðabyggðar á árinu 2011. Bæjarráð samþykkir tillögur mannauðsstjóra.
-
4. Skólphreinsistöð
Mál 0905009 Allur ferill málsins
Tillaga framkvæmdastjóra hafnanna og mannvirkjastjóra frá 3.febrúar og drög að lóðaleigusamningi við Bólholt vegna hafnarlóðar 3 við Mjóeyrarhöfn, sem vísað var frá hafnarstjórn. Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi drög að lóðaleigusamningi fyrir hafnarlóð 3 við Mjóeyrarhöfn og felur framkvæmdastjóra hafnanna afgreiðslu.
-
5. Endurskoðun á umferðasamþykkt
Mál 1009017 Allur ferill málsins
Samþykkt um umferð í Fjarðabyggð, minnisblað Mannvits frá 31.janúar auk greinargerðar mannvirkjastjóra frá 7.febrúar. Tekið fyrir á næsta fundi.
-
6. 735 Deiliskipulag innan Bleiksár að Norðfjarðarvegi
Mál 1011197 Allur ferill málsins
Tekið til umfjöllunar. Samþykkt að vísa deiliskipulagi innan Bleiksár að Norðfjarðarvegi til bæjarstjórnar.
-
7. Gjaldskrá fyrir félagsheimili Fjarðabyggðar
Mál 1101300 Allur ferill málsins
Tillaga eigna- og skipulagsfulltrúa frá 31.janúar um gjaldskrá fyrir hvert félagsheimilanna fjögurra í Fjarðabyggð þegar ekki er rekstraraðili með húsin. Bæjarráð samþykkir gjaldskrár með þeirri breytingu að stefgjöld verði innheimt fyrirfram.
-
8. Umsókn um undirbúning og framkvæmd 16. og 17. unglingalandsmóts UMFÍ
Mál 1102017 Allur ferill málsins
UMFÍ auglýsir eftir umsóknum vegna 16. og 17.unglingalandsmóts UMFÍ sem haldin verða verslunarmannahelgarnar 2013 og 2014. Lagt fram til upplýsinga og vísað til fræðslu- og frístundanefndar.
-
9. 783.fundargerð stjórnar sambandsins
Mál 1102021 Allur ferill málsins
Fundargerð 783.stjórnarfundar lögð fram til kynningar.
-
10. Starf vélstjóra
Mál 1102040 Allur ferill málsins
Minnisblað framkvæmdastjóra hafnanna frá 7.febrúar vegna starfsmannamála á höfnunum. Bæjarráð veitir heimild til að starf vélstjóra dráttarbáts verði auglýst.
-
11. Menningarmiðstöðvar og nýir menningarsamningar 2011
Mál 1009174 Allur ferill málsins
Bæjarstjóri upplýsti um stöðu mála en unnið verður áfram að málinu hjá SSA.
-
12. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 13
Fundargerð lögð fram.
-
13. Hafnarstjórn - 80
Fundargerð lögð fram.
- 13.7 Aðstaða til að láta fjara undan bátum1101288